12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (606)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. — Ég ætla ekki að fara að þreyta hv. þm. með langri ræðu, því að það er ekki venja mín að flytja langar ræður, en ég kemst þó ekki hjá því að gera nokkra grein fyrir þeim brtt., sem ég er 1. flm. að.
Það er þá fyrst XXX. brtt. á þskj. 410, um framlag til sjóvarnargarðs á Sauðárkróki, 60 þús. kr. gegn 1/3 framlagshluta frá Sauðárkrókshreppi.
Það stendur svo á þessu máli hér, að í haust varð stórbrim í Skagafirði, og braut brimið þá land við höfnina í Sauðárkrók. Af þeim sökum fór eitt hús í sjóinn og annað tæpt komið. En það hagar svo til, að ríkið á lóðina, þar sem þetta skeði, og eru lóðir ríkisins í kaupstaðnum einhverjar þær verðmætustu þar.
Í símtali í dag, sem meðflm. minn átti við Sauðárkrók, var okkur skýrt frá því, að í óveðri hefði annað lítið hús farið í viðbót. Það er því sýnilegt, að ef dregst að gera þarna endurbót á, eru fleiri hús í mikilli hættu fyrir því að fara sömu leiðina og hin tvö.
Við sendum hv. fjvn. tilmæli um, að framlag yrði tekið upp á fjárl. til þess að lagfæra þennan stað, áður en verra hlytist af, en hvernig sem á því stendur, hefur hv. fjvn. ekki tekið þessa till. okkar til greina í brtt. þeim, er hún leggur til, að samþ. verði með fjárlagafrv. — En eftir því sem mér hefur skilizt á hv. nm. fjvn., þeim sem ég hef talað við um orsakir þess, að n. skyldi ekki mæla með þessari till. okkar, þá mun það aðeins vera af athugunarleysi að svona tókst til.
Ég vil því vænta þess, að hv. Alþ. sjái nauðsyn þessa máls, sem er svo brýn, að jafnvel þótt hv. Alþ. mundi ekki samþ. þetta framlag, þá Sé ég ekki fram á annað en að hv. stj. yrði að hlaupa undir bagga, til þess að ekki hljótist meira stórtjón af völdum brimsins en orðið er. Og þar sem hv. fjvn. hefur af athugunarleysi ekki lagt til, að brtt. þessi við fjárlagafrv. verði samþ., þá vænti ég þess, að hv. Alþ. láti ekki við svo búið standa, heldur samþ. þessa brtt., svo að hægt verði að hefja þessar aðkallandi aðgerðir strax. Um það eru bæði verkfræðingar, er athugað hafa aðstæður þarna, og svo menn á staðnum sammála, að svo aðkallandi og nauðsynlegt sé, að hafizt sé handa, að það þoli enga bið, og að á komandi hausti verði varnargarður kominn til þess að firra meira tjón af völdum brimsins.
Þá skal ég og fara nokkrum orðum um tvær aðrar brtt.
Fjvn. leggur til, að styrkur til Út-Blönduhlíðarvegar sé felldur úr fjárlagafrv., en þar lagði stj. til, að veittar yrðu 35 þús. kr. til hans. Vegur þessi liggur austan Vatna og er um aðalmjólkurflutningasvæðið. Vegarkafli sá, sem gerður hefur verið, endar í vegleysu úti í mýri. En það stendur bændum á þessu svæði fyrir þrifum, að vegur þessi skuli ekki vera fullger. Það óhapp vildi til hjá bændum þarna, að garnaveiki kom í fé þeirra, og hafa þeir orðið að drepa meira og minna fjár stofn sinn og verða því að vinna sér þetta tjón með því að framleiða meira af mjólk, en Út-Blönduhlíðarvegurinn er einmitt leiðin til að koma þeirri mjólk á markaðinn, og því hljóta allir hv. þm. að sjá nauðsyn þess, að unnið sé að því að fullgera veginn, en það verður ekki hægt, ef fella á niður framlagið til hans.
Um orsakir þess, að þessi liður í fjárlfrv. skyldi vera í brtt. fjvn. um, að hann skyldi felldur niður, mun eiga rót sína að rekja til misskilnings, eftir því, sem ég kemst næst. Fjvnm. hafa, að því er mér hefur verið tjáð, staðið í þeirri trú, að okkur þm. Skagf. stæði á sama, þótt liður þessi yrði felldur niður á fjárl. En það er auðvitað hinn herfilegasti misskilningur, af hverju svo sem hann er sprottinn.
Ég vil og leyfa mér að benda á, að þetta er einasti vegurinn eftir till. fjvn., sem fella á niður. Að vísu er líka lagt til að felldur verði niður Súgandafjarðarvegur, en svo stendur á um þann veg, að hann er þegar fullgerður og því engin ástæða til að hafa hann lengur á fjárl.
Við væntum þess, að framlag til þessa Blönduhlíðarvegar verði ekki fellt úr fjárl., til þess að hægt verði að þoka honum áfram, og mætti þá að líkindum takast að ljúka honum á næsta ári. Ég vonast eftir, að hv. þm. veiti okkur þann stuðning, sem nauðsynlegur er, til þess að framlag þetta til Út-Blönduhlíðarvegar verði ekki fellt burtu úr fjárlagafrv. eftir brtt. fjvn., og það því fremur sem sú till. mun, eftir því sem næst verður komizt, á misskilningi vera byggð.
Þá vil ég gjarnan minnast nokkrum orðum á brtt. þá, er ég stend að, sem er við brtt. fjvn. 94, till. b., á þskj. 387, um hrossaræktarbú á Bessastöðum. En við leggjum til með varatill. okkar, að 5 þús. kr. verði varið til að koma upp hrossaræktarbúi að Hólum í Hjaltadal. — Ég vil benda á, að á Búnaðarþingi í fyrra vetur var samþykkt með 23 atkv. að leggja til, að stofnað yrði hrossaræktarbú að Hólum í Hjaltadal í sambandi við bændaskólann þar. Var þetta mál allýtarlega rætt á þ., og voru menn yfirleitt á því, að þetta yrði mjög vel til fallið.
Það, sem öðru fremur gerir það að verkum, að hagkvæmara er að setja slíkt bú á Hólum í Hjaltadal en annars staðar, er það, að landfræðileg aðstaða er þarna mjög góð. Hrossin mundu á þessum stað vera mjög einangruð, sem er þýðingarmikið atriði. Einnig er á Hólum mikill búskapur sem einnig þarf að vera til staðar, þar sem hrossaræktunarbú yrði. Heyöflun er þar mikil, og eins og nú er háttað, er þaðan selt hey, svo að hundruðum hesta skiptir, en það hey mundi af sjálfsögðu verða látið ganga til hrossaræktunarbúsins, sem þar á staðnum yrði. Ýmislegt annað er og hægt að nefna, er gerir Hóla í Hjaltadal ákjósanlegan stað fyrir hrossaræktarbú, einkum þar sem bændaskólinn er þar á staðnum.
Eins og ég sagði í upphafi, að ég mundi verða stuttorður, ætla ég líka að efna það, þó að ástæða væri e.t.v. að ræða fleiri brtt., sem fram hafa komið við fjárlagafrv., og að ég léti afstöðu mína til þeirra koma fram. En ég vil að lokum vænta þess, að hv. þm. taki vel í mál það, er ég hef nú flutt, og greiði atkv. sitt samkv. því, þegar þar að kemur.