12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. — Ég hef ekki miklu við að bæta það, sem ég tók áður fram sem frsm. samvn. samgmn. Ég vil aðeins leiðrétta nokkuð, sem kom fram í málaflutningi hv. þm. V.-Sk., en hann á sæti í n. og hafði samþ. nál., en kemur svo síðar fram með till. um að hækka framlag til samgöngumála í kjördæmi sínu. En hann hafði áður samþ. nál. og skrifað undir það athugasemdarlaust, en síðar, án þess að n. fengi nokkuð um það að vita, brauzt hann út úr því, ef svo mætti að orði komast. Nú, það verður hver að hafa sinn dóm um það. Ég vil aðeins benda á, að n. hefur hér í engu farið rangt að.

Annars vil ég líka benda á það, að „Suðurlandsskip“ er ekki raunverulega skip. Það orð er viðhaft yfir þá flutninga, sem nú gerast á landi, og þess vegna er allur styrkur, sem því er veittur, ætlaður til landflutninga. En nú er kominn annar bobbi í bátinn, því að annað hérað, sem liggur næst héraði hv. þm. V.-Sk., vill ekki vera afskipt, og fer 2. þm. Rang. nú fram á 30 þús. kr. hækkun til styrktar flutningaleiðum á landi í kjördæmi sínu.

Vegna till., sem samþ. var á þessu þingi, um tilhögun á flutningum, gekk n. út frá því, að niðurstaða fengist um það fyrirkomulag, áður en gengið yrði frá styrkbeiðnum. Það er gott, þegar eitthvert hérað ber mikið úr býtum, og það getur reiknazt duglegum þm. til réttlætis, en réttlæti er það þó ekki. Þegar eitt hérað er tekið fram yfir annað, sem engu minni hefði þörfina, og eftirköst hlýtur það að hafa. Og ég vil ekki, að þessi leið sé farin á bak við samvn. samgm., heldur að slíkar brtt. séu furðar undir 22. gr. fjárl. eða heimildargreinina, og þá séu styrkirnir ánafnaðir eftir meðmælum samvn. samgm. Nú heyri ég sagt, að fjvn. vilji ekki ganga inn á þetta og að enn ein brtt. sé á ferðinni frá henni, og verður maður þá að sætta sig við það, nema brtt. einhverra okkar beri þá gæfu að vera samþ., ef þeir þá ekki vilja bera till. sínar til baka að fenginni till. fjvn.

Ég vil aðeins leyfa mér, áður en ég sleppi því að tala um samvn. samgm., til glöggvunar fyrir þá hv. þm., sem hér eru, — og ef það kynni að berast til þeirra, sem eru fyrir utan, en væntanlega koma til skila einhverntíma, — að n. hefur eingöngu unnið að vegalagningu og brúalagningu, og hefur mikill tími farið í það að fá skýrslur um vegi og brýr, og hefur vegamálaskrifstofan orðið að inna af hendi mikið verk í þessu sambandi. Og samvn. hefur orðið að setja undirnefndir til að athuga einstakar skýrslur frekar. Upp úr þessu hefur skapazt mikið skjalabákn, og má búast við, að n. verði lengi að vinna úr því, hvort sem hún þá leggur það inn á þing sem sérstakt álit eða semur upp úr því ýmsar till. á sínum tíma. Þetta er sagt til þess, að þeir hv. þm., sem hér eru — eða sem þetta kunna að frétta — taki hlutunum með ró, þar til það kemur fram. N. lét þetta m.a. doka í undirbúningnum, þar til vissa væri fengin fyrir því, hvort þetta þing hætti næstu daga eða héldi áfram.

Þá skal ég leyfa mér að víkja nokkrum orðum að tveimur brtt., sem ég á á þskj. 410, við 14. og 16. gr. fjárl. Þær ganga báðar í þá átt, að hækkaður sé styrkur til húsmæðrafræðslu í Vestur-Skaftafellssýslu, 1400 kr. í stað 800 kr., í fjárveitingu samkv. 14. gr., og 750 í stað 500 til Kvenfélags Hvammshrepps samkv. 16. gr. l. Þetta munar ekki nema um nokkur hundruð, og ég tel sjálfsagt, að hv. Alþ. muni ekki telja þessa tiltölulega smáu fjárhæð eftir, því að hér er um raunverulegt menningarstarf að ræða og styrk við konur, sem hafa árum saman unnið af mikilli ósérplægni að þessum málum.

Þá flyt ég einnig brtt. við 15. gr. ásamt hv. 4. þm. Reykv., um, að Guðbrandi Jónssyni sé veittur 1800 kr. styrkur til að semja miðaldarmenningarsögu, en það er starfsemi,. sem hann er allra manna bezt fær til. Ég tel sanngjarnt, að hann sé tekinn upp í þessi fjárl. Hann hafði áður, eða 1939. nokkurn styrk til þessa starfs, en svo var þetta fellt niður. Mun enginn efa, sem til þekkir, skýrleika hans og ritfærni, og ég hygg, að heppilegt sé, að honum sé veittur þessi styrkur og að hann sé tilgreindur í fjárl.

Ég læt svo útrætt um þær till., sem ég hef með að gera sérstaklega.