12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Frsm. (Finnur Jónsson):

Gamall kunningi minn átti nokkuð ríklundaða konu og lýsti henni þannig : „Eins og konan mín er orðin nú, þyrfti hún helzt að eiga stóran búgarð og búa á honum einsömul.“ Ég held, að þessi lýsing ætti nokkuð vel við þm. Barð. (GJ). En ég held, að honum nægði ekki að eiga stóran búgarð og búa á honum einsamall, heldur þyrfti hann að eiga nokkuð stórt land, t.d. Grænland, og búa þar einsamall. Og ég held, að hann ætti þar helzt heima. Landið er gæðaríkt, og þar er efalaust talsvert verksvið fyrir þann dugnað, sem býr í þessum hv. þm.

Ég sé ekki ástæðu til að deila neitt við þennan hv. þm. Má vel vera, að ég líti of stórt á hann, eins og hann sannarlega hefur litið of stórt á mig. Ég hef ekki í fjvn. nema mitt eina auma atkv., en flokkur þessa þm. hefur þar 3 menn á móti mér einum. Og þegar hann þess vegna er að deila um störf fjvn., þá er ádeila hans miklu meira ádeila á störf hans eigin flokksmanna heldur en á mín störf, því að sannarlega hef ég ekki gert neitt annað en greitt þar atkv., ef til atkvgr. hefur komið. Ég hef starfað þar á fundum, en um úrslit mála ræð ég þar engu meir en hver annar nm. þrátt fyrir formennskuna. Þetta ætla ég, að háttv. þm. Barð. geti skilið, ef hann vill skil ja það á annað borð. Þegar hann er að tala um, að ég hafi hvorki sýnt stórmennsku eða réttsýni um úthlutun vegafjár til vega á Barðaströnd, þá vil ég minna á, að fjvn. hefur gert till. um úthlutun vegafjár til Barðastrandar þannig að það verði hækkað um 50% frá því sem sú ríkisstj., sem þessi þm. studdi, hefur gert till. um. Það getur verið, að þetta sé ekki nein stórmennska, en fjvn. hefur þó gert nokkra tilraun til að lyfta upp aftur vega fjárframlaginu til Barðastrandar, sem ríkisstj. þessa háttv. þm. hafði skoriðverulega niður.

Það er mesti misskilningur, ef þm. eru farnir að halda fram, að hér á Alþ. liggi fyrir nokkur minnsta krafa um það frá fjvn., að greidd verði atkv, með brtt. fjvn. eingöngu, en ekki öðrum. En hins vegar hef ég sagt, að eins og brtt. við fjárl. liggja fyrir og upplýsingar liggja fyrir um líkur ríkisins fyrir tekjum, þá getur það ekki verið annað en sjálfsögð skylda allra þm. að gera eitt af tvennu: Ef þeir samþ. þær hækkanir, sem hér liggja fyrir till. um frá einstökum þm., verður annaðhvort að skera niður eitthvað af því, sem fjvn. hefur lagt til, eða benda á nýja tekjuliði. Ég fyrir mitt leyti geri ekki þessa kröfu sem form. fjvn. Ég geri enga kröfu um það, að till. fjvn. séu samþ.

Ég hef bent á það, að hæstv. ríkisstj. hafi annaðhvort ekki kært sig um eða ekki fundið sig hafa neina köllun til að fylgjast með störfum fjvn., hvaða ástæður sem hún hefur haft fyrir því. Þess vegna verður það að teljast skylda þingsins að afgreiða fjárl. þannig, að þingið geti verið þekkt fyrir þá afgreiðslu.

Ég ber mikið traust til fjármálavits og fjáröflunarhæfileika háttv. þm. Barð., og ég veit, að hann skilur kannske bezt allra manna þessa afstöðu fjvn. Hins vegar má hann ekki misskilja fjvn. þannig, að það sé verið að gera kröfur til einræðis í fjármálum til handa fjvn. Hún er ekki annað en starfsmenn þingsins, og hver nm. er trúnaðarmaður síns flokks í n. Þær till., sem fjvn. hefur gert um útgjöld, eru nokkurnveginn í samræmi við áætlanir fjvn. um tekjur, og ég hef staðið í þeirri meiningu, — a.m.k. þangað til ég heyrði ræðu háttv. þm. Barð., — að þessar till. væru nokkurnveginn í samræmi við álit flokkanna á Alþ., enda munu fulltrúarnir hafa haft nokkurt samráð við flokka sína um till., og þar með fulltrúar sjálfstæðismanna að sjálfsögðu við háttv. þm. Barð. Ég segi fyrir mitt leyti, að mér hefur aldrei dottið í hug að svífa í lausu lofti yfir mínum flokki eins og einhver andi yfir vötnum. Ég hef haft samráð við flokk minn um afgreiðslu fjárl. Og ég hef gert ráð fyrir og trúi ekki öðru, fyrr en ég tek á, að fulltrúar Sjálfstfl. í fjvn. hafi fylgt sömu reglu, að þeir hafi ráðfært sig við flokksmenn sína og haft samráð við þá um afgreiðslu fjárl., ekki sízt, þar sem þar er um að ræða mjög reynda fjvnm., eins og t.d. háttv. þm. Borgf. (PO), háttv. þm. Dal. (ÞÞ) og háttv. þm. Ak. (SEH). Þeir hafa allir átt sæti mörg ár í fjvn. Og ég mótmæli því alveg, að svo lítið sé gert úr þessum reyndu og ágætu þm., að ég, óreyndur maður í fjvn., hafi snúið þeim einhvernveginn um fingur mér. Ég mótmæli þessu, ekki af því að mig langi ekki til að vera svona slyngur, heldur vegna þessara ágætu þm. Háttv. þm. Barð. hefur setið hér lengi kvölds og er dálítið syfjaður. Hann hefur sótt í sig veðrið, og ég hef skoðað þær ákúrur, sem hann hefur látið hrjóta í minn garð, stafa af því, að honum hefur nú með sínum mikla dugnaði ekki fundizt hann komast nógu langt með allar sínar stóru kröfur. Ég skoða þetta þannig heldur en að hann beri persónulegan kala í minn garð. Og því síður ætti hann að hafa persónulegan kala í garð síns eigin flokks, sem er þrefaldur á við mig í fjvn. Háttv. þm. Barð. sagði hér í dag, að hann talaði ekki um fjárl. fyrir munn Sjálfstfl., heldur fyrir munn skynseminnar. Vera má, að erfitt sé að samræma þetta tvennt, en ég mælist til þess við þennan þm., að hann taki það tillit til flokksmanna sinna, að hann telji mig ekki að minsta kosti jafnvoldugan þremur fulltrúum Sjálfsæðisflokksins í fjárveitinganefnd.

Á 26. fundi í Sþ., 15. febr., var enn fram haldið 3. umr. um frv. (A. 346, n. 355 og 390, 387, 388, 410, 411, 419, 420, 425, 426, 427),