15.03.1943
Efri deild: 73. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (676)

110. mál, ráðstafanir og tekjuöflun vegna dýrtíða og erfiðleika atvinnuveganna

Pétur Magnússon:

Ég get ekki almennilega skilið þá skoðun hv. 3. landsk. (HG), að verðið á þeim fiski, sem togarar afla, sé óþekkt, þangað til selt er í Englandi. Ef fiskinum er skipað hér upp í annað skip, er verðið hins vegar þekkt. Það er hið gildandi verð, og eftir því verður að reikna. Ég hygg það sé óþekkt, að útflutningsgjald vöru sé miðað við fobverð og þó látið fara eftir því, hvað varan kann síðar að seljast á erlendum markaði. Meðan ekkert gangverð var þekkt á fiskinum hér, var þetta hins vegar skiljanlegt úrræði í málinu, en nú er það ástand hreytt. Þegar þetta er samt látið viðgangast óbreytt, er það einungis af því, að menn hafa látið það draslast, — ekki komið lagfæringu í framkvæmd.