08.02.1943
Neðri deild: 52. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (726)
116. mál, húsaleiga
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. — Ég flyt hér á þskj. 369 ásamt hv. þm. N.-Þ. brtt. við brtt. á þskj. 301. Það er nokkuð af þeim ástæðum, sem komu fram við 2. umr. þessa máls. Það hefur komið fram í sambandi við þetta mál, að till. á þskj. 301 er komin fram og flutt vegna aðstöðunnar á Hornafirði. Á það var engin dul dregin við 2. umr. málsins. Það er og það, sem hefur vakað fyrir okkur hv. þm. N.-Þ. með flutningi þessarar brtt.
Ég hef við fyrri umr. um þetta mál gefið nokkuð yfirlit um, hvernig háttað er ástandinu á Hornafirði, en mér virðist, að enn sé uppi nokkur hópur manna, sem hefur þá trú, að kaupfélagið á Hornafirði okri á austfirzkum sjómönnum. Það hafa komið fram hér á Alþ. trúboðar þessa boðskapar. Nú er svo, oft og tíðum, með heittrúaða menn, að það er erfitt að sannfæra þá um. að þeir kunni að hafa á röngu að standa, jafnvel þótt komið sé með vísindalegar niðurstöður, sem brjóta í bág við það, sem þeir trúa. Og ég get hugsað mér, að þótt dregnar séu fram staðreyndir, sem sýna, að austfirzkir sjómenn hafi ekki verið beittir okri, þá muni þeir heittrúuðu ekki láta sannfærast. En vegna annarra, sem þurfa að taka afstöðu til þessa máls, þykir mér hlýða að gefa nokkrar skýringar á því, hvernig háttað er greiðslu austfirzkra báta til kaupfélagsins á Hornafirði fyrir afnot af verstöðinni. Ég hef, síðan ég talaði hér áður um þetta mál, kynnt mér það enn ýtarlegar og aflað mér fullkominna gagna, og ég skal stytta mál mitt eftir föngum og forðast að endurtaka svo sem ég get, það, sem áður er sagt, en drepa á nokkur ný atriði.
Það leiðir af sjálfu sér, að þar sem leiga er greidd í aflahluta, þá er hún misjöfn frá ári til árs og misjafnlega mikið, sem hver bátur greiðir. Síðustu tvö árin hafa verið óvenjulega hagstæð, bæði óvenjulega aflasæl og aflasala hagkvæmari en áður. Árið í fyrra mun hafa verið mesta stríðsgróðaárið, og einkanlega fyrir þá báta, sem stunduðu veiðar frá Hornafirði, því að þar var meiri afli en annars staðar. Einn bátur, Hafaldan, skar sig úr um afla. Hún hafði 700–800 skippund yfir vertíðina, en það hæsta, sem áður þekktist þar, var 400–500 skippund. Leigan, sem Hafaldan greiddi, nálgaðist það að komast í 8000 kr. Flestir hinna bátanna greiddu miklu minna. T.d.. greiddu Austri frá Eskifirði og fleiri bátar lága leigu. En meðalleiga á bát, af 26 bátum, sem stunduðu róðra frá Hornafirði, var um 3000 kr. Það er sú tala, sem raunverulega ber að miða við, þegar gerður er samanburður á leigunni eftir verstöðvarnar í Hornafirði og annars staðar.
Um ljósatoll er það að segja, að hér er um að ræða ljósastöðvar, sem eru reknar vegna útgerðarmanna. Þær voru til áður en kaupfélagið keypti verstöðvarnar. Tollur af þeim var áður greiddur með 11/2 skippundi á hvern bát, og meðan afli var saltaður, tók kaupfél. sjálft á móti fiskinum og kom honum í verð. Þegar hætt var að salta aflann, þá tók kaupfélagið ekki lengur aflahluta í ljósatoll, heldur var hann metinn til verðs. Á fyrsta árinu, sem þessi breyting varð á meðferð aflans, var 11/2 skp. metið á 300 kr., og þetta var það, sem hver bátur greiddi í ljósagjald. Við þetta hefur setið síðan. Bátarnir hafa ekki greitt af aflahluta, heldur 300 kr. á hvern bát. Þess vegna er sú staðhæfing, að bátarnir hafi greitt 350 kr. fyrir ljós á einni 40 kr. lukt, gripin úr lausu lofti. Bátarnar, sem stunduðu veiðar frá Hornafirði á síðustu vertíð, voru 26. Hver þeirra greiddi 300 kr. Var því allur ljósatollurinn 7800 kr. Þetta getur hver maður séð. Kaupfélagið rekur ljósastöðvar í eyjunum eingöngu vegna báta. Það er sinn maður í hvorri ey. Að vísu hafa þeir líka umsjón með eign félagsins í eyjunum, en það er sanngjarnt að telja, að þeir séu þar að hálfu leyti vegna ljósastöðvanna. Þeir hafa fast kaup 1000 kr. á mánuði yfir vertíðina. Kaup þeirra allra er 8000 kr. yfir fjögurra mánaða vertíð. Til að beita ýtrustu sanngirni skulum við segja, að ekki fari nema 4000 kr. af ljósatollinum til þessara manna. En auk þess þarf kaupfélagið að leggja til alla olíu og viðhald á stöðvunum, og sannleikurinn er sá, að ljósastöðvarnar í eyjunum hafa ekki borið sig, en stöðin í þorpinu, sem íbúar þorpsins greiða fyrir afnot af, borgar hallann.
Um umboðslaunin er .það að segja, að það er hreyting, sem hefur komizt á nýlega. En það en ekki bara á Hornafirði sem umboðslaun eru greidd. Þau eru líka greidd annars staðar. Það bara vill svo til, að á Hornafirði er sá aðili, sem fær umboðslaunin, einnig leigusali. Þetta aukagjald greiða kaupmennirnir, en ekki sjómennirnir. Það er eins og með tolla. Það fellur í hlut kaupandans að greiða tollinn, en ekki þeirra, sem selja vöruna erlendis. En það mætti koma því svo fyrir, að þeir gætu unnið fyrir þessu gjaldi. Ef sjómenn hefðu sjálfir félagsskap um þetta, gætu þeir sennilega látið gjaldið renna aftur í sinn sjóð, og það mundi ég telja sanngjarnt. En ef umboðssalan væri gefin frjáls, þá gæti orðið samkeppni um hana. Ef fiskkaupendur vildu hafa gjaldið sem lægst, gæti svo farið, að þessar tekjur yrðu óvissar eða hefðu jafnvel horfið. Eg vil aðeins benda á þetta. En undanfarin ár hefur þetta gjald runnið til kaupfélagsins, og þar sem það hefur verið reiknað af aflahlutanum, hefur það verið misjafnt. Aflahæsti báturinn hefur e.t.v. komizt upp í að greiða 5000 kr. Hinir, sem minni afla hafa haft, hafa greitt minna. Það mun láta nærri, að þessi greiðsla hafi að meðaltali numið 2000 kr. á bát.
Við skulum þá líta á tölurnar. Meðalleiga hefur verið 3000 kr., meðalljósagjald 300 kr. og meðalumboðslaun 2000 kr., eða samtals 5300 kr. meðalgreiðsla á bát. Nú stendur vertíðin 3–4 mánuði, við skulum segja 100 daga að meðaltali. Þá verður greiðslan að meðaltali 53 kr. fyrir hvern bát á dag.
Nú vil eg spyrja hv. þdm.: Hafa þeir ekki orðið varir við aðrar eins tölur? Hvaða leigu borga þeir? Hvað hefur Rvík að bjóða í þessu efni? Er ekki húsaleiga fyrir einn þingmann allt upp í 30 kr. á dag? Er þá nokkuð merkilegt, þó að fyrir heila skipshöfn sé leigan 53 kr.? En sé umboðslaunum sleppt, þá er niðurstaðan sú, að leigan sjálf fyrir heila bátshöfn er svipuð og þekkist eftir eins manns herbergi hér í bænum. — Og ef við berum þetta saman við óskyld efni, þá má minna á það, að í sumar þótti sjálfsagt hér á háttv. Alþ. að bæta 25–30% við laun opinberra starfsmanna. Af 10000 kr. grunnlaunum nemur það 6550 kr. Þá er það upplýst, að veitt hafi verið til einstakra manna 2000 kr. uppbót án allra heimilda. Það þýðir sama sem 6250 kr. útborgaðar. Ég hygg því, að háttv. þingm. hafi séð aðrar eins tölur og þær, sem hér um ræðir. Þar, sem talið var sjálfsagt að bæta við laun eins einasta opinbers starfsmanns, nam hærri upphæð en tekin var fyrir útgerðaraðstöðu eins vélbáts á Hornafirði.
Ég hef rakið hér nokkuð áður upphafið að sögu þessa máls, að kaupfélagið keypti á erfiðum tímum verstöðina á hátt á annað hundrað þús. króna. Þetta var þungur baggi á aflaleysisárunum. Þá gilti þetta hlutaskiptafyrirkomulag eins og nú. Afli sumra bátanna var ekki 100 skippund. Á þeim árum komst hluti sá, sem einn bátur greiddi, niður í 150 kr. Á þessum árum átti kaupfélagið í nokkrum örðugleikum með að standast greiðslu skulda vegna kaupa á verstöðinni og annast viðhald hennar. En á síðustu árum hefur orðið nokkur hagnaður af stöðinni. Því hef ég ekki neitað. En þótt 1/20 af verði fisksins hafi hækkað svona mikið, þá ber þess að gæta, að hinir 19/20, sem sjómenn hafa fengið í sinn hlut, hafa hækkað að sama skapi.
Hvernig hefur svo kaupfélagið farið með sinn gróða? Það hefur m.a. ráðizt í endurbætur á þessari fasteign. Það hefur byggt beitingarhús fyrir 8 vélbáta, og auk þess hafa hús í Mikley verið endurbætt, svo að sá gr óði, sem kaupfélaginu hefur hlotnazt vegna hlutaskiptanna, hefur verið notaður til að bæta eignirnar, til þess að bæta aðstöðu þeirra, sem þessara mannvirkja eiga að njóta.
En ef á að fara að gera upp á milli A.- Skaftfellinga og austfirzkra sjómanna, þá getur fleira komið til greina en það, sem þegar hefur borizt í tal. Ég ætla ekki að þessu sinni að fara út í það mál. En ég vil þó aðeins drepa á það, að mér skilst að í útsvarsl. séu ákvæði, sem heimila þeirri sveit, þaðan sem bátar stunda veiði, að heimta hluta af því útsvari, sem þeir greiða í sinni heimasveit.
Nú er því svo varið, að Hornfirðingar munu ekki hafa innheimt síðustu árin þann hluta af útsvörum þessara sjómanna, sem þeim bar með réttu. Hv. þm. Siglf. kvartaði undan því hér í hv. d. um daginn, að Siglufjörður hefði ekki nógu trausta aðstöðu til þess að afla sér útsvara, sem honum bæri 1. samkvæmt. Hornfirðingar hafa ekki kvartað um slíkt viðvíkjandi þeim sem útróðra stunda í Hornafirði.
Ég hygg, að nokkur frádráttur verði á sannleiksgildi þeirra stóryrða, sem fram hafa verið færð í sambandi við þetta mál, ef það er skoðað niður í kjölinn. Ég held, að því betur, sem það er rakið, því fremur muni þau dauð og ómerk falla.
Þó að ég hafi nú farið nokkrum orðum um þetta mál, eins og það liggur fyrir, er þó ekki þar með sagt, að ég sé að verja okur, því að ekkert vær í fjarri mér. Ég álit, að um þetta eigi að fara fram frjálsir samningar milli þessara tveggja aðila, en ekki eins og farið er fram á í þessu frv. á þskj. 143, að annar aðilinn sé sviptur öllum rétti, en allur rétturinn fenginn í hendur hinum aðilanum. Í því getur ekki falizt nokkur sanngirni, ef segja á við þann aðilann, sem sviptur er réttinum, þegar vel gengur: Lögin eru í gildi. Hafðu þig hægan, góði. En þegar atvinnureksturinn gengur illa: Hafðu þinn hlut. Þú færð ekki meira. — Á slíka afgreiðslu málsins get ég ekki fallizt. Ef menn aftur á móti vilja fella þetta inn í l., þá verður það að verða Alþ. til sóma, en frv. stefnir því miður í gagnstæða átt.
Tveir hv. þm. hafa borið fram brtt. við húsaleigul., og er hún á þskj. 301. Þessi till. fer mjög í sömu átt og frv. á þskj. 143, og vegna þess hef ég ásamt hv. þm. N.-Þ. leyft mér að bera fram brtt. við þessa brtt. Hún fer í þá átt, að ákvæði núgildandi húsaleigulaga gildi einnig eftir því, sem við á, um leigu á húsum, bryggjum og pöllum til fiskibáta og fiskiskipa. En aftur á móti viljum við, að hlutaskipti geti haldizt áfram milli þessara aðila, en brtt. á þskj. 301 felur í sér, að hlutaskipti verði látin niður falla. Í okkar brtt. eru ákvæði um það, að þegar leigan er greidd í aflahlut, þá geti leigutaki og leigusali krafizt mats á því, hve stór sá aflahlutur skuli vera, og er þetta ákvæði sett til þess að varna því, að okur fari fram. Hvor aðilinn, sem er, getur því krafizt rannsóknar, ef hann þykist órétti beittur, og má segja, að það sé til mikillar tryggingar.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar að sinni.