08.02.1943
Neðri deild: 52. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (727)
116. mál, húsaleiga
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. — Fyrir nokkru flutti ég frv. á þskj. 143 um breyt. á húsaleigul. Í því frumv. var lagt til, að leiga eftir verbúðir, þ.e.a.s. leiga eftir bryggjur, palla, sjómannabústaði og sjóhús, lúti sömu ákvæðum og leiga húsnæðis almennt samkvæmt núgildandi húsaleigul. Eins og hv. þm. er kunnugt, þá eru nú fram komnar fleiri breyt. við l. þessi en þetta frv. mitt, og tveir hv. þm. úr allshn. hafa nú borið fram brtt. á þskj. 301, sem fer mjög í sömu átt og mitt frv. Út af þessum ýmsu breyt., sem menn vilja gera á húsaleigul., hafa spunnizt miklar umr. hér í hv. d.
Vegna þess, sem hv. þm. A.- Sk. hélt fram hér í ræðu sinni áðan, þá verður eigi hjá því komizt að dvelja aðeins lengur við einstök atriði í viðskiptum austfirzkra sjómanna við kaupfélagið í Hornafirði. En áður en ég ræði þessi einstöku atriði, þá vil ég með nokkrum orðum minnast á brtt. á þskj. 301, sem er, eins og áður var sagt, borin fram af tveim hv. nm. allshn. Ef þessi brtt. verður samþ., þá er slegið föstu, að þeir, sem leigja út verbúðir, lúti sömu l. og aðrir leigusalar húsnæðis í landinu, og eins og ég gat um, þá er þetta einmitt hið sama og ég fer fram á í mínu frv. á þskj. 143.
Enginn mælir því í gegn, að leiga eftir sjómannabústaði ætti að heyra undir núgildandi l. um húsaleigu, og enginn mælir því í gegn, að leiga eftir sjóhús lúti sömu reglum. Þetta tvennt, leiga eftir sjómannabústaði og sjóhús er yfirgnæfandi meirihluti af verbúðarleigunni. Það, sem eftir er, er leiga á bryggjum og pöllum. Nú hafa leigusalar komizt hjá ákvæðum núgildandi húsaleigul. aðeins vegna þess, að þeir færa leigu eftir palla og bryggjur undir leigu af sjóhúsum og sjómannabústöðum, hafa gefið þessu annað nafn og þannig sloppið. Nú leikur enginn vafi á því, að leiga af bryggjum og pöllum er nátengt hinu tvennu, svo að hún ætti því að heyra undir sömu ákvæði. Till. á þskj. 301 fer fram á, að núgildandi ákvæði um húsaleigu nái einnig til alls þessa. Annað atriði í till. á þskj. 301 er það, að hafi leiga verið greidd í aflahlut, þá skuli leigusali ekki njóta neinnar verðhækkunar, sem orðið hafi á fiskinum, heldur sitja við sama borð og aðrir húseigendur í landinu og fá leiguna aðeins hækkaða eftir húsaleiguvísitölu. Í sambandi við þetta hefur verið bent á, að á einum stað væri okrað á þessari leigu. Það hefur verið játað hér í umr., að einn bátur hafi á síðustu vertið orðið að greiða um 13 þús. kr. í verstöðvarleigu á þessum stað, þ.e. Hornafirði, eða yfir 10 þús. kr. hærra en samsvarandi bátar í útgerðarstöðvum við Faxaflóa hafa greitt á sama tíma. Þetta þýðir það, að hver háseti á þessum bát hefur misst um 500 krónur af hlut sínum fyrir það, hvað leigan var hærri á þessum stað en við Faxaflóa. Þessu hefur ekki verið mótmælt hér í hv. d. Mér finnst nú ekki nema eðlilegt, að sjómenn vilji létta af sér þessum skatti, sem kaupfélagið á þessum stað (Hornafirði) leggur á þá. Sama máli gegnir og með útgerðarmennina, nema hvað þeir misstu ekki 500 krónur, heldur 5000 fram yfir það, sem þeir hefðu þurft að greiða við Faxaflóa.
Sjómenn og útgerðarmenn hafa gert ítrekaðar tilraunir til þess að semja við eiganda útgerðarstöðvanna í Hornafirði um réttlátari leigukjör, en slíkir samningar hafa jafnan farið út um þúfur vegna óbilgirni kaupfélagsstjórans. Það er því ekki nema eðlilegt, að fram komi á Alþ. breyt. í þá átt, að þetta okur verði bannað með lögum.
Það er athyglisvert nú, .þegar öll blöð og flokkar og ekki sízt hæstv. ríkisstj. talar um, að létta þurfi af vélbátaútgerðinni því okri, sem á henni hvílir, að fram skuli koma á hv. Alþ. raddir, sem mæla slíku okri bót, sem hér hefur verið lýst, og ótrúlegt er, að Alþ. láti slíkt athæfi líðast öllu lengur. Nú er svo komið hjá vélbátaútgerðinni, að okur á beitu er úr hófi fram. Sama máli gegnir um allar véla- og bátaviðgerðir, þegar leitað er til vélsmiðja eða slippfélaga. Það er von mín, að hæstv. ríkisstj. reyni með l., sem hún hefur fengið, að fyrirbyggja þetta óheyrilega okur.
Það er eigi síður óhæfa, að ein útgerðarstöð skuli taka 10 þús. krónum meira fyrir verbúðaleigu eftir einn bát en útgerðarstöðvar við Faxaflóa. Brtt. á þskj. 301 er til mikilla bóta, og stefnir að því að fyrirbyggja þetta okur á verbúðaleigum.
Hv. þm. A.- Sk., sem í þessari hv. d. hefur tekið sér það hlutverk að reka erindi kaupfélagsins á Hornafirði í þessu máli, hefur sagt söguna eftir heimildum, sem ég býst við, að séu frá Jóni Ívarssyni kaupfélagsstjóra. Hv. þm. sagði í síðustu ræðu sinni, að þetta háa gjald eða nokkur hluti þess séu umboðslaun kaupfélagsins, sem annars hefði lent í höndum fiskkaupmanna. Á þessum ummælum hv. þm. A.-Sk. sést, að hann er gerókunnugur öllum málavöxtum, og vil ég nú skýra frá hinni réttu hlið málsins. Útgerðarmenn í Neskaupstað hafa stofnað með sér félag, sem útvegar skip til að flytja fiskinn á erlendan markað. Félagið fær 3% í umboðslaun frá hinum færeysku skipaeigendum. Útgerðarmennirnir njóta því þessa gjalds sjálfir. Þegar svo til Hornafjarðar kemur, þá bannar kaupfélagið þeim að halda þessu áfram, heimtar að fá að útvega fisktökuskipin og stingur 3% umboðslaununum í sinn vasa.
Þetta er hið sanna í málinu, en ekki það, sem hv. þm. A.- Sk. sagði, sem ég vona, að byggist á ókunnugleika hans til málsins. Þá gerir þessi hv. þm. tilraun til að láta menn halda, að þessi umræddi bátur, sem talið er að hafi greitt um 12–13 þús. kr. í verbúðaleigu á einni vertíð, hafi verið langhæstur með afla. Hann segist hafa ábyggilegar upplýsingar, sem sýni, að eigi skuli reikna með 13 þúsund krónu leigu, heldur með meðaltali sem hafi verið um 3000 krónur. Þetta er rangt með farið. Ef meðaltalsleigan hefur verið aðeins 3000 krónur, þá hefði meðaltals veiði á bát verið um 60 þúsund krónur, og miðað við núgildandi verð á fiski, er það í kringum 225 skp., og það er hlálegt að ætta að telja mönnum trú um, að meðalafli á Hornafirði á síðustu vertíð hafi verið 225 skp. Sannleikurinn er sá, að aflahæsti báturinn skar sig ekki úr með afla svo neinu verulegu næmi. Hann var aðeins hæstur, eða lítið eitt hærri en fimm aðrir bátar þarna. En þetta er í raun og veru gott dæmi um, hvernig haldið er á málunum hjá hv. þm. A.-Sk. Og til enn frekari sannana nefndi hv. þm. A.-Sk., að báturinn „Austri“ frá Eskifirði hefði t.d., greitt mun minna en meðalleiguna 3000 kr., en hv. þm. gat þess ekki, að þessi bátur var bilaður heima á Eskifirði meirihlutann af úthaldstímabilinu. Það er því ekki nema von, að hann greiði minna í leigu en hinir bátarnir, og þar að auki má geta þess, að þessi bátur tekur ekki nema hálft pláss á við aðra báta, og hefur helmingi færri menn. Hv. þm. A.-Sk. seildist langt í röksemdafærslu sinni til réttlætingar húsaleiguokri kaupfélagsins á Hornafirði á austfirzkri útgerð, en hámarki mun hann þó hafa náð, er hann gerði samanburð á verbúðaleigunni eystra og húsaleigu alþingismanna hér í Rvík. Við þann samanburð komst hann að þeirri niðurstöðu að varla hefði kaupfél. gengið eins langt og hótelin hér í Rvík.
En hver er svo munurinn á húsnæðinu í verbúðunum og á hótelunum?
Aðbúnaðurinn í verbúðunum er þannig, að menn verða oft að sofa þar í sjóklæðunum, því þar blæs og snjóar inn á menn. Það er alkunnugt mál, hvernig aðbúnaðurinn í verbúðunum er. Og að rétttæta svo verbúðaleiguna með því að gjaldið eftir þær sé ekki hærra en alþm. verði að borga fyrir herbergi hér í Reykjavík, það kalla ég að ganga nokkuð langt. Það, sem aðallega er umdeilt í þessu verbúðarmáli, er þetta: Á með skýlausum lagastaf að ákveða, að þeir aðilar, sem eiga og leigja út verstöðvar, skuli búa við sömu lög og reglur og aðrir þeir, sem leigja út húsnæði, eða eiga verbúðaeigendur að hafa ótakmarkaðan rétt til þess að okra á leigunni eins og nú er?
Þá hélt hv. þm. A.-Sk. því fram, sínu máli til stuðnings, að þeir á Hornafirði væru ekki frekir til fjár, og þeir hefðu ekki gengið eins langt í ýmsum kröfum og heimilt hefði verið, og því væri ótrúlegt, að þeir hefðu gengið of langt í leigu á verbúðunum. Hann sagði, a ð þeir hefðu t.d.. ekki notað sér það ákvæði útsvarslaganna að heimta skiptingu útsvars sjómanna og útgerðarmanna, sem komið hefðu til Hornafjarðar. Þetta er alveg rangt með farið hjá hv. þm. Mér er kunnugt um, að við í Neskaupstað höfum á hverju ári fengið kröfur frá Hornafirði um að fá skiptingu á útsvari vegna sjómanna og útgerðarmanna þar. Því var kastað hér að mér af manni, sem hefur haft með höndum oddvitastörf á Eskifirði, að slíkar kröfur kæmu þangað á hverju ári, svo að þetta er algerlega rangt hjá þessum hv. þm.
Hv. þm. A-Sk. sagði, að það væri ekki skemmtilegt, að hann hefði neyðzt til þess að taka hér upp varnir í þessu máli. Já, það er raunar mikil neyð, þegar málið liggur fyrir eins og hér hefur verið upplýst að gerast málsvari þess og heimta þau sérréttindi til handa kaupfélagsstjóranum á Hornafirði, að hann fái að taka jafnóheyrilega leigu af útgerðinni og hann hefur gert síðusta ár. Það er mikil neyð að vera settur í að verja slíkt mál og reyna að koma hér inn brtt., sem yrði til þess, að kaupfélagsstjórinn á Hornafirði gæti haldið áfram að reka þessa iðju sína, en sú brtt., sem hv. þm. ber fram, miðar að því að viðhalda sama óréttlæti og ríkt hefur á Hornafirði að undanförnu. Í brtt. hans stendur á þessa leið:
„Öll ákvæði þessara laga um íbúðarhúsnæði gilda eftir því sem við á einnig um leigu á húsum, bryggjum og pöllum til fiskibáta og fiskiskipa.
Sé leiga eftir slík hús, bryggjur og palla greidd með aflahlut, getur leigutaki eða leigusali krafizt, að metið sé, hve stór sá aflahlutur skuli vera.“
Hvers vegna er verið að áskilja sér rétt til að taka leiguna í aflahluta, þó að eigi að meta, hvað hann skuli vera mikill? Það er vegna þess, að það er hægt að teygja það eins og hrátt skinn endalaust, hvað aflahluturinn eigi að vera mikill. Hitt er afgerandi, ef sá, sem leiguna afhendir á Hornafirði, er settur undir sömu l. og aðrir og hann skuli ekki fá að hækka leiguna nema eftir sama hlutfalli og aðrir.
Ég hef bent á, að þó að svo kunni að vera að nokkru leyti, að kaupfélagið á Hornafirði, sem hefur leigt verbúðirnar undanfarin aflaleysisár gegn ákveðnum aflahluta, hafi fengið tiltölulega Iítið fyrir verstöðvarnar, þá er kaupfélagið nú í síðustu tvö ár meira en búið að jafna þann leik, því að leigan, sem kaupfélagið hefur tekið síðasta ár, mun vera meiri en allar verstöðvarnar hafa kostað kaupfélagið frá upphafi.
En ef það mætti verða nokkuð til að sætta hv. þm. A.- Sk., þá vil ég taka fram, að þótt þessi breyt. verði gerð á húsaleigul., þá er síður en svo, að viðskiptum austfirzkra sjómanna og útgerðarmanna við Jón Ívarsson og kaupfélagið sé þar með lokið, því að það er aðeins einn liður í þeim viðskiptum, því að þótt þessi breyt. yrði samþ., þá hefur kaupfélagið eftir sem áður óbundnar hendur t.d., um gjald fyrir beitugeymslu. Útgerðarmenn hafa orðið að sætta sig við það undanfarin ár að greiða 4–5 sinnum meira fyrir geymslu hverrar síldartunnu á Hornafirði en heima í sínum eigin íshúsum. Þó að sú till., sem hér liggur fyrir og ég hef aðallega gert að umtalsefni, verði samþ., þá eru þau viðskipti ekki útkljáð með því. Kaupfélagið getur líka þrátt fyrir þetta sett upp allt vöruverð, þegar sjómennirnir koma suður, til þess að hægt sé að græða á þeim svo sem frekast er unnt. Þessi brtt. kemur ekki heldur í veg fyrir slíkt. Það er ekki heldur með þessu gert út um lifrarverðið. Það er eðlileg óánægja hjá sjómönnum þar eystra fyrir að fá þar ekki fyrir lifrina nema 1/3 verðs, miðað við það, sem greitt er fyrir lifrina annars staðar á landinu. Út af þessu hafa alltaf verið meiri og minni deilur, og þær leysast ekki heldur nú. Það eru því mörg atriði, sem óleyst eru, þó að þetta leysist, sem hér um ræðir.
Ég ætla svo að lokum aðeins að minnast á það atriði, að kaupfélagið áskilur sér rétt til að selja aflann, sem bátarnir veiða. Eins og ég lýsti áður, hafa sjómenn og útgerðarmenn myndað samtök um að útvega sér skip til þess að annast flutning aflans á erlendan markað. Þeir hafa gert meira en að fá þessi 3% umboðslaun sér til handa, sem annars hefðu farið til óþarfra milliliða. Þeir hafa einnig unnið það, að mörg fiskiskip, sem hafa siglt með afla til Englands, hafa flutt aftur kol og salt handa útgerðinni upp aftur, og á þann hátt hafa útgerðarmenn og sjómenn getað fengið kol og salt með hagkvæmari kjörum en almennt hefur tíðkazt. Þessu er líka kippt úr höndum þeirra með því, að kaupfélagið áskilur sér rétt til að ráða yfir þessum skipum. Útgerðarmenn og sjómenn hafa ekki aðeins þannig fengið 3% umboðslaun miðað við verðmæti fiskjarins, heldur hafa þeir einnig stundum náð enn þá hagstæðari samningum við fiskikaupaskipin, þegar þeir hafa verið óheftir með sölu aflans. Þannig hafa fiskimennirnir stundum samið um ákveðinn hluta af hagnaðinum, sem útflutningur aflans og salan erlendis hefur gefið. Þannig sömdu útgerðarmenn í Neskaupstað á síðasta sumri við eitt af beztu skipunum, þannig að útgerðarmenn og sjómenn fengu 1/4 af hagnaðinum af að flytja út fiskinn og selja hann. Þessi möguleiki er einnig sleginn úr höndunum á útgerðarmönnunum, þegar kaupfélagið setur upp það óvenjulega skilyrði að áskilja sér rétt til að selja afla þeirra.
Ég held, að ég þurfi svo ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég vil þó að endingu benda á, að sú brtt. við húsaleigul., sem fram er borin á þskj. 301, flutt af hv. 4. þm. Reykv. og hv. þm. Siglf., er til stórra bóta fyrir sjómenn og útgerðarmenn um leigu á verbúðum. Ég efast ekki um, að sjómenn og útgerðarmenn munu fylgjast með því með athygli, hvernig þessari till. reiðir nú af, hvort hv. þd. vill leyfa það áfram, að slík okurstarfsemi gagnvart útgerðarmönnum og sjómönnum, sem hér hefur að nokkru verið lýst, fái að haldast áfram eða hvort það er vilji hv. þd. að létta af þessum okurliðum eins og mörgum öðrum útgjaldaliðum, sem mætti nú létta af útgerðinni. Það er gott dæmi um, hvernig þingið vill bregðast við málum útgerðarmanna og sjómanna, hvernig það tekur þessu máli. Ég vænti þess, að menn láti það ekki á sig fá, þó að fram komi rödd frá þeim aðila, sem vill gína yfir þessar í sérstöðu, sem hann hefur haft, en samþykki till. á þskj. 301, sem miðar að því að afnema óréttlát leigukjör á verbúðum.