03.03.1943
Efri deild: 68. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í B-deild Alþingistíðinda. (750)
116. mál, húsaleiga
Bjarni Benediktsson:
Hv. frsm. allshn. hefur nú gert grein fyrir því, hver afstaða allshn. sé til þessa frumvarps, og er ekki miklu við það að bæta.
Húsaleigul. hefur verið ætlað tvöfalt hlutverk. Í fyrsta lagi hefur þeim verið ætlað að koma í veg fyrir óeðlilega hækkun á húsaleigu og í öðru lagi að draga úr þeim miklu húsnæðisvandræðum, sem hafa verið samfara ófriðnum og veru setuliðsins hér. Þetta hefur haft í för með sér róttækar takmarkanir á eignaréttinum, sem gera hag húseigenda að verulegu leyti verri en nokkurra annarra þegna þjóðfélagsins. L. eru þó ekki sett að ófyrirsynju, og er nauðsynlegt, að þau haldi gildi sínu meðan sama ástand helzt, en jafnframt verður að ganga þannig frá þeim, að þau halli ekki að óþörfu á húseigendur. Það verður heldur að reyna að ná þeim tilgangi, sem þarf, með þeirri lempni og lipurð, sem mun heppilegust til þess, að mál verði leyst á happasælan hátt. En ég verð að segja það, að sum ákvæði húsaleigul. sem að víssu leyti eru mikil réttarskerðing, hafa þó komið of seint. Eitt helzta ráðið og langsamlega það sanngjarnasta til þess að draga úr vandræðunum var það að láta innanbæjarmenn sitja fyrir utanbæjarmönnum um húsnæði. Lögin um þetta fengust ekki fyrr en seint og um síðir og eftir að mikill skaði var skeður í þessu efni. Fyrirmælin voru þá heldur ekki í fyrstu fullkomin, en það er bætt mikið um þau með þessu frv., sem hér er komið fram. En lögregluvald og ríkisstj. hafa auk þess ekki framfylgt nægilega strangt settum reglum í þessum efnum.
Í þessu sambandi kem ég að höfuðgalla 1., en það er sá tvískinnungur, sem verið hefur í framkvæmd þeirra. Þegar I. voru sett, v ar húsaleigan. fengið mikið vald í hendur. Hún fékk ekki einungis vald til þess að ákveða, hvenær mætti segja upp húsnæði, heldur fékk hún einnig rétt til þess að taka húsnæði, sem ekki var fullnotað, og ráðstafa því handa húsnæðislausu fólki. En n. virðist hafa verið hrædd við að beita þessu valdi og hefur reynt að skjóta sér undan með því að halda því fram, að það væri hlutverk viðkomandi bæjarstj. að beita þessu valdi. Þetta var að skjóta sér undan lagabókstafnum, enda skorti bæjarstj. lögákveðið vald til þessa og gat hún því aldrei beitt sér. Bæjarstj. Rvíkur hefur hins vegar unnið stórkostleg átök til þess að ráða bót á húsnæðisvandræðunum með því að láta gera stórfelldar byggingarframkvæmdir, sem kosta milljónir króna. Ég skal þó ekki dæma í þessu máli, enda mundi ég varla verða talinn þar hlutlaus dómari. En það er víst, að lagabókstafurinn hefur ekki haft þá þýðingu, sem til var ætlazt vegna þessa tvískinnungs, þar sem tveir aðilar hafa deilt um það, hver ætti að framkvæma það, sem gera þyrfti, en það má segja, að þetta hafi orðið báðum til lítils sóma. Ég tek þetta ekki hér upp til þess að deila um það, heldur til þess að benda á, að þegar nú er verið að endurskoða lögin, þá þarf að haga fyrirmælum þeirra svo, að þessi tvískinnungur verði úr sögunni, þannig að hér eftir verði ótvírætt aðeins einn aðili, sem fari með framkvæmdarvaldið í þessum málum. Ég tel það einn höfuðkost stjfrv. eins og það lá fyrir í upphafi, að þar var stigið stórt spor í þessa átt, sem ég skildi vel, þegar ég sá, að einn þeirra, sem hafði unnið að samningu frv., var varaformaður húsaleigun., og hann vissi vel um þá annmarka, sem á þessu höfðu verið. Þá var það einnig tekið upp í frv., og tel ég það skynsamlegt, að bæjarstj. var ætluð þátttaka í skipun húsaleigun., og var þar með tryggt, að betri samvinna yrði milli húsaleigunefndar og bæjarstjórnar en áður hafði verið. Þannig hefðu bæjarstjórn og ríkisvald getað tekið saman höndum í húsaleigunefnd og komið fram sem einn aðili út á við. Háttv. Nd. virðist ekki hafa haft fullan skilning á þessu mikilvæga framkvæmdaratriði og sama máli gegnir um meiri hluta allshn.
Ed. Í Nd. voru sett inn í frv. ákvæði, sem hljóta að leiða til sama tvískinnungsins og árekstranna, sem verið hafa, og geta leitt til þess, að fyrir yfirvöldunum verði lítið úr framkvæmd lagabókstafsins vegna þess, að alltaf verður hægt að deila um það, á hverjum ábyrgðin eigi að lenda. Þessu þarf nauðsynlega að breyta, og þetta er veiki punkturinn í frv. eins og það nú liggur fyrir, eftir að háttv. Nd. breytti því til hins verra. Við hv. þm. Seyðf. höfum borið fram 4 brtt. á þskj. 481 við 5. gr. frv., sem miða að því að bæta úr þessum annmörkum frv. og taka eðlilegum afleiðingum af þeim umbótum. Það leit út fyrir, að hv. frsm. allshn. hefði ekki kynnt sér til hlítar efni þessara brtt., því að hann sagði, að við vildum hafa yfirstj. þessara mála hjá húsaleigun., en að þeir teldu, að hér væri um svo mikið mál að ræða, að fulltrúar borgaranna sjálfra, bæjarstj. ættu að hafa yfirstjórnina með höndum. Þetta er misskilningur hjá hv. frsm. Við ætlumst ekki til, að þetta verði svo, heldur heyri endanlegar ákvarðanir ýmist undir félmrh. eða yfirhúsaleigun., þannig að þær ráðstafanir í 5. gr., sem mestu máli skipta, megi húsaleigun. ekki gera nema með samþykki félmrh. Hitt er alveg augljóst, að það er mjög óheppilegt að blanda bæjarstjórn inn í þessi mál, a.m.k. eins og gert er ráð fyrir í frv. eins og það er nú. Látum svo vera, að þetta hefði verið látið standa eins og stjfrv. gerði ráð fyrir í upphafi, að skömmtun mætti ekki taka upp nema með samþykki bæjarstj. En ég tel hitt samt eðlilegra, að félmrh. veiti samþykki sitt, enda er eðlilegast, að sams konar reglur gildi um þetta um allt landið.
Ef t.d. bæjarstj. eins bæjar tæki upp húsnæðisskömmtun hjá sér, en það væri ekki gert annars staðar, þá gæti það orðið til þess, að innflutningur fólks til þessa bæjar ykist mjög og allt yrði því í sama öngþveitinu og áður. Í stað þess að létta af vandræðum gæti þetta því orðið til þess að beina fólksstraumnum í ákveðnar áttir og umturna þannig öllu jafnvægi í landinu. Það er því sjálfsagt og eðlilegt, að félmrh. hafi með höndum æðsta úrskurðarvald í þessum málum. Segja má raunar að þetta felist að nokkru í 6. gr., en það er svo umvafið, að óvíst er, að það komi að fullum notum, og er þess vegna betra að hafa það eins og við hv. þm. Seyðf. leggjum til í l. brtt. okkar að taka bæjarstj. alveg út úr þessu, en láta félmrh. segja til um það, hvort skilyrði til skömmtunar séu fyrir hendi eða ekki. Með því móti er líka helzt líklegt, að jafnrétti geti haldizt milli borgaranna í þessu ákaflega viðkvæma máli.
Ég vil vekja athygli á því, að þótt við viljum hafa þetta svo, þá takmörkum við á engan hátt með þessu möguleikana til skömmtunar, ef skilyrði til hennar eru annars fyrir hendi. Ég vil svo benda á það, að eins og 3. mgr. 5. gr. er nú orðuð, brýtur hún í bág við 2. mgr. sömu gr., þar sem í 2. mgr. segir, að húsaleigun. skuli meta, hve mikið húsnæði afnotahafi þurfi til eigin nota, en í 3. mgr. segir, að setja skuli ákvæði um þetta í reglugerð, sem félmrh. staðfestir. Í 2. málsgr. 5. gr. segir aftur á móti, að það fari eftir mati húsaleigun., hvort aðili geti verið án húsnæðis og hvort unnt er að skipta því úr íbúð. Með þessu er því slegið föstu í 2. málsgr., sem er kjarni þessa máls, að það verði aldrei settar um þetta mál almennar og ósveigjanlegar reglur, og ég vil fullyrða, að það er ekki hægt, bæði vegna þess, hversu húsin eru mismunandi byggð, og eins vegna mismunandi stærðar fjölskyldna og ýmissa annarra aðstæðna. Það er ekki hægt að fá um þetta ákveðinn mælikvarða eins og þarna er ráðgert. Það verður að vera eftir mati þar til settra yfirvalda á hverjum tíma, hvort unnt sé fyrir aðila að vera án húsnæðis og hvort unnt er að skipta því úr. Það er ekki hægt að segja, að unnt sé að skipta húsnæði úr, þó að herbergin séu svo og svo mörg, ef ekki er hægt að komast inn í innri herbergi, nema með því að ganga í gegnum það fyrsta, þá er ekki hægt að skipta húsnæðinu, nema með því að gera á því breyt. Þess vegna er það ljóst, að hámarksákvæði 3. málsgr. brýtur í bág við meginreglu 5. gr., og er því þegar af þeirri ástæðu sjálfsagt að fella 3. málsgr. niður. Þá legg ég áherzlu á það í aths. mínum við 5. gr., að ég tel það vera hreinustu frágangssök að ætla að láta slíkan aðila sem bæjar- og sveitarstj. verða yfirdómstól um það, hvort unnt sé fyrir aðila að vera án tiltekins húsnæðis og hvort unnt sé að skipta því í tvennt. Þarna er um að ræða hreint matsatriði, sem annaðhvort verður eðli málsins samkvæmt að fela dómstólunum eða þá einhverjum öðrum svipað völdum aðila, sem hefur skilyrði og möguleika til þess að líta hlutlaust á málsaðstöðu. En bæjar- og sveitarstj. eru pólitískir aðilar, og það þarf ekki mikla þekkingu á þeim aðilum til þess að vita, að bæði umræður um slík einkamál eins ag þessi, sem út af fyrir sig yrðu ákaflega ógeðfelldar og leiðar á opinberum fundum, og eins úrskurðirnir sjálfir, mundu blandast meira og minna pólitísku og persónulegu tilliti, sem mundi gera framkvæmd þessara ákvæða erfiða. Ég er hræddur um, að þetta ákvæði yrði með öllu óþolandi í framkvæmd, og hreinasta plága, sem að engu gagni yrði. Þess vegna, hvað sem öðru líður varðandi breyt. á þessu í 5. gr., þá tel ég alveg sjálfsagt að yfirmatið, á því, hvort skilyrði til þvílíkrar skömmtunar á húsnæði séu fyrir hendi eða ekki, sé tekið úr höndum bæjar- og sveitarstj. og fengið í hendur einhvers annars yfirdómstóls. Við höfum bent á yfirhúsaleigun., sem eftir l. og eðli málsins sýnist vera líklegur aðili til þess að hafa slík málefni með höndum. Ef einhver annar bendir á líklegri dómsaðila í þessum efnum heldur en þessa n., þá er ég, og ég veit meðflm. minn einnig, fús til þess að taka það til velviljaðrar yfirvegunar. En það er alveg ljóst, að þetta ákvæði má ekki svo vera, ef menn vilja ekki gera úr þessu hreinasta skrípaleik.
Ég hef þá gert grein fyrir þrem af fjórum brtt., en um þá síðustu get ég orðið stuttorður. Hún er á þá leið, að ríkissjóður og hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarsjóður skuli sameiginlega ábyrgjast greiðslu leigu eftir húsnæði, sem tekið er eftir þessari lagaheimild, svo og greiðslu skaðabóta fyrir spjöll á hinu leigunumda, er leigutaki telst eiga sök á. Ég vil í þessu efni benda á það, að sjálf ríkisstj. hefur í frv. sínu lagt það til, að ríkissjóður bæri helming af þessum kostnaði, — frv. hennar varð eigi skilið á annan veg. Þar með viðurkenndi stj., að það væri ekki síður ríkisins mál heldur en sveitarstj. að bæta úr þeim ágöllum, sem hér eru. Að svo miklu leyti sem hægt væri að kenna einhverjum íslenzkum aðila um það ástand, sem nú ríkir í þessum málum, sem ég vil ekki segja, að sé hægt, þá væri helzt að leita orsakanna, sem til þess liggja, á vettvangi ríkisins miklu frekar heldur en hjá bæjar- og sveitarfélögum. Það getur því ekki ver ið nema sanngjarnt að þessu sé skipt til helminga á milli ríkissjóðs og bæjar- og sveitarfélaga.
Það eru ýmis fleiri ákvæði í þessu frv., sem ágreiningi geta valdið, sérstaklega vildi é g benda á það, sem ég hreyfði í n., að það er ekki alveg ljóst í 8. gr., hvernig húsaleigun. á að starfa. En vegna þess að sú skipun, sem þarna er sett, er samkvæmt till. manns, sem lengi hefur að þessum málum starfað, sá ég ekki ástæðu til þess að fara að umbæta hans till. og lét því hjá líða að flytja brtt. Ég vil samt segja það, að mér kæmi ekki á óvart, þó að nokkur ágreiningur yrði um þetta atriði, þegar til framkvæmda kæmi. Að öðru leyti get ég lokið máli mínu. Ég áskil mér rétt til þess að mynda mér afstöðu til 5. gr. eftir því, hvernig fer um þær brtt., sem ég hef leyft mér að bera fram. Að öðru leyti mun ég taka afstöðu til brtt., sem fram kunna að koma, eftir því sem efni standa til.