04.03.1943
Efri deild: 69. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (753)
116. mál, húsaleiga
Félmrh. (Jóhann Sæmundsson):
Herra forseti. — Mig langar til að segja nokkur orð út af frv. því, sem fyrir liggur. Það eru hér um bil allir sammála um, að nauðsynlegt var að setja húsaleigul., en mörgum finnst gengið á rétt húseigenda með þessu frv. Ég verð samt að efa, að kostur húseigenda sé verri en margra annarra þegna, t.d. þeirra, sem hafa átt sparifé og ætlað sér að lifa á því. Nú er svo komið vegna dýrtíðarinnar, að það fé er lítils virði. Bankarnir eru hættir að greiða vexti af innistæðum, sem eru hærri en 25 þús. kr., en það, sem binding húsaleigunnar felur í sér, er ekki annað en vaxtalækkun. En það er annað, sem gert er með húsaleigul. Það á sér stað skerðing á ráðstöfunarrétti yfir eign, og það eru líka höfð afskipti af gjaldinu fyrir afnotaréttinn.
Það, sem gerði það að verkum, að ég stóð upp, er, að mig langar til að láta það koma fram í d., að nokkur breyt. hefur verið gerð í Nd. frá því, sem stóð í frv. frá ríkisstj. Einkum vil ég benda á þá viðbót, sem sett var inn í 4. gr., „enda sé húseiganda áður veittur þriggja daga frestur til þess að leigja húsnæðið innanhéraðsfólki til íbúðar“. Þessi gr. fjallar um viðurlög við því, ef íbúðarhúsnæði er tekið í leyfisleysi til annars en íbúðar, og þegar svo er gert, getur húsaleigun. skyldað húseiganda til að taka upp fyrri notkun húsnæðisins. Getur hún þá ráðstafað húsnæðinu samkv. 5. gr. Ef viðbótin, sem ég nefndi áðan, er látin standa, er þarna viðsjárverður galli á frv., því að þótt eigandi ráðstafi húsnæðinu innan þriggja daga, er ekki þar með sagt, að hann ráðstafi því til húsnæðislauss fólks. Það eru dæmi til þess, að húsnæði hefur verið tekið og breytt í skrifstofur. Húsaleigun. hefur fundið að því, og þá hefur verið brugðið við og húsnæðið leigt fálki, sem aldrei hefur flutt inn. Það má ekki vera hægt að ganga á þetta lagið.
5. gr. var breytt mikið í Nd. 2. málsgr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Bæjar- og sveitarstj. getur, þegar alveg sérstaklega stendur á, ákveðið að taka til ráðstöfunar handa húsvilltu fólki tiltekna hluta af íbúðarhúsnæði, sem afnotahafi getur, að mati húsaleigun., án verið, og unnt er að skipta úr“ o.s.frv. Ég innti eftir því í Nd., hvað átt væri við með orðunum „þegar alveg sérstaklega stendur á“. Ég fékk það svar frá nm. allshn., að hann skildi þetta svo, að átt væri við það, ef bærinn t.d., yrði fyrir loftárás. Það hlýtur sem sé að eiga að vera eitthvað meira um að vera en að svo og svo margt sé af húsvilltu fólki. Ef ætlunin er að túlka þetta þannig, kemur það að litlu gagni, en þó að þessi skömmtunarheimild verði sett, hygg ég, að ekkert þurfi að óttast. Það vakir fyrir ríkisstj., að heimildinni verði beitt eins vægilega og mögulegt er. Við skulum hugsa okkur, að einhleypur maður hafi t.d.. fjögurra herbergja íbúð. Það yrði farið til hans og honum sagt, að hann yrði að láta af hendi hluta af íbúðinni, en honum yrði jafnframt gefinn kostur á að ráðstafa þeim hluta sjálfur handa kunningja sínum eða ættingja, sem svo fengi húsaleigun. til ráðstöfunar það, sem losnaði. Það þyrfti ekki að koma til neinna vandræða fyrir fólk, enda sé ég ekki betur en að þetta sé réttmætt, þegar ástandið er svo slæmt, að 44 manns hafa búið vetrarmánuðina í gisnum skúrum á íþróttavellinum, sem eru gerðir handa íþróttamönnum til smáafnota um hásumarið. Þegar neyðin er orðin svo mikil, er óverjandi að amast við því, þó að sett séu í l. ákvæði um, að þeir, sem bezt eru settir, þrengi að sér, ekki sízt, þegar þess er gætt, að það geti orðið með vægilegum hætti.