04.03.1943
Efri deild: 69. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

116. mál, húsaleiga

Jónas Jónsson:

Þetta mál hefur mikið verið rætt og mikið athugað, en ég vil þó gera nokkrar athugasemdir við það og sérstaklega hvað snertir Rvík. Ég tel þetta frv. vera á misskilningi byggt. Það, sem frv. á að gera, er að tryggja sem flestu fólki samastað, og væri slíkt ekkert athugavert, ef Rvík væri öruggasti staðurinn á Íslandi bæði hvað snertir atvinnumöguleika og annað. Ef maður athugar þetta, þá sést, að þessu er ekki þannig varið. Styrjöldin er nú í fullum gangi, og í erlendum blöðum er Rvík talin við hlið hinna hernaðarþýðingarmestu staða svo sem Singapore, Gíbraltar og Malta. Enn þá hefur að vísu ekki verið barizt hér, en ávallt má vænta þess, að árás verði gerð hér á Rvík.

Við vitum, að helzti flugvöllur setuliðsins er svo að segja inni í miðjum bænum, svo að enginn staður á landi hér er hættulegri en Rvík, og ætti því frekar að leggja áherzlu á að flytja fólk á brott héðan heldur en gera ráðstafanir til þess að tryggja því varanlegan samastað. Þetta hafa menn skilið og gert ráðstafanir til þess, að hægt sé að flytja fólk burt ef í nauðir rekur, og enn fremur hefur fjöldi barna og kvenna verið fengið íverustaðir yfir sumartimann.

En athugum nú, burtséð frá hættum þeim, sem yfir Rvík vofir í stríði þessu, hvernig framtíðarvinnustaður Rvík verður eftir stríðið. Ég tel engan stað hér á landi jafnlíklegan til atvinnuvandræða. Fyrir stríðið hafði Rvík togaraútgerð sem aðalundirstöðu. Nú hefur togaraflotinn gengið úr sér sem eðlilegt er, þar eð hann nú siglir með fisk til Englands og fer þannig yfir eitt hið mesta hættusvæði veraldarinnar. — Það, sem eftir er nú af flota þessum, er úr sér gengið, slitið og gamalt. Enginn getur því verið of viss um atvinnumöguleika að stríðinu loknu.

Mér finnst því eðlilegra að flytja fólk burtu héðan, heldur en vera að hlynna að því, þegar útlitið er ekki betra en þetta. — Fyrir stríð höfðu Reykvíkingar þó togaraflotann að styðjast við og var þó atvinnuleysi, sem engin víssa er fengin fyrir því, að hægt verði eftir stríð að endurnýja hann sem skyldi. Ef höfundur þessa frv., hæstv. félmrh., vill bæta úr húsnæðisvandræðunum hér, þá ætti hann fremur að gera það með því að flytja fólkið á öruggari staði, því að í Rvík er ekkert öryggi.

Mér finnst undarlegt, ef menn halda, að við framsóknarmenn getum verið fylgjandi þessu frv., þegar atvinnan í sveitunum dregst nú óðum saman sökum fólksstraumsins úr sveitum í kaupstaði, og hið ýtrasta er nú gert til þess að halda framleiðslunni í horfinu.

Fulltrúar dreifbýlisins geta ekki verið með þessum ráðstöfunum, því að þær fara í öfuga átt við hagsmuni sveitanna. Hið eina réttlætanlega er að flytja fólk úr þéttbýli í dreifbýli, þar sem þess er þörf. — Þetta ætti hæstv. félmrh. að athuga.

Ég gæti trúað, að það væru ekki fáir menn, sem kæmu útslitnir bæði í kauptúnunum og dreifbýlinu af of mikilli vinnu eftir þá miklu pressu, sem á það hefur verið lögð vegna þeirrar miklu fólksfæðar, sem skapazt hefur fyrir það, að vinnuaflið hefur sogazt til Rvíkur til hverfullar og sumpart skaðlegrar atvinnu.

Ég vil enn beina því til hæstv. ráðh., hvort honum sýnist ekki viðurhlutamikið að vita, að úti um allt land, bæði í sveitum og kaupstöðum, standa hús auð og meira en hálfauð, af því að fólkið hefur farið í þessa gullnámu, sem Rvík hefur verið álitin. Það er sagt, að sumt af þessu fólki búi í skúrum suður á íþróttavelli og ýmsum öðrum bústöðum, sem séu algerlega óviðunandi. En vill hæstv. ráðh. ekki heldur biðja um l. til að koma þessu fólki fyrir, með opinberum ráðstöfunum, ef ekki öðruvísi, þar sem húsnæði er og atvinnuskilyrði, heldur en að láta það vera hér í atvinnuleysi og eymd.

Ég kem þá að einu atriði, sem mig furðar á við meðferð málsins í Nd. Ég hef sagt persónulega við hæstv. ráðh., sem var að reyna að gera bragarbót við frv., að ég hafi talið, að öðruvísi hafi átt að að fara, þar sem verið er að reyna að tryggja húsnæði til handa því fólki, sem hingað er komið í leyfisleysi og athugaleysi á þessum stríðsárum. Frv. var þannig úr garði gert, áður en hæstv. ráðh. fór að skipta sér af því, — og hann gerði ekki breyt. á því, sem ég taldi nægilega, — að alþm., sem koma til bæjarins, og embættismenn eins og t.d.. Sigurður Hlíðar, sem kemur hingað til að gegna störfum fyrir ríkið, skólafólk í ríkisskólum, — í stuttu máli alþingismenn, embættismenn, sem kynnu að koma hingað til að vinna fyrir ríkið og skólafólk í skólum ríkisins, hefðu orðið að fá leyfi samkv. frv. eins og það var til að fá að koma í þennan bæ. Mér er spurn: Hefur heyrzt annað eins og að alþm. þurfi að fá leyfi hjá óviðkomandi n. til að fá að koma á þingstaðinn? Hefur heyrzt annað eins og að nemendur í ríkisskólum þyrftu að fá slíkt leyfi til að fá að koma í skólana eða að embættismenn ríkisins til að fá að vera á þeim stað, sem þeir stöðu sinnar vegna verða að vera á? Ég veit, að það var síðan fitlað við þetta, en ég tek þetta sem dæmi um hinn óforsvaranlega undirbúning frv. og að þm. Nd. misbuðu sjálfum sér og Alþingi með því að samþ. í hugsunarleysi, að þeir þyrftu að sækja um sérstakt leyfi til að mega koma á sjálfan þingstaðinn. Það er von, að fólk, sem lítið þekkir til þingsins, kasti hnútum að Alþ., þegar það getur komið fyrir, að það komist í gegnum margar umr. ákvæði, sem útilokar alþm. frá að koma á Alþ. — Ég býst við, að ég noti rétt minn til að tala aftur nú og við næstu umr., svo að ég mun ekki segja nú allt, sem ég hef að segja, en ég vil þá gefa nokkra hugmynd um, að hér fer allt saman, undirstaðan og frágangurinn, hroðvirknin og hirðuleysið um, hvað sæmd Alþ. getur minnst krafizt.

Ég kem þá að því, sem hefur nokkuð verið hreyft af öðrum hv. þm., en það er sú nýjung í frv. að rjúfa heimilisfriðinn. Þær ráðstafanir, sem hér er talað um, eru svo sérstakar, að ég leyfi mér að fullyrða, að dómgreind almennings vill ekki leyfa slíkt nema undir öðrum kringumstæðum. Ef hér gerðust þau sorgartíðindi, að hér yrði farið að berjast, hús eyðilegðust hér í bænum og fólk yrði að flýja héðan, þá er ég víss um, að sveitafólk og fólk í kaupstöðum úti um land mundi taka á móti íbúum þessa bæjar, eftir því sem föng væru frekast á, alveg eins og Rvíkurlúar, þegar jarðskjálftarnir voru á Suðurlandi 1896, tóku húsnæðislaust fólk og gerðu með því mesta miskunnarverk. Sama mundi það fólk gera, ef Rvík eða einhver annar partur landsins yrði fyrir slíkum árásum. Hitt fullyrði ég, að það er á móti allri réttlætistilfinningu almennings, að á Alþ. séu samþ. l., sem heimila óviðkomandi n. manna að taka hvaða heimili sem v æri og setja þangað með þriggja daga fyrirvara hvaða persónur, sem væri, sem þessari n. þóknaðist að koma fyrir þar. Ég get vel skilið, að kommúnistar þessarar d. skoði þetta mikinn sigur fyrir sig í allri sinni „revolution“, að slíkt ákvæði skuli komast í gegnum d. Ég vil fullkomlega reyna að setja mig í spor kommúnista, og ég tel eðlilegt eftir þeirra afstöðu, að þeir gleðjist yfir, hvað þeim og þeirra líkum hefur tekizt að blekkja menn fram að þessu. Ég vil engu um það spá, að kommúnistar verði eins glaðir, þegar búið er að ganga frá þessum l. Þeir ættu því að geyma sér þennan fögnuð yfir því skaðræði, sem þeir vona, að þeir hafi unnið, þar til síðar.

Ég held, að ég verði að segja frá því, hvernig þetta mundi líta út eftir till., sem kommúnistar í bæjarstj. hafa gert. Það sagði mér maður, hvernig þetta mundi verða í hans húsi eftir þeim till. Heimilisfólkið er hjón, þrjú hálfvaxin börn og ein stúlka, eða alls sex menn, Íbúðin er 4 eða 5 herbergi. Eftir þessum tillögum yrðu hjónin og vinnukonan að vera í einni stofu, börnin í annarri og svo sennilega einhver aðgangur að eldhúsi. Þetta er sá heimilisbragur, sem þessir menn vilja koma á heimilin. Þeir reikna út í fermetrum, hvað hver maður megi hafa mikið. Þetta er miðað við það, sem verst þekkist í „slumsunum„ í stórborgunum, og þannig var hugsun þeirra að gera Rvík. Sú hugsun mælir með sér sjálf. Nú er það ekki aðeins það, hvernig þetta mundi taka sig út, þegar búið væri að kasa fólkinu þannig saman. Ég tel það mikið lán, að einhver fremsti læknir landsins er orðinn félagsmálaráðh., því að ég treysti því, að hann komi í veg fyrir þá sýkingarhættu, sem af þessu getur stafað og út í er stefnt með þeim áróðri, sem liggur á bak við þetta frv. frá kommúnistum.

Ég kem þá að því, sem líka hefur verið athugað af öðrum mönnum, að fram að þessu hefur verið álitið, að fjölskyldurnar á heimilunum ættu að fá að lifa á sínum heimilum. Þetta er að áliti allra, sem eru ekki kommúnistar, undirstaða alls þjóðlífs. Þetta hefur verið eitt af því, sem íslenzka þjóðin í þúsund ár hefur fengið að njóta, að heimili hvers manns hefur verið hans friðaði reitur. Á þessu hefur þjóðlífið byggzt. Hvert heimili hefur haft sinn vígða reit út af fyrir sig, þar sem foreldrar, börn og aðrir heimilismenn hafa fengið að vera í friði. Nú á að rjúfa þetta virki. Kommúnistar hafa haft lag á að þrýsta þannig á, að menn, sem eru ekki trúaðir á sameignarskipulagið, hafa látið afskiptalaust, að hér er verið að rjúfa innsta virki þjóðlífsins. Hvernig

sem því er snúið, þá eiga fjölskyldurnar í landinu, sem eru ekki kommúnistískt sinnaðar, að eiga yfir höfði sér, að hægt sé að setja inn á heimili þeirra aðrar fjölskyldur eða eitthvert annað fólk. Ég get vel hugsað mér, að slík aðferð sem þessi geti orðið til þess, að margt af því fólki, sem verið hefur lengi í bænum, byggt hann upp á einn eða annan hátt og hefur eignazt sín eigin heimili, vilji ekki búa undir þessu og flýi bæinn. Verður þá eftir það fólk, sem hér er um að ræða, sem sennilega hefur ekki mjög djúpar rætur í bænum, en hefur borizt hingað með gullstraumnum, fólk, sem hefur hagnað af setuliðinu, sumt af því þannig, að hægt er að kenna í brjósti um það miklu fremur en áfella það, það er þjóðarsorg í sambandi við það, en ekki gleði. Ég get ekki hugsað mér það neinn ávinning, að fólkið, sem hefur byggt upp bæinn, sé hrakið burt, til þess að fórnardýr stríðsáranna gætu setzt í heimili þess, af því að ekki er hægt að vera þar lengur, þegar búið er með herfilegum hætti, sem er ósamboðinn siðaðri þjóð að taka af þeim þau dýrmætustu réttindi, sem menn hafa talið sig eiga, friðhelgi heimilisins. Eins og frv. kom frá Nd. og eins og það er nú, þá er þetta nokkuð mildað, þótt litið sé, en brtt., sem fram hefur komið um þetta, gengur ekki nærri því nógu langt.

Ég sé ekki, að hægt sé að ganga nema einu stigi lengra í þessum efnum, en það er ef n. gæti skipað svo fyrir, að t.d.. ekkjur og ekkjumenn, sem kynnu að eiga sín heimili, væru skylduð til að taka inn á sig heimilislausa menn eða konur af götunni. Þó að ég segi þetta sem spaug, þá er það það ekki, því að ég tel, að það sé ekki hægt að ganga nema þessu eina stigi neðar í vitleysunni, og það er að fara að bæta við í rúmin fólki, sem kommúnistar telja, að sé af einhverjum ástæðum hagur af að hafa í bænum. Þess vegna segi ég það, að þetta frv. verðskuldar sannarlega miklu meiri athugun en enn þá hefur verið gerð á því.

Ég hef hér aðeins tekið örfá atriði, þau stærstu, en hef frestað sumum. Það hefur áður verið rætt um aðra hlið þessa máls, þá sem snýr að fólkinu utan Rvíkur. Ég álit, að þetta mál sé svo mikil náma af vitleysum og fjarstæðum, að sem allra flestir hv. þm., sem sjá, hvert stefnir, eigi að nota þetta tækifæri til að kenna kommúnistum, að ekki er enn þá kominn tími til að boða íslenzku þjóðinni það, sem þeir eru að sýna í þetta skipti.