09.03.1943
Efri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (761)
116. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Um þetta mál urðu allsnarpar umr. síðast. Ég mun einkum snúa mér að því að svara hv. frsm. 9. landsk. og þá jafnframt hv. 5. landsk., því að svarræða hins fyrra byggðist á svari hins síðara. Hv. 5. landsk. hélt því fram, að það væri þýðingarlítill atvinnuvegur að eiga hús og taldi það ekki sambærilegt við aðra atvinnuvegi landsmanna. Hv. 9. landsk. kvaðst þessu sammála, en annars verður að líta svo á, að hann hafi ekki gert sér ljóst, hvað hann var að segja. Ef hv. 9. landsk. álítur það þýðingarlítinn atvinnuveg að eiga og byggja hús, þá er það einkennilegt, að hann skuli sjálfur starfa sem formaður í byggingarfélagi og leggja sig í framkróka til þess að knýja út úr ríkissjóði stórar fjárhæðir til byggingarframkvæmda. Ég skil ekki samræmið í þessu hjá þessum mönnum, sem álasa þeim einstaklingum, sem hafa tekið það að sér að sjá fólki fyrir íbúðarhúsum, en knýja svo sjálfir fram fé úr ríkissjóði, þegar einstaklingarnir geta ekki séð fyrir nægilegu húsnæði. Það hlýtur eitthvað að vera bogið við slíkan hugsunarhátt. Sannleikurinn er sá, að það er nauðsynlegt að koma byggingarmálunum í það horf, að bæði ríki og einstaklingar geti vel við unað. En þegar hv. 9. landsk. heldur því fram, að hann sé að gera sérstakar ráðstafanir til þess að auka nýbyggingar, þá er hann nú einmitt að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir nýbyggingar. Það er mjög skiljanlegt, að enginn vilji leggja á sig erfiði og fjárhagslega hættu til þess að byggja, þegar hann á að búa undir þeim lögum, sem hér um ræðir, þar sem hann á engu að fá að ráða um það hús, sem hann byggir.
Þá taldi hv. 9. landsk., að það mundi ekki verða neitt þjóðarböl, að núverandi húseigendur hættu að eiga hús. Ég veit ekki, hvort þessir hv. þm. hafa gert sér það ljóst, að það getur orðið þjóðarböl, ef þessum mönnum er gert ómögulegt að eiga hús. Þeir ættu að minnast gerðardómsl. sálugu, sem þeir kölluðu þrælalög. Þeir hikuðu ekki við að brjóta þau og þar með gáfu þeir fordæmi, og það er ekki ómögulegt, að húseigendum detti í hug að hagnýta sér það, sem þessir félagar þeirra hafa kennt þeim. Það er ekki víst, að þeir telji sér skylt að sýna 100% þegnskap eftir slíkt fordæmi, ef þeir þykjast órétti beittir. Ég verð að segja, að það sé táknrænt að þetta er nú í fjórða skipti, sem þessi lög koma fram hér á Alþ., og það er áreiðanlega ekki í síðasta skipti, því að þau munu alltaf ganga aftur, þar til þessum málum hefur verið skipað af sanngirni og þannig, að báðir aðilar megi vel við una.
Allur þessi gauragangur kemur af því, eftir því sem hæstv. félmrh. segir, að ráðstafa þurfti 40 manns, sem voru í skúrum á s.l. hausti. En síðan bætir hæstv. ráðh. því við, að von sé til þess, að 452 nýjar íbúðir verði bráðlega teknar í notkun, en samt á að halda áfram að þvinga I. í gegn. Þeir, sem byggt hafa húsin yfir sig, eiga ekki að vera jafnréttháir eins og verkafólkið eftir því, sem hæstv. félmrh. hefur upplýst. Ég ætla ekki að ræða mikið um rakaleysur hv. 9. landsk. Hann sagði, að hinar ýmsu gr. 1., að þær hefðu verið teknar úr hinum fyrri l., og að ég hefði ekki kynnt mér I. svo mikið, að ég víssi þetta. Þarna er nú auðvitað skotið yfir markið, því að það er hægt að gera aths. við gr., þó að þær séu teknar úr öðrum l., því að þau l. eru auðvitað byggð á sama óréttlætinu. Ég vildi þá aðeins minnast á ræðu hæstv. félmrh. eins og hún kom fram á síðasta þingfundi. Hann sagði, að hér væri ekki gengið meira á rétt húseigendanna heldur en þeirra, sem eiga sparifé í bönkum. Hér er um hreinan misskilning að ræða. Það er að vísu rétt, að sparifjáreigendur frá fyrri tímum hafa orðið hart úti með sínar eignir, en þar er allt öðru máli að gegna, þeirra frelsi er ekkert heft, þessir menn geta lagt sitt sparifé í atvinnurekstur og á þann hátt gert tilraun til þess að fá hærri vexti en þeir fá í bönkum, og það er ekki ólíklegt, að margir hafi farið þannig að. Margir hafa byggt hús og á þann hátt gert tilraun til þess að fá hærri vexti, og hins vegar til þess að reyna að bæta úr ófremdarástandinu í húsnæðismálunum. Hér er því ekki um neitt sambærilegt að ræða. Hins vegar er það sambærilegt með gerðardómsl. Hafi þau l. verið níðingsháttur gagnvart verklýðsstéttinni, þá er þetta frv., ef að l. verður, á sama hátt níðingsháttur gagnvart húseigendunum. Þá minntist hæstv. félmrh. á 5. gr. Ég er honum alveg sammála um það, að það er alveg nauðsynlegt að tilgreina það nánar, hvernig skilja beri ákvæði 2. málsl. þeirrar gr., hvort þar er átt við, að þau komi aðeins til framkvæmda, ef til loftárása kæmi. Þá minntist hæstv. félmrh. á niðurl. 4. gr., og vildi láta breyta því aftur, en hann lét ekkert uppi um það, hvort það væri eðlilegt, að bæjarstj. gætu ákveðið hámark húsnæðis, en þetta er einmitt mikilvægt atriði. Ég fyrir mitt leyti get ekki fallizt á, að það sé rétt að gefa þetta vald í hendur bæjarstj. Ef farið er inn á þá braut að ákveða hámark húsnæðis, þá álit ég, að það eigi að verða gert af Alþ. og Alþ. eigi að bera ábyrgðina á slíkri skömmtun.
Ég sé, að fram hafa komið margar brtt. við þetta frv., en ég hef ekki haft tíma til þess að athuga þær, og vona ég, að hæstv. forseti fresti atkvgr. um málið, svo að þm. gefist kostur á því að athuga þessar brtt. nánar. Í sambandi við 15. gr. vildi ég leyfa mér að benda á það, að um leigu á bryggjum og pöllum til línuveiðabáta hefur verið gefin út sérstök reglugerð, og verður annað hvort að fella þá reglugerð úr gildi eða þá að setja inn ákvæði í samræmi við þessa reglugerð. Hins vegar álít ég, að þ. væri mestur sómi að því að fella frv. í heild eins og það liggur fyrir nú, taka síðan upp fyrir næsta þ. fullkomna samvinnu við báða aðila, og leggja þá fyrir það þ. betur hugsað frv. heldur en það, sem hér er á ferðinni.