11.03.1943
Efri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (769)
116. mál, húsaleiga
Ingvar Pálmason:
Ég geng auðvitað inn á það hjá hæstv. forseta, að þetta hafi verið af misgáningi, en alls ekki af því, að hann hafi ætlað að svipta okkur tillögumenn þeim rétti að mæla fyrir brtt. okkar. En viðvíkjandi því, að við höfum ekki minnt hann á, að ekki hafi verið leitað afbrigða, þá vil ég taka fram, sem ég veit, að hæstv. forseti man, að þegar sá síðari af þeim, sem var á mælendaskrá við fyrri hl. umr., hafði lokið máli sínu, var komið að fundartíma Sþ. Þegar hæstv. for seti stóð upp, bjóst ég við, að hann mundi lýsa yfir, að umr. væri frestað og málið tekið af dagskrá, og þá þurfti engin afbrigði. Það var því ekki fyrr en hæstv. forseti hafði lýst yfir, að umr. væri lokið, að mér gafst kostur á að fara fram á leiðréttingu á þessu. Þá stóð svo á, að ég var ekki alveg viss um. að það hefði verið rétt hjá mér, að afbrigða hefði aldrei verið leitað. Það hafði ekki verið gert, meðan ég var í d., en ég kann að hafa gengið úr d. Svo fór ég í gerðabók d., og þá kom upp, að afbrigða hafði ekki verið leitað. Þá gerðabók er nú búið að staðfesta, svo að ég hygg, að bezt sé að láta það mál falla niður, en ég vænti þess, að hæstv. forseti gæti þess, að slík gleymska eigi sér ekki stað oftar og sé ekki a.m.k. að treysta á, að tillögumenn minni á, ef eitthvað slíkt skyldi koma fyrir aftur.
Ég sný mér þá að brtt.
Eins og hv. þdm. er kunnugt, þá er farið fram á í þessum brtt., að tveimur nýjum gr. verði bætt framan við frv., sem ákveði, til hverra þessi l. eiga að ná. Ég verð að telja, að það sé frá byrjun vöntun í frv., að það er ekki tekið fram, en ég legg til, að þessi l. skuli ótvírætt og undir öllum kringumstæðum, ef samþ. verða, gilda fyrir Rvík og Hafnarfjörð. Ég hef velt dálítið fyrir mér, hvort ég ætti að ganga lengra og leggja til, að l. skyldu ná til fleiri kaupstaða. Kom mér þá helzt í hug Akureyri, vegna þess að sennilega má segja, að svipað sé um Akureyri og Hafnarfjörð vegna dvalar setuliðsins í landinu. Ég ákvað þó að taka ekki Akureyri með. Það getur líka verið mikið álitamál, hversu víðtæk ákvæði 1. gr. eigi að vera í þessu efni. Ég legg til, að enginn kaupstaður sé útilokaður frá að komast undir l., það gera ákvæði 2. gr. Þau ákvæði eru, eins og hv. dm. sjá, þannig, að allir kaupstaðir utan Rvíkur og Hafnarfjarðar hafi rétt til að fara fram á og krefjast þess, að l. gildi einnig þar, en til þess að svo megi verða, þurfa að liggja fyrir óskir frá viðkomandi sveitar- eða bæjarstj. og samþykki meiri hl. kjósenda í bænum eða kauptúninu. Þetta finnst mér alveg eðlilegt og sjálfsagt ákvæði, því að það er viðurkennt af öllum, sem hafa talað fyrir þessu máli, að ákvæði þessa frv. ganga svo nærri eignar- og ráðstöfunarrétti einstaklinga, að þess mun vart vera dæmi í löggjöf. Og þegar svo er ástatt, þá virðist mér, að það sé það minnsta, sem Alþingi getur gert til að lina þetta og réttlætt sig með, að íbúarnir sjálfir óski, að svona skuli að farið. Þetta ætti öllum að vera ljóst, að það er hrein fjarstæða að ætla að láta l. ná til hvers sveitarfélags á landinu. Að vísu kann eitthvað að hafa þrengzt þar um, a.m.k. eins og annars staðar vegna erfiðleika um byggingarefni og að koma upp byggingum. Hitt er á allra vitorði, að þar liggja ekki fyrir þær ástæður, sem tvímælalaust liggja fyrir í Rvík og Hafnarfirði, því að fólkið hefur streymt til þessara tveggja bæja í leit eftir þeirri atvinnu, sem þar hefur tapazt og hefur verið að miklu leyti óviðráðanleg fyrir þessa tvo kaupstaði. Ég held því, að ef það er svo sem ég hygg, að sé engum vafa bundið, að menn játi, að með þessum l. sé mjög nærri höggvið eignar- og ráðstöfunarrétti vissra þegna í þjóðfélaginu, þá eigi Alþ. að fara það varlega, að það láti þessa löggjöf ekki gilda á þeim stöðum, þar sem hennar er litil eða engin þörf. Það kann vel að vera, að það geri ekkert til, þó að þessi l. gildi um allt land, líka þar, sem þeirra er ekki þörf, en þetta er misskilningur. Þar get ég dæmt um af eigin raun, því að ég hef sjálfur dálítið komizt í kast við húsaleigul. Ég er sannfærður um, að aðeins vegna þess, að þessi l. voru til, var notuð sú heimild, sem þau gáfu, en ekki af neinni þörf. Þetta er full alvara. Ég þykist ekki síður dómbær um það en aðrir hv. þdm., af því að eg þekki sjálfur alla málavexti. Ég sé ekki betur en þau tilfelli gætu komið fyrir á ólíklegustu stöðum. Ég þekki þess dæmi nú í vetur á Austurlandi, að einn bóndi hefur tekið vetrarmann, m.a. með þeim hlunnindum að lána honum hús fyrir 70 fjár. Ég geri ráð fyrir, að þessi vetrarmaður verði ekki eilífur augnakarl á þessum stað, en get vel hugsað mér, af því að hann hefur alið allan sinn aldur í þessari sömu sveit, að hann verði næsta ár til heimilis í nánd við það heimili, þar sem hann er nú, en ekkert vinna þeim húsbónda, sem hann er nú hjá. Eftir ákvæðum frv. eins og það er nú, þá skilst mér, að hann gæti neitað að sleppa því húsi, sem hann hefur á leigu nú.
Ég veit fyrir víst, að svona tilfelli eru til og geta valdið óþarfa erjum, að ég ekki segi meira, og óvíst, hvernig dómar mundu falla í slíkum málum. Ég nefni þetta aðeins sem dæmi. Annars hélt ég, að hv. þdm. væru svo kunnugir öllum högum landsmanna, að þeir sæju, hversu óhæfilegt það væri að láta þessi l. ná til allra sveita jafnt. Í frv. er ekki tekið fram, til hverra l. skuli ná, en af ákvæðum 9. gr. t.d.. virðist þó varla hægt að álykta annað en þau skuli ná til allra sveita. Þess vegna held ég, að varla sé hægt að deila um það, að brtt. mín undir a-lið sé rétt að efni, þó að deila megi um það, hvort hún sé nógu víðtæk.
Um b-liðinn, sem ætlazt er til, að verði 2. gr. frv., er það að segja, að greinileg takmörk verða að vera fyrir því, hve langt niður l. eiga að ná, ef svo mætti segja, og hef ég sett takmarkið við 800 íbúa þorp. Mér er reyndar ekkert aðalatriði, að talan sé nákvæmlega 800, heldur hitt, að þetta verði ekki látið ná til hvers einasta sjávarþorps. Ég þekki ýmis sjávarþorp á Austurlandi, þar sem álíkra l. er alls engin þörf, en þau gætu hins vegar orðið til þess að valda óþarfa árekstrum og óþægindum. Ég held því, að ekki sé hægt að staðhæfa, að brtt. mín sé óþörf. Um hitt má vitanlega deila, hve víðtæk slík breyting eigi að vera. Ég hef átt tal við einn mann úr hv. allshn., og lofaði hann að mæla með því, að þessi till. mín yrði athuguð í n., ef ég léti hana ekki ganga til atkv. nú. Mér þykir vænt um þetta, því að fyrir mér vakir ekki annað en að bæta löggjöfina. Ég mun því ekki fara fram á, að l. brtt. mín á 503. þskj., a og b, verði borin undir atkv. að þessu sinni, en ég vil þá líka skora fastlega á hv. allshn. að taka hana til rækilegrar athugunar. Sams konar áskorun vil ég beina til þess hæstv. ráðh., sem gengizt hefur fyrir flutningi þessa máls.
Þá er 2. brtt. mín við 8. gr., sem er að nokkru leyti leiðrétting. Ég legg þar til, að kostnaður við störf n. og nefnda samkv. 9. gr. greiðist að hálfu úr ríkissjóði, en að hálfu úr hlutaðeigandi bæjareða sveitarsjóði. Ég fæ ekki betur séð en n. þær, sem starfa utan Rvíkur, hafi engan rétt til þóknunar samkvæmt frv., að minnsta kosti þyrfti óvenjulega túlkun til að komast að þeirri niðurstöðu, að þær hefðu slíkan rétt. Ég geri raunar ráð fyrir, að þessar n. yrðu ekki látnar gjalda þessa, heldur yrði þeim greidd þóknun, en ég tel þó æskilegra, að til séu ótvíræð ákvæði um þetta, og það færi bezt í síðasta málslið 8. gr. Sú gr. fjallar aðeins um húsaleigu í Rvík, og þar segir, að kostnaður við störf n. greiðist úr ríkissjóði, en þar ex ekki um aðra n. að ræða en húsaleigun. í Rvík. Hér er því um að ræða leiðréttingu að öðrum þræði, en að því er snertir greiðsluna sjálfa, er það breyting.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast í þessu sambandi á d-lið brtt. á þskj. 481, frá hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Seyðf. Þar er svo ákveðið, að ríkissjóður og hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarsjóður ábyrgist, annar fyrir báða og báðir fyrir annan, greiðslu leigu eftir húsnæði, sem tekið er samkvæmt þessari lagaheimild, svo og greiðslu skaðabóta fyrir spjöll á hinu leigunumda, er leigutaki eða fólk á hans vegum telst eiga sök á. Þetta er hreinasta fjarstæða og jafnvel óverjandi frekja af hálfu Rvíkur, því að enginn efi er á því, að verði þessu ákvæði um leigunám á húsnæði beitt, sem ég býst að vísu við, að ekki verði, þá koma upp margs konar skaðabótakröfur, og gæti það orðið allálitleg fúlga.
Þá er síðasta brtt. mín á 503. þskj., þar sem stungið er upp á nýju orðalagi á 15. gr. Ég veik að því áður, að gr. getur ekki staðizt í þeirri mynd, sem nú er. Ef fyrri málsliður er óbreyttur, er aðilum, sem eiga að vera jafnréttháir, mismunað. T.d., má benda á, að fiskibátar og fiskiskip, sem nota önnur veiðarfæri en línu, geta þá ekki notið þessara hlunninda. Þetta getur ekki staðizt, en það er komið inn í frv. í hv. Nd. Ég veit, að hæstv. ráðh. vill hafa l. sem sanngjörnust í hvívetna, og þykir mér því líklegt, að hann sé mér sammála um þetta. Um síðari málslið þessarar gr. er hið sama að segja. Hann fær ekki staðizt heldur. Þar er ákveðið, að hafi leiga eftir slík hús, bryggjur og palla verið greidd með aflahlut, geti aðili krafizt, að leigan verði metin til peningaverðs, og má hún þá ekki hækka meira en sem svarar hækkun almennrar húsaleigu. Þetta er algerlega óframkvæmanlegt og er komið inn í frv. af vanþekkingu eða þá í þeim tilgangi að koma í veg fyrir, að húsaleiga sé greidd með aflahlut. En ef fara á að greiða leiguna með aflahlut, verður mjög flókið og erfitt að meta þá greiðslu. Þar kemur svo margt til greina. Til dæmis er það, að fleyturnar eru mjög misjafnar, eftir því í hverjum kaupstaðnum þær eru, og yrði þá að meta húsaleiguna fyrir hvern flokk báta, en það væri meira en lítið vandaverk. Ég segi fyrir mig, að þótt ég sé þessum málum sæmilega kunnugur, mundi ég ekki vilja taka að mér slíkt mat, því að ég teldi ekki hægt að framkvæma það rétt. Ég vil því breyta þessu svo, að hvor aðilinn sem er, geti krafizt mats, ef húsaleigan er greidd með aflahlut. Ég held, að með þessu sé fullnægt sanngirni og réttlætisþörf.
Mér hefur ekki þótt ég geta annað en tekið til máls, þar sem málið hefur verið rætt hér fremur einhliða og eingöngu frá hagsmunasjónarmiði Rvíkur, en ég mun líklega ekki taka til máls um það oftar, nema ráðizt verði á brtt. mínar.