11.03.1943
Efri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

116. mál, húsaleiga

Brynjólfur Bjarnason:

Ég ætla aðeins að fara fáum orðum um brtt. hv. 1. þm. S.-M. l. brtt. hans er um það, að ákvæði þessara l. skuli aðeins gilda fyrir Rvík og Hafnarf jörð. Ég skil ekki, að margir hv. þm. geti fallizt á það. Hv. þm. kvartaði um, að verið væri að leggja þungar kvaðir á húseigendur, og sagði, að ekki væri rétt að leggja slíkar byrðar á þegna þjóðfélagsins að óþörfu. Hann viðurkennir þó fullkomlega nauðsyn þessara kvaða í Rvík og Hafnarfirði. Nú er hér að vísu ekki um kvaðir að ræða, sem lagðar mundu vera á menn á eðlilegum tímum, en hv. þm. hlýtur þó að játa, að óviðfelldið sé að hafa réttindi og skyldur þegnanna í þessum efnum misjöfn, eftir því hvar þeir búa. Þegar l. eru sett, hlýtur það að vera fyrsta og fremsta krafan, að þau nái jafnt til allra. Það er að vísu rétt, að þörf þessara ákvæða er misjöfn, en þau koma þá heldur ekki eins hart niður á mönnum á þeim stöðum landsins, þar sem rýmra er um, að því er húsnæði snertir, en í Rvík og Hafnarfirði. Og þess ber að gæta, að hætt er við, að húsaleiga hækkaði utan Rvíkur og Hafnarfjarðar, ef þessi ákvæði næðu ekki til annarra staða. Læt ég þetta nægja um I. brtt. hv. þm.

Þá er 3. till. hans, þar sem lagt er til að breyta 15. gr. Ef sú brtt. yrði samþ., held ég, að gr. yrði einskis virði, fyrst og fremst vegna þess að engin n. mundi vilja taka að sér að ákveða aflahlutinn, sem er breytilegur frá ári til árs. Hv. þm. talaði um örðugleika á að framkvæma 15. gr. eins og hún er e frv., en ég held, að það mat, sem þar er um að ræða, sé vel framkvæmanlegt. Ég tel því, að ekki geti verið um annað að ræða en fella till. hv. þm., eins og þær liggja fyrir. Hins vegar mundi n. að sjálfsögðu vera fús að taka til athugunar þær uppástungur, er hv. þm. kynni að vilja gera, og mætti þá athuga þær milli umr.