24.03.1943
Efri deild: 80. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (782)
116. mál, húsaleiga
Ingvar Pálmason:
Ég flutti hér við 2. umr. nokkrar brtt. við þetta frv., en tók þær aftur til 3. umr. að undantekinni einni, sem þá gekk undir atkv. Ástæðan til þess, að ég tók aftur þessar brtt., var sumpart tilmæli frá þm. þar um, en sumpart það, að því hafði verið skotið að mér, að þó að vísu vera kynni nokkur ástæða til breyt. að því er snerti fyrstu brtt. mína, bæði a- og b-lið, þá mundi þar vera fulldjúpt tekið í árinni. Nú hefur svo farið, að hæstv. félmrh. hefur á milli umr. átt við mig stutt samtal. Og það samtal gerði það að verkum, að ég ákvað að breyta 1. lið brtt. á þskj. 503. Að vísu er það nú svo, að ég viðurkenni ekki að öllu leyti þau rök, sem hæstv. ráðh. færði fram fyrir því, að það væri ósaknæmt, þó l. næðu til alls landsins. En hins vegar viðurkenni ég það, að það mun vera rétt hjá honum, að það sé nauðsyn á að þau taki til fleiri aðila heldur en tilgreint er í brtt. minni á þskj. 503. Tel ég vel farið, að hæstv. félmrh. átti þetta tal við míg. Og hefur fulllítið verið um það á þessu þingi, að milli hæstv. ríkisstj. og þm. hafi verið æskileg tengsl, og tel ég það illa farið. Og til góðra lykta á málum tel ég það mjög vel við eigandi, að þegar ráðh. verða varir við misjöfn sjónarmið í málum, þá eigi þeir viðtöl við þá, sem að þeim sjónarmiðum standa.
Ég hef þá skýrt nokkuð ástæðu þess, að ég flyt brtt. á þskj. 565, þar sem að formi til og a. n. l. líka að efni er breytt til frá því, sem er gert ráð fyrir í fyrri brtt. minni, á þskj. 503. Ég hef þar með gengið inn á að færa niður það takmark um íbúatölu, sem l. „absolute“ skyldu gilda fyrir, og niður í það, að þau giltu fyrir alla kaupstaði og öll kauptún, sem hefðu 800 íbúa eða fleiri. Og enn fremur hefur takmarkið verið fært úr 800 íbúum niður í 300 íbúa um íbúatölu þeirra kauptúna eða þorpa, sem ríkisstj. heimilast að fyrirskipa, að ákvæði þessara l. skuli ná til, ef viðkomandi sveitarstj. óskar þess eða fyrir liggur samþykkt meiri hl. kjósenda í kauptúninu eða þorpinu um, að svo skuli vera. Ég lít þannig á, að þessi I., sem af öllum er viðurkennt, að séu nokkuð sérstaks eðlis og gangi lengra heldur en venjuleg l., eigi ekki að vera látin gilda viðar heldur en þeirra er brýn þörf. Og ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að undantekningarlaust í öllum þorpum, sem hafa færri en 300 íbúa, þá sé ekki brýn þörf á þessum l. Að vísu hefur mér skilizt á ýmsum, að það gerði ekki til, þó l. giltu lengra niður, því að þau mundu ekki verða notuð þar, sem færri íbúar en 800 væru í kauptúni, það mundi því ekki koma að sök. En ég er ekki á því, í fyrsta lagi vegna þess, að viðurkennt er, að l. séu þvingunarl., og þá á ekki að gera leik að því að láta þau gilda fyrir fleiri en þörf er á, og enn fremur er aldrei hægt að gefa tryggingu fyrir því, að ákvæðí l. valdi ekki missætti milli manna. Það geta jafnvel óhlutvandir menn notað sér ákvæði l. án þess að þess sé þörf, til þess að valda óþægindum, þó að treysta megi því, að þeir, sem eiga að framkvæma l., líti með sanngirni á, hvort fyrir liggur nauðsyn eða ekki. Ég held, að því verði ekki með rökum neitað, að það sé a.m.k. skynsamlegur varnagli, sem sleginn er með þessum brtt. mínum.
En þá vil ég jafnframt lýsa yfir, að með þessum brtt. á þskj. 565 tek ég aftur 1. lið brtt. minna á þskj. 503, bæði a- og b-lið.
Ég tel rétt að fara nokkrum orðum um brtt. prr, sem fyrir liggja frá hv. þm. Barð. (GJ). Það var fyrir tilmæli hans, að ég tók aftur 3. lið brtt. minna á þskj. 503. Og hann hefur nú komið með brtt., sem ég hélt, að jafngildi alveg fyrri mgr. 3. brtt. minnar á þskj. 503. Og ég get af því dregið til baka fyrri mgr. 3. brtt. á þskj. 503. Hins vegar tel ég, þótt brtt. hv. þm. Barð. verði samþ., að til atkv. geti komið seinni mgr. 3. brtt. á þskj. 503. Og tek ég hana því ekki til baka, en fyrri mgr. tek ég til baka, því að ef brtt. hv. þm. Barð. verður felld, þá mun heldur ekki fyrri mgr. þessa liðar brtt. minnar finna náð fyrir augum hv. þdm.
Ég held, að það sé alveg víst, að það sé ástæðulaust, að afnuminn verði sá háttur, sem hefur átt sér stað allstaðar á Austurlandi, að verstöðvaleiga hefur verið tekin af aflahlut. En með því að samþ. frv. óbreytt að þessu efni til, væri gengið inn á þá braut, að hvor aðilinn sem er, leigusali eða leigutaki, getur afnumið þetta. Og ég tel mjög illa farið, ef að því ráði verður horfið. Tvær undanfarandi vertíðir t.d., á Austurlandi hafa verið mjög góðar, og sá aflahlutur, sem orðið hefur, hefur verið hár að krónutali. En ég vil líka benda á, að það, sem af er þessari vertíð, hefur það gengið þannig í þeim verstöðvum, að ég hygg, að það hefði verið mjög illa farið, að leiga á húsum og öðru til útgerðar hefði verið miðuð við visst peningagjald án tillits til aflafengs. En hinn hátturinn, sem hafður hefur verið á þar eystra, hefur gefizt vel, ekki sízt þeim, sem hafa verið leigutakar. Ég get upplýst það, að öll árin frá 1932 til 1939 var aflahlutur á Austfjörðum svo lágur, að ekki hefði verið undir nokkrum kringumstæðum hægt að fá húsaleigu til útgerðarinnar svo lága sem hún var, ef hún hefði verið metin til peningaverðs. Hitt er vitanlegt, að þegar mjög vel gengur, getur aflahlutur orðið miklir peningar. En af því að það er sannfæring mín, að langheppilegast sé, að sem flestir aðilar, sem að útgerð standa og þurfa að taka að meira eða minna leyti framfæri sitt af því, taki það í aflahlut, og af því er það, að ég vil ekki, að löggjafinn gangi inn á það svið að sveigja frá þessari braut þannig lagað, að peningagreiðslan eftir taxta verði alltaf látin gilda án tillits til aflahluta, fyrir þessi hús og aðrar fasteignir, sem leigðar eru til afnota útgerðarinnar. Ég hef í þessu mjög langa reynslu og veit fyrir víst, að allan þann tíma, sem ég rak útgerð, þá hefði skipazt á allt annan hátt, ef ekki hefði verið fylgt þeirri reglu, að allir, sem að útgerð minni unnu, höfðu tekjur sínar af aflahlut.
Ég ætla ekki að orðlengja um þetta frekar, en ég vil alvarlega benda hv. þm. á það, að þessi braut, sem hér er stefnt inn á, er mjög varhugaverð, og miklu varhugaverðari fyrir þá, sem þurfa að taka verstöðvar á leigu, heldur en fyrir þá, sem leigja þær út. — Læt ég svo skeika að sköpuðu um það, hvernig fer með brtt. mínar.