25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (789)
116. mál, húsaleiga
Félmrh. (Jóhann Sæmundsson):
Ég hef leyft mér að bera fram brtt. á þskj. 535. Ég hef nokkuð gert grein fyrir fyrri brtt., stafl. 1. Hún er til komin af því, að í meðförum hv. Nd. samþ. sú hv. d. ákvæði um það, að þeim, sem tækju ólöglega húsnæði til annarrar notkunar en íbúðar, skyldi gefinn kostur á að úthluta því sjálfir handa innanhéraðsfólki. Þetta ákvæði er ófullnægjandi. Það þarf að standa, að þeir þurfi að ráðstafa húsnæðinu handa húsvilltu innanhéraðsfólki, því að ekki er ástæða til að ætla, að því verði ráðstafað handa húsvilltu innanhéraðsfólki, nema það sé tekið fram.
Hitt ákvæði brtt. er ákvæði til bráðabirgða, sem ég legg til, að komi aftan við frv., svo hljóðandi:
„Ákvæði laga þessara taka til uppsagna þeirra á leigusamningum og tilkynninga um skipti á húsnæði, sem fram hafa farið fyrir gildistöku laganna og koma eiga til framkvæmda 14. maí 1943, enda hafi uppsögn eða tilkynning komið fram með löglegum fyrirvara.“
Upphaflega var það ætlunin, að hægt væri að ganga frá húsaleigul. fyrir 14. febr. s.l. En það varð ekki. Hins vegar hafa ýmsir sagt upp húsnæði í skjóli þess, að l. mundu verða samþ. fyrir þann tíma. Og það virðist vera rétt að gefa kost á því, ef uppsagnir hafa farið fram með löglegum fyrirvara, að ákvæði þessara l. nái til þeirra tilkynninga.
Þá eru nokkur orð um brtt. frá hv. 1. þm. S.–M. Hann hefur breytt sínum till. frá því, sem þær upphaflega voru, þannig að húsaleigul. ná nú til staða með færri íbúum eftir hans síðari till. heldur en hann gerði ráð fyrir í upphafi í sínum brtt. Ég hygg, að það sé að langmestu leyti hægt að ná því, sem þarf að ná, með þessu, sem hann nú leggur til, en þó ekki alveg. Eins og allir vita, fela húsaleigul. í sér tvenns konar skerðingu, annars vegar bann við því að hækka húsaleigu nema eftir ákveðnum reglum. Þetta er dýrtíðarráðstöfun, og þessi ráðstöfun þarf að gilda fyrir allt landið tvímælalaust. En svo eru önnur ákvæði frv., sem lúta að því, að ekki megi segja fólki upp húsnæði nema með ákveðnum takmörkunum, og þetta er skerðing á ráðstöfunarrétti manna í þessu efni. Þetta er vitanlega neyðarráðstöfun, sem skapast af því, að húsnæðisleysi er. En húsnæðisleysi er ekki allstaðar, svo að það er ekki endilega nauðsynlegt að láta þetta ákvæði ná til alls landsins um mjög takmarkaðan rétt til uppsagna á húsnæði. Það er ekki nauðsynlegt, að ákvæði þar að lútandi nái til annarra staða heldur en þar, sem húsnæðisekla er. En binding húsaleigunnar er annars eðlis, og hún þarf að ná til alls landsins.
Þá skal ég minnast á brtt. á þskj. 604 frá hv. þm. S.-Þ. Ég sé ekki betur heldur en að sú brtt. sé alveg í fullu samræmi við það, sem til er ætlazt og þarf að ná, og þess vegna sé rétt að samþ. þá brtt. Það, sem máli skiptir í þessu, er, að húsaleigun. viti jafnan, hverjir koma í bæinn, og þá jafnt hvort sem það eru alþm. eða nemendur í skólum, sem ríkið rekur eða reknir eru með ríkisstyrk, svo að húsaleigun. geti fylgzt með því, að ekki komi aðrir og taki húsnæði á leigu í bænum heldur en þeir, sem mega það. En ef þetta væri alveg frjálst, þá gæti slæðzt inn í bæinn ýmislegt af fólki undir því yfirskyni, að það ætlaði að vera á skóla. Það væri því mikill galli á l., ef þau væru þannig, að það þyrfti ekki að tilkynna um komu fólks í bæinn.
Þá skal ég fara nokkrum orðum um brtt. á þskj. 597 frá meiri hl. hv. allshn. Það er brtt., sem felur í sér heimild til þess að skammta húsnæði, og húsaleigun. fái til umráða húsnæði, þar sem mikið er um það og afnotahafi getur án þess verið. Ég vil mjög eindregið skora á hv. þd. að samþ. þessa brtt., því að það er ákaflega mikil þörf á að fá þetta ákvæði inn í l. Og ég get ekki séð, að það sé neitt annað eða meira, sem mundi ske hér í garð þeirra manna, sem óþarflega rúmt hafa um sig, þó að brtt. væri samþ., heldur en það, sem hefur skeð um fjölda fólks hér í bænum og alveg af fúsum vilja. Á síðasta hausti var það athugað, hve margír hefðu flutzt hingað í bæinn frá ársbyrjun 1941 og til 12. ágúst 1942, sem reyndist vera um 4000 manns. Þetta fólk hefur komið sér fyrir hjá kunningjum sínum hér í bænum. Og bæjarfólkið hefur tekið aðkomufólkið inn á heimili sin til þess að stuðla að því, að aðkomumennirnir gætu stundað hér vinnu og notið góðærisins í atvinnumálunum. Ýmsir kunna að hafa út á þetta að setja. En ég held, að það sé ekki ástæða til þess að finna neitt að þessu. Ég vil bara benda á það, að ef maður athugar innieignir bankanna erlendis þann 1. jan. 1941, þá voru þær 71,5 millj. kr. En síðasta des. síðast liðinn (1942), voru þær 284770000 kr. Þ.e. innistæður bankanna erlendis höfðu aukizt á þessum árum um 213 millj. kr. Ef við athugum, hvað hefur verið flutt út þessi ár, 1941 og 1942, þá er það fyrra árið 184,6 millj. kr., en síðara árið 204,4 millj. kr., eða samtals 389 millj. kr. Ef við berum þetta saman við innflutninginn á þessum sömu árum, þá er hann samtals þau ár um 389 millj. kr., en útflutningurinn bæði árin var um 389 millj. kr. Það, sem því útflutt var umfram það, sem innflutt var þessi tvö ár, er aðeins 9,8 millj. kr. Og þá verður okkur að spyrja: Hvernig stendur á því, að innstæður okkar erlendis hafa á þessum tveimur árum aukizt um 213 millj. kr., þar sem útflutningurinn er þó ekki nema 9,8 millj. kr. meiri en innflutningurinn? Ég hugsa, að allir geti svarað þessu sjálfir. Þetta stafar af veru setuliðsins hér í landinu og þeirri vinnu, sem það hefur skapað. Og af þessu held ég, að megi álykta, að þetta fólk, sem komið hefur til bæjarins til þess að stunda hér atvinnu hafi gert landi sínu gagn og skapað gjaldeyri fyrir þjóðina með því að vera hér. Það eru 203 millj. kr. í auknum gjaldeyri á þessum tveimur árum, sem þannig virðast hafa fallið í hlut þjóðarinnar.
Ég gat þess, að það hefðu rúmar 4 þús. manna konlið þannig í bæinn. Það hefur verið athugað, hvort þetta fólk hefur tekið sjálfstæðar íbúðir á leigu, og þau tilfelli eru mjög fá. Að ég hygg eru það eitthvað um 20 tilfelli, þar sem upplýst er, að þetta fólk hefur tekið ólöglega íbúðir á leigu. Það, sem hægt er að álykta af þessu, er, eins og ég sagði áðan, það, að íbúarnir hafa sjálfir hliðrað til. Og það, sem meint er með þessari brtt., sem meiri hl. allshn. flytur, er það, að þeir, sem hafa rúmt húsnæði, eigi kost á því að taka inn til sín fólk, sem þeir þekkja, vini eða vandamenn, og sem þeir vilja hafa í sínum húsum. Og því verður þessu ákvæði fyrst og fremst beitt þannig, að reynt verður að gera allt sem hægt er, til þess að fá fólk til að þrengja að sér af fúsum vilja. Því að það sér hver maður, að lítið er unnið við það, ef á að beita þessari heimild þannig að setja fólk inn í hús bæjarmanna í óþökk afnotahafa húsnæðisins. Af því yrði taugastríð milli fólksins, þannig að hvorugur aðili gæti við það unað. Og ég vil lýsa yfir því, að þessi brtt. gerir ráð fyrir, að félmrh. eigi að samþ. gerðir húsaleigun. í þessum efnum. Og ég vil lýsa því yfir, að meðan ég gegni því embætti, þá mun ég vilja beita mér fyrir því, að þessum ákvæðum verði beitt eins og ég nú hef sagt. Þessi notkun á ákvæðinu er mjög svipuð því, sem á sér stað bæði í Bandaríkjunum og Englandi. Í Bandaríkjunum í Norður-Ameríku er mjög mikil ekla á íbúðum í iðnaðarborgunum, þar sem verkamenn þyrpast inn í borgirnar, og hið opinbera hefur hvergi nærri við að byggja yfir þá. Það er heil stofnun í Bandaríkjunum, sem hefur með höndum að útvega verkamönnum húsnæði hjá því fólki, sem fyrir er í bæjunum. Og það opinbera tekur húsnæði á leigu, og ekki aðeins það, heldur breytir það því líka. Og það hvetur almenning og eggjar lögeggjan að taka þátt í þessu. Ég hef séð grein í ameríska blaðinu National Housing Agency, þar sem haldið er mjög á lofti því fyrsta tilfelli, þegar maður gaf sig fram til þess að láta breyta húsi sínu. Það var hús, þar sem voru 14 herbergi og 4 baðherbergi. Hann leigði því opinbera þetta hús af fúsum vilja og hefur látið það við gangast, að því sé breytt og þar komið upp sex þriggja herbergja íbúðum.
Það hefur verið talað um það hér, að hliðstæð l. við húsaleigul. hjá okkur mundu hvergi vera til annars staðar. En ég vil benda á það, að í Bretlandi eru húsaleigul. Og húsaleigul. hafa verið í gildi þar síðan 1920, en bráðabirgðal. voru sett um þetta efni þar I915. Þau l. leggja bann við hækkun á húsaleigu nema eftir alveg ákveðnum reglum. Þau hafa verið í gildi alla tíð síðan. Þau voru sett 1920; þeim var svo breytt 1923, 1933, 1938 og loks 1939 vegna styrjaldarinnar.
Ein ástæða til þess, að það er fyllilega réttmælt að samþ. brtt. frá meiri hl. hv. allshn., er sú, að ef maður athugar, hvað byggt er hér í bænum nú, þá sést það, að stórum íbúðum fer fjölgandi. Á árunum 1941 og 1942 voru 346 íbúðir teknar í notkun í Rvík, og í smíðum eru nú í bænum 421 íbúð með 1350 herbergjum ásamt eldhúsum. Þar af eru 25 íbúðir, sem eru 6 herbergja eða stærri. Þetta sýnir, að þróunin gengur í þá átt, að fólkið vill hafa rýmra um sig á þeim tíma, þegar húsnæðisekla hefur verið meiri heldur en dæmi eru til áður. Einmitt þessi þróun gerir það líka nauðsynlegt, að það verður að skammta byggingarefni framvegis. Og ég held, að það sé óhætt að lýsa því yfir, að það muni verða gert.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta.