30.03.1943
Efri deild: 84. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (796)
116. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég hefði talið æskilegt, að hæstv. félmrh. hefði verið viðstaddur þessar umr. og haldið uppi vörnum í málinu, þegar allir aðrir eru hlaupnir af hólmi, sem hafa treystst til að mæla þessum ólögum bót. Ýmislegt, sem hæstv. ráðh. sagði, er þess eðlis, að það hlaut að sannfæra menn um, að ekki bæri að samþ. þetta mál. Hann taldi mikla nauðsyn á þeirri heimild, sem hann fer fram á, en fullyrti þó jafnframt, að lítið gagn væri að þröngva fólki inn í hús gegn vilja þeirra, sem þar eru fyrir. Það yrði bara taugastríð. Hæstv. ráðh. talaði um, að stóríbúðum færi fjölgandi hér í bæ meira en góðu hófi gegndi, en ég vil benda á, að til eru ýmsar aðrar leiðir til að koma í veg fyrir það. Það er hægt að setja sérstök l. um það, hvernig, ný hús skuli gerð, án þess að ganga á rétt þeirra heimila, sem þegar hafa verið stofnuð.