02.04.1943
Neðri deild: 89. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

116. mál, húsaleiga

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég vil leyfa mér að benda á það, að þetta frv. hefur tekið miklum og gagngerðum breyt. í hv. Ed. í gær, og það hefur ekki verið í n. hér síðan. Sumar þessar breyt. eru þess eðlis, að þær fá varla staðizt, þannig að það er alveg nauðsynlegt að taka upp breyt á frv. hér. Mér þykir það skrítið, að frv. skuli vera tekið strax fyrir hér í hv. d. með afbrigðum, áður en n. hefur getað athugað það, eftir að það hefur komið frá hv. Ed. Vil ég því mælast til þess, að málið verði tekið af dagskrá nú, svo að n. geti athugað það.