02.04.1943
Neðri deild: 89. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

116. mál, húsaleiga

Forseti (JJós):

Ég hef nú heyrt tilmæli hv. þm. En ég veit ekki, hvaða afleiðingar það kynni að hafa fyrir málið, ef því verður frestað og það sent til n. En þar sem hæstv. félmrh. er nú mættur á fundinum, þá vill hann kannske láta álit sitt í ljós um þetta mál, hvort málinu skuli fresta nú, svo að allshn. geti fengið tækifæri til að athuga það.