20.11.1942
Neðri deild: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

Kosning fastanefnda

Eysteinn Jónsson:

Ég vil taka það fram, að mér virðist, að það leiði ekki af sjálfu sér, að það þurfi að fresta kosningum í fastanefndir í þessari hv. d., þó að því sé frestað í Sþ.

Ég vil spyrja hæstv. forseta, hvort ósk hafi komið fram frá einhverjum sérstaklega um það, að þessum kosningum verði frestað, þó að ég út af fyrir sig hafi ekki á móti því, að það verði gert.