20.11.1942
Neðri deild: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

Kosning fastanefnda

Forseti (JJós):

Til andsvara því, sem hv. 1. þm. S.-M. hreyfði, vil ég taka fram, að á þessum fundi hefur engin slík ósk komið fram. Hins vegar er það álit forseta þessarar hv. d., að eftir þingsköpum beri fyrst að kjósa þær fastan., sem ákveðið er, að kjósa skuli í Sþ., á 2. fundi Alþ., áður en kosið sé í fastan. í deildum, eins og ég tók fram áðan. Fresta ég hér með þessum fundi, en framhald hans mun verða boðað með dagskrá.