24.02.1943
Neðri deild: 65. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JJós):

Ég vil geta þess út af þeim tilmælum, sem komið hafa fram beinlínis af hálfu hv. þm. G.- K. og ýmsir aðrir hv. þm. hafa látið í ljós, að ég mun fallast á, að sérstök n. verði kosin til að fjalla um þetta mál, og verður hún þá kosin, eftir því sem samkomulag næst um hana á sama fundi og atkvgr. fer fram um frv., en það verður á morgun. Atkvgr. um málið er því frestað nú og það tekið af dagskrá.