07.04.1943
Neðri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (906)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Stefán Jóh. Stefánsson:
Þegar þetta frv. var hér til 1. umr., lýsti ég yfir því, að Alþfl. væri samningsfús um öll atriði, er til bóta horfðu, en á móti allri rangsleitni og misrétti í því. Út frá þessari yfirlýsingu hefur flokkurinn einmitt gengið til starfa við þessa 2. umr. Ég benti á það, að flokkurinn gæti hugsað sér að samþykkja l. –3. kafla með þeim breytingum, sem aðrir flokkar gætu sameinazt um. Einnig lýsti ég yfir því, að Alþfl. mundi ekki fyrir sitt leyti samþ. 4. kafla, að skera niður 20% af dýrtíðaruppbót á laun. Fulltrúar flokksins í báðum fjhn. hafa starfað að lausn málsins samkv. þessu.
Brátt kom í ljós við samtöl í nefndunum, eins og hv. frsm. benti á, að stj. mundi ekki fá frv. samþykkt óbreytt. Hvort sem það er rétt hjá hv. þm. A.-Húnv., að enginn þm. mundi hafa verið með því óbreyttu, þá er hitt víst, að mikill meiri hl. hefði verið á móti því.
En orð og yfirlýsingar hæstv. stj. hafa ekki gefið til kynna neina úrslitakosti, og það kom skýrt fram hjá hæstv. félmrh. og hæstv. forsrh., að um skerðingu á dýrtíðaruppbót væri ekki að ræða, nema um það næðust samningar.
En þegar stj. var ljóst, að frv. mundi ekki ganga í gegn óbreytt, þá sendi hún n. brtt. við það, sem eru prentaðar á þskj. 651 og eru einnig hér til umr.
En það varð þó auðsætt, að þessar till. mundu ekki heldur ná meiri hl., og ég hygg, að enginn hinna fjögurra þingflokka muni geta sætt sitt við þessar umbætur stj. óbreyttar. Það varð því til þess, að fjhn. þessarar hv. d. fór að íhuga nánar samvinnugrundvöll innan n., og árangurinn er á þskj. 663.
Höfuðtill. eru því á tveimur þskj., tvær línur. Till. stj. eru á þskj. 651, en till fjhn. á þskj. 663. Þegar litið er fyrst á till. stj., þá eru engar breyt. á 3 fyrstu köflunum um skattaálögurnar. Stj. hefur því ekkert breytt þeim köflum. Hins vegar hefur n. lagt til, að 1. og 3. kafli falli burt og að 2. kafla verði mikið breytt.
Um 4. og 5. kafla koma ólíkar till. frá stj. annars vegar og n. hins vegar.
Um þá kafla, er snerta skattaálögurnar, vil ég segja, að flokkur minn er ekki ánægður með þá eins ég stj. gengur frá þeim og mun ekki geta greitt þeim atkv., einkum 1. og 3. kaflanum. En væntanlega flytjum við þá brtt. við þessa kafla, því að Alþfl. vill einnig láta afgreiða þá. Ég mun því ekki fjölyrða um þá að sinni, en síðar verður tækifæri til þess, af flokkurinn kemur fram með brtt. Ég mun því víkja frá þessum köflum og snúa mér að hinum, sem eru þungamiðjan, dýrtíðarráðstafanirnar sjálfar, verðlag landbúnaðarafurða og kaupgjaldið. N. hefur lagt til, að slegið væri á frest endanlegri ákvörðun um hlutfallið milli afurðaverðs og kaupgjalds, en þó lagt til að lækka dýrtíðina um 30 stig og greiða kostnaðinn við það að mestu úr ríkissjóði. Út af þessu vil ég taka það fram, að minn flokkur hefði helzt kosið að leggja einhvern fastari grundvöll í þessum efnum á þessu þingi en fram kemur í till. n., og að því leyti stendur flokkurinn nær till. stj., þótt vitanlega yrði þá að breyta þeim. Fyrir þær sakir, að tilraun stj. til að leiða málið fyrr til lykta liggur nær sjónarmiðum flokksins, mun hann taka þann kostinn að bera fram brtt. við sjálft stjfrv.
Þótt hv. þm. A.-Húnv. gæfi nokkurt tilefni til, þá mun ég ekki víkja að ræðu hans. Ég vil aðeins taka það fram, að minn flokkur telur, eftir að hann hefur athugað till. stj. um 40% grunnverðsuppbót, að það sé mjög til samræmis við grunnkaupshækkun hjá launastéttum landsins.
Þá skal ég víkja að brtt. okkar hv. þm. Hafnf. á þskj. 674 við brtt. stj. á þskj. 651. Um leið vil ég beina því til hæstv. forseta, hvort ekki væri hægt við atkvgr. að bera fyrst upp brtt. stj. ásamt brtt. okkar, og skilst mér, að ekki þyrfti að vera ágreiningur um það, ef það þættu heppilegri vinnubrögð. Ástæðan er sú frá minni hendi, að afgreiðsla þessara till. mundi móta afstöðu Alþfl. til tillagna fjhn., og mundum við þá skoða þær sem varatill. Þótt óvenjulegt sé að bera þannig einn þátt frv. undir atkv., þá teldi ég það eðlilegt, ef enginn hefur á móti því, og vildi mega ganga út frá því sem gefnu, þar til fram á annað sæist.
Það má segja, að í brtt. okkar á þskj. 674 sé eitt aðalatriði, sem er ákvarðandi fyrir afstöðu flokksins til brtt. stj., og það atriði er, að tryggt sé, að launastéttirnar fái greidda fulla dýrtíðaruppbót, hver sem hún svo verður. Það verður ekki séð á till. stj., hvort hún vill tryggja fulla dýrtíðaruppbót, og þar sem engin ákvæði eru um það, þá fær Alþfl. ekki unað við það óbreytt. Ég vænti þess þó eftir orðum hæstv. félmrh. og ummælum hæstv. stj. við fjhn. Nd. að dæma, að ekkert sé þessu til fyrirstöðu. En ég tel það gersamlega ákvarðandi fyrir afstöðu flokksins, að þetta sé tryggt.
Í annan stað leggjum við til, að breytt sé skipan þeirrar n., er rannsaka á hlutfallið milli verðlags og kaupgjalds og gera tilraun til samkomulags milli framleiðenda og neytenda. Við leggjum til, að n. verði skipuð 5 mönnum í stað 6, tveimur fulltrúum fyrir landbúnaðinn og tveimur fyrir launþega og einum óháðum oddamanni. Hvorki hagstofustjóri né forstöðumaður búreikningaskrifstofu ríkisins virðast kjörnari til að tryggja réttlátari niðurstöður í n. en aðrir, en eru henni eðlilegir til aðstoðar.
Þá er sá munur á till. okkar og ákvæðum stj., að eftir okkar till. verða niðurstöður þessarar n. ekki bindandi, nema hún verði sammála. Ég vísa til ræðu hv. frsm. fjhn, hv. þm. V.-Ísf.
Nú er hafin alvarleg tilraun til að ná samkomulagi milli bænda og verkamanna. Náist það ekki, þá verður hið pólitíska vald að grípa í taumana, og þá kemur til kasta þingsins.
Það væri ekki rétt, að meiri hl. í n. réði úrslitum í svo viðkvæmum málum, sem hér um ræðir. Það væri ábyrgðarhluti að fá henni slíkt vald í hendur án nokkurrar íhlutunar af umbjóðandanum, sem er Alþ.
Hv. fjmrh. sagði, að það væri óviðunandi fyrir stj. að ganga fyrir kné allra verkalýðsfélaga í landinu til þess að fá hjá þeim heimild til þess, að greiðsla verðlagsuppbótar á kaupgjald fari fram eftir þeirri vísitölu, sem er byggð á verðlaginu 1. dag þess mánaðar eftir að frv. þetta verður að l.
En það er vafasamt að líta á þetta. Á stuttum tíma mundi stj. geta fengið upplýsingar um það hjá samtökum launþega, hvernig þeir mundu una þessu. Og fari svo, að fulltrúar stéttafélaganna verði sammála, þá sakar ekki leyfi þeirra. Ég tel þvert á móti rétt og vel farið, að stj. afli sér þessarar heimildar, ef hún getur.
Ég hef þá farið nokkrum orðum um þær brtt., sem fyrir liggja frá mér og hv. þm. Hafnf., og ég vil endurtaka það enn einu sinni, að Alþfl. vill gjarnan fá samkomulag um þetta mál, en þó með því ófrávíkjanlega skilyrði, að tekin séu til greina þau höfuðatriði, sem ég hef bent á. Alþfl. óskar ekki eftir neinu öðru fyrir hönd launastéttanna en að þeim sé sýnt réttlæti. Hann óskar þess ekki, að launastéttirnar fái nein forréttindi fram yfir aðrar stéttir þjóðfélagsins, en hann vill ekki fallast á, að þær séu beittar misrétti. Till. Alþfl. eru byggðar á því eingöngu.
Ég vildi nú, að hæstv. ríkisstj. léti heyra, hvort hún teldi ekki brtt. okkar við till. hennar heppilegar og mælti með, að þær yrðu samþ. Tel ég þá að meiri hl. Alþ. gæti sameinazt á þeim grundvelli. Á því er enginn vafi, að það þarf að gera slíkar ráðstafanir, sem þarna er lagt til, að gerðar séu, og ég hygg, að þær verði betur gerðar með því að samþykkja till. okkar en till. fjhn., þó að ég sjái þar tilraun til að leysa málið. En í þeirri till. finnst mér of miklu skotið til framtíðarinnar. Ég ætla, að sterkari og betri grundvöllur fáist með brtt. okkar við brtt. stj. en með till. fjhn. En að þeim föllnum mundi Alþýðuflokkurinn athuga, hvort hann getur fallizt á till. fjhn.