08.04.1943
Neðri deild: 93. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég hef leitt þessar umræður hjá mér til þessa, en af því að það hefur atvikazt svo, að ég hef verið formaður bæði í mjólkurverðlagsnefnd og kjötverðlagsnefnd lengst af, og af því að því hefur verið haldið fram hér eins og í blöðum og á mannfundum áður, að landbúnaðarvörurnar hafi fyrst verið hækkaðar og af þeirri hækkun hafi síðan leitt alla verðbólguna, þá finn ég ástæðu til að upplýsa þetta mál, svo að menn heyri þó hið rétta, hvort sem því svo verður trúað eða ekki. Það var 8. jan. 1940, sem rætt var um að hækka mjólkurverð. Vísitala kauplagsnefndar hafði þá hækkað, og kom öllum saman um, að eftir því yrði mjólkin að hækka um 3 aura. En auk þess var vitað, að kostnaður við dreifingu og rekstur mjólkurbúanna hafði aukizt, og urðu nokkuð skiptar skoðanir um, hvort seljendur mjólkurinnar ættu að bera það og mjólk til þeirra því lækka; eða neytendur, og mjólkin þá hækka, sem nemi þeim kostnaði fram yfir það, sem vísitala kauplagsnefndar sagði til um. Þetta komst til þáverandi ríkisstjórnar, sem féllst á, að neytendur yrðu í hærra mjólkurverði að bera aukinn dreifingarkostnað, svo að bændur fengju til sín verð, sem væri þeim mun hærra en áður, sem nemi hækkun kaups samkv. vísitölu, eða 3 aurum.

Ég hafði reynt að gera mér ljóst, hver þessi aukni kostnaður væri, og taldi hann vera um 2 aura á lítra. Frá hálfu fulltrúa neytenda var því haldið fram, að þetta væri of hátt, það væri mest einn eyrir. Líka þessi ágreiningur komst til ríkisstj., og 13. jan. varð það að samkomulagi, að Björn Árnason og Ari Thorlacius skyldu fara gegnum reikninga samsölunnar og búanna og finna eftir verði á kolum, umbúðapappír, hleypi o.s.frv., hver kostnaður væri nú, miðað við áður, en í bili yrði mjólkin aðeins hækkuð um 4 aura í stað 5, er ég taldi þurfa. Eftir sex vikna starf fundu þeir Ari og Björn, að kostnaðurinn var 2.16 aurar pr. lítra, eða eins og ég hafði sagt hann vera, og í marz fengum við fyrst að hækka um síðasta eyrinn af þeim 5, sem átti að hækka um í ársbyrjun. Allt árið 1940 var síðan fylgt þeirri reglu að hækka mjólkurverðið eftir kaupvísitölu, að viðbættum þeim kostnaði, er áætlaður var, að orðið væri á hverjum tíma á dreifingunni og vinnslunni. Alltaf var því haldið fram, að áætlun mín um, hver hann væri orðinn, væri of há, en þó varð niðurstaða ársins sú, að verðið til bænda varð heldur lægra en kaupvísitalan sagði til um, og kom það af því, að ekki fékkst fyrr en í marz, að þeir Ari og Björn höfðu lokið rannsókn sinni, að taka fullt tillit til þess kostnaðar, er varð á dreifingunni Mér var það ljóst haustið 1940, að kaupvísitala framfærslunefndar og kostnaðarvísitala landbúnaðarvaranna var hætt að fylgjast að, en tók þó ekkert tillit til þess fyrr en í jan. 1941. Bændur fundu þetta sama, og stærsti kúabóndi landsins, Thor Jensen, fór að selja kýr sínar og búa sig undir að hætta af þessari ástæðu. Kaup, sem veturinn 1939–1940 hafði verið 100, var 1940–41 orðið um 300, og sá liður í kostnaðinum við framleiðsluna hafði því stórhækkað, þótt taxtakaup bæjanna væri óbreytt.

Þá var farið að reyna að finna kostnaðarvísitölu mjólkurinnar og árið 1939 lagt, til grundvallar, og þá bæði tekið meðal bú eftir búreikningaskrifstofu ríkisins, og meðal bú eftir framtölum bænda í skattskýrslum, og síðan reynt að finna á hverjum tíma, hvað hinir einstöku kostnaðarliðir hefðu hækkað frá 1939, og eftir því hvert mjólkurverðið þyrfti að vera. Hvernig þetta hefur tekizt, er ekki mitt að dæma um, en ég fullyrði, að þegar nefnd sú, er á að reyna að finna vísitölukostnað landbúnaðarvaranna, hefur gert það, þá muni það sýna sig ljóslega, að það hefur hvað mjólkina snertir, verið nærri lagi. Það var þá líka svo, þegar mjólkurverði var breytt í nóv. í vetur, að allir nm. voru sammála um, að mjólkin þyrfti að hækka, en sumir lögðu trúnað á þau ummæli fjmrh., að hans ríkisstjórn mundi strax og þing kæmi saman, gera ráðstafanir til að hækka kaup og verðlag, lækka verðbólguna, og vildu bíða þess, en taka boði hans um að ríkisstjórnin þangað til greiddi mismun á þáverandi mjólkurverði, sem var 1.50, og því er nefndin taldi það þurfa að verða 1.15. Þetta vildi meiri hlutinn ekki. Bæði treysti hann ráðherra í engu, og vildi ekki eins og þá stóð láta ríkið borga með mjólkinni, þar sem kaupendur þá voru meir en nógir.

Nokkru öðru máli hefur verið að gegna með kjötið. Af því selst á venjulegum tíma um helmingur í landinu. Verðjöfnunargjald er ákveðið í lögum og því hægt að vita, hvað hægt væri að hafa til að jafna verðlag á kjötinu, sem selt er úr landi, og því, sem selt er innan lands. Og þar sem takmarkað er, hver verðmunurinn má að eðlilegum hætti vera á útflutningskjötinu og því, sem selt er innan lands, þá hefur alltaf ráðið mestu verðlag á því, hvað hægt væri að selja þann hlutann, er út þarf að flytja. Og síðan erlendir kaupendur urðu hér á landi, þá hvað þeir mundu fást til að gefa til þess að kjötið seldist allt. Eftir þessum sjónarmiðum var þar farið, og það er vitað, að bæði 1940 og 1941 lá það verð, er vogandi var að setja á kjötið, neðan við kostnaðarvísitölu, miðað við 1939, en það munaði ekki miklu, og kjötið varð að seljast.

Af þessu vona ég menn sjái, að það er alrangt að halda því fram, að landbúnaðarvörur hafi hækkað á undan kaupinu. Þær hafa hækkað, vegna þess að kaupið hefur hækkað, en hitt er svo annað mál, að kaupið í sveitinni hækkaði langt á undan kaupi í kaupstöðunum og margfalt meira. Til þess lágu eðlilegar ástæður á vinnumarkaðinum, en mjólkin er ekki hækkuð fyrr en 3 mánuðum eftir að hlutföllin milli kaups í sveit og kaupstað hafði raskazt, og kjöt svipað.

Bæði frv. ríkisstj., brtt. hennar og brtt. fjhn. hafa gengið út á að láta landbúnaðarafurðir lækka og það verða til að lækka vísitöluna. Framkvæmd þessi er nokkuð óljós, eins og till. eru orðaðar. Hvernig hugsar stjórnin sér, að uppbótargreiðslu verði hagað á stað eins og Vestmannaeyjum, þar sem 70 mjólkurframleiðendur selja mjólk, hver í sínu lagi beint til neytenda? Hvernig verður það þá á stað eins og Keflavík, Sandgerði, Siglufirði o.s.frv.? Í slíkum stöðum yrði að snúa sér til ótal einstaklinga og oft engin tök á að dæma um hinar og aðrar óglöggar upplýsingar, sem gefnar yrðu. Það getur vel verið, að bæði fjhn. og ríkisstj. hafi hugsað fyrirkomulagið allt út í hörgul, — enn verður þess ekki vart.

Ríkisstj. gerir ráð fyrir verðlækkun framvegis í samræmi við lækkun framfærsluvísitölu. Ég er hræddur um, að þarna yrði verulega gengið á hluta bændastéttarinnar, án þess að nokku kæmi í staðinn. Undanfarna daga hef ég verið að leita fyrir mér hjá mönnum, sem vanir eru að fara í sveit á sumrin, hvaða kaup þeir ætli nú að setja upp. Þeir fást alls ekki fyrir lægra kaup en í fyrra, þótt vísitala lækki, heldur setja þeir hærra upp. Í haust settu þeir upp 800 kr. á mán. og allt fritt, en fóru í jan.-febr. niður í 500 kr. á mán. Nú eru kröfurnar og boðin aftur komin hærra en þau voru í haust og munu alltaf verða hærri en goldið var í fyrra. Þó að ríkissjóður borgi uppbætur á vörurnar, svo að bændur fái óbreytt verð nema lækkað eftir framfærsluvísitölu, fá þeir mjög skarðan hlut, meðan framleiðslukostnaður minnkar ekkert. Kostnaður við kartöfluframleiðslu stórhækkar, tilbúinn áburður hækkar um 100%, ef sú hækkun á frögtum, sem „Eimskip“ vill fá, verður samþykkt, og hvaða ráðstafanir, sem gerðar verða til að láta ekki kartöflur hækka, verða til tjóns, þá þyrftum við e.t.v. ekki að flytja inn svolitla viðbót af þeim eins og nú, heldur mestan kartöfluforðann.

Eins og þessum málum er nú komið, held ég hyggilegast sé að gera ekki í bili neitt verulegt til að lækka dýrtíðina, en fyrst og fremst eigi að tryggja ríkissjóði tekjur til að mæta því, sem yfir kann að dynja, og skipa þá nefnd, sem ráðgerð er, til að reyna að finna þann grundvöll, sem á megi byggja eðlileg hlutföll kaupgjalds og afurðaverðs, — þótt ég viðurkenni aldrei grundvöll, sem nær ekki til kaupgjalds eins og það hefur breytzt í sveitum. — Í stað bráðabirgðaráðstafana til að lækka vísitölu með framlögum úr ríkissjóði held ég nægi að skipa fyrst þessa nefnd, sem lyki störfum ekki síðar en í ágúst, og hvort sem hún gerir álit óskipt eða sem meiri og minni hluti, kemur þá fyrst til þingsins kasta að stíga afdrifarík spor í lækkunarátt, ef unnt er á grundvelli þeirrar n. Eins og sessunautur minn, hv. 2. þm. Rang. (IngJ) sagði áðan, eru ákaflega margir, sem finnst þeir hafa fullar hendur fjár og eru ekkert fíknir í að lækka vísitölu fyrr en eitthvað kreppir að. Þetta viðhorf almennings getur breytzt á ekkert löngum tíma. Þegar kemur að því að semja um verð á útflutningsvöru okkar, er hætt við, að hún a.m.k. hækki ekki í verði, og þá getur margt breytzt af þeim orsökum. Áður þarf að reyna að fá grundvöll að samkomulagi og heimila ríkisstj. einhverja fjárhæð til að halda verðlagi í horfinu eða láta það fremur siga.

Það þarf víst ekki að orðlengja frekar, að ég tel, að þegar slík n. er búin að skila áliti og almenningur búinn að sjá, að vísítala landbúnaðarframleiðslunnar er eitthvað dálitið uppi á 4. hundraðinu, þá verði illt að þurfa að hækka aftur þær vörur, sem búið yrði að lækka með samþ. þessara till., og væri betra að rasa þar ekki fyrir ráð fram þessa fáu mánuði, sem bíða þarf.

Þótt ég sé ekki samþykkur till. ríkisstj. og enda ekki till. fjhn. heldur, er ég henni ákaflega þakklátúr fyrir, að hún vill að málinu vinna og ekki fljóta sofandi að feigðarósi, eins og fyrverandi ríkisstjórn gerði, sem lét hverjum degi nægja sínar þjáningar og aldrei hugsaði fram í tímann.