09.04.1943
Neðri deild: 94. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í B-deild Alþingistíðinda. (922)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Áki Jakobsson:
Það er örstutt. Ég vil aðeins taka fram, að það er ekki rétt hjá hv. 4. þm. Reykv., að ég leggi til, að afurðaverðið verði lögbundið, því að ég geri ráð fyrir, að það verði fram til 15. sept. látið fylgjast með vísitölunni, og þó bætt við 45% og síðan látið fylgja vísitölunni nema fram til 15. maí, en fram að þeim tíma verði verðið það, sem það er nú.
Það var eitt atriði, sem ég gleymdi í sambandi við till. Alþýðuflokksmanna. Ef hún er samþ., þá er niður felld heimild, sem er í till. n., til stj. um það, að lagðar séu 3 millj. kr. í sjóð til atvinnutrygginga eftir stríð, sem nánar er ákveðið með samkomulagi við Alþýðusambandið í sérstakri reglugerð, sem samningan. gerir till. um.
Það er gert ráð fyrir í till. n. að leita samninga við Alþýðusamband Íslands og önnur sambönd launþega um, að sú lækkun á landbúnaðarvörum, sem hefur áhrif á vísitöluna, til lækkunar, verði látin gilda frá 1. þess mánaðar, sem næst kemur á eftir. Reiknað hefur verið, hvað miklu þetta munar, og hefur það verið lauslega áætlað um 3 millj. kr. Þess vegna taldi n. rétt, að þessar 8 millj. kr., sem eru ekki borgaðar launþegum, ef samkomulag fæst, verði lagt í þennan sérstaka sjóð til atvinnutrygginga. Till. Alþýðuflokksmanna ganga í þá átt að fella þetta niður. Verður ekki annað séð en að þeir vilji, ef þessi brtt. er samþ., halda sér við till. stj. og fella till n. Þessu hagsmunamáli er því stefnt í voða með till. þeirra.