16.12.1942
Sameinað þing: 8. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

Stjórnarskipti

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. Háttvirtu alþingismenn. — Eins og yður er kunnugt, hefur hið háa Alþingi reynt, að því er virðist til þrautar sem stendur, að mynda stjórn, er fyrir fram hefði stuðning Alþingis. Með því að þetta hefur ekki tekizt, þá hefur herra ríkisstjórinn farið þá leið að skipa menn í ráðuneyti án atbeina Alþingis. Nú hef ég og samstarfsmenn mínir í hinu nýja ráðuneyti tekizt þennan vanda á hendur. Kemur þá væntanlega í ljós, er ráðuneytið ber fram tillögur til úrlausnar brýnustu vandamálunum, hvort hið háa Alþingi vill vinna með því eða ekki.

Ráðuneytið telur það höfuðverkefni sitt að vinna bug á dýrtíðinni, með því fyrst og fremst að setja skorður við frekari verðlagsbólgu, meðan leitazt er við að lækna meinsemdina og vinna hug á erfiðleikunum.

Ráðuneytið ætlar sér að vinna að því, að atvinnuvegum landsmanna, sem nú eru margir komnir að stöðvun, verði komið á heilbrigðan grundvöll, svo að útflutningsvörur verði framleiddar innan þeirra takmarka, sem sett eru með sölusamningum vorum m.a. við Bandaríki Norður-Ameríku. Þá verður einnig þegar í stað að gera þær ráðstafanir um innflutningsverzlun landsins, að henni verði komið í það horf, sem skipakostur landsmanna og ófriðarástandið gerir nauðsynlegt. Enn fremur ber nauðsyn til, að verðlagseftirlitið verði látið taka til allra vara og gæða, sem seldar eru almenningi, og að tryggja í þeim málum svo örugga og einbeitta framkvæmd sem verða má. Jafnframt verða að sjálfsögðu athuguð ráð til að standast þau útgjöld, sem dýrtíðarráðstafanirnar hljóta að hafa í för með sér.

Ráðuneytið mun kosta kapps um að efla og treysta vináttu við viðskiptaþjóðir vorar. Eins og stendur verður lögð sérstök áherzla á vinsamlega sambúð við Bandaríki Norður-Ameríku og Stóra-Bretland.

Ráðuneytið vill eftir föngum vinna að alþjóðarheill. Auðvitað mun það geta sætt mismunandi dómum, hvort því tekst að finna réttar leiðir. Ef hinu háa Alþingi og ráðuneytinu tekst að sameina krafta sína til lausnar framangreindum vandamálum, þá vonar ráðuneytið, að samvinnan verði þjóðinni til hagsmuna.

Að lokum skal þess getið, að fyrirhugað er, að ráðuneytið verði skipað fimm mönnum. En ekki hefur enn unnizt tími til þess að skipa fimmta manninn, sem væntanlega fer með félagsmálin.

Á 12. fundi í Sþ., 4. jan., utan dagskrár, mælti