09.04.1943
Neðri deild: 94. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (933)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Bjarni Ásgeirsson:

Ég hef leyft mér ásamt 5 öðrum þm. að flytja brtt. á þskj. 705 við brtt. fjhn. á þskj. 651. Ég mun ekki blanda mér í þær umr., sem nú hafa farið hér fram, þótt ástæða væri til að leiðrétta sumt, m. a. orð hv. 6. landsk. (LJós), en úr því yrðu ekki nema þrætur. Þessar till. eru bornar fram af okkur sem e.k. samkomulagstilraun og það í tvennum skilningi, fyrst og fremst milli tillagna ríkisstj. og fjhn. og einstakra þm., sem eru meira og minna óánægðir með eldri till. allar, og í öðru lagi sem málamiðlun með hlutaðeigandi stéttum. Í till. okkar er ekkert alveg nýtt, ég hygg, að allt, sem þar er, hafi komið fram í eldri till. stjórnarinnar, fjhn. eða einstakra þm., en við reyndum að sameina það, sem flestir þm. virðast geta orðið sammála um, en sleppa hinu, sem mestum ágreiningi veldur. Við ætlumst eindregið til þess, að verkamenn og bændur, sem mest eiga undir því, að heilbrigt samkomulag náist, geti gengið að samningaborði sem jafnháir aðilar, er gera heiðarlega tilraun til að leysa málin með örðugu átaki báðir saman. Ýmsir eru vondaufir um árangur. Ég held það geti tekizt og tekizt vel. Við höfum ekki rétt til að örvænta um það. S.l. haust héldu fulltrúar ýmissa verklýðsfélaga fundi í Rvík, og var um það rætt, að lækkun dýrtíðar ætti að byggjast á hlutfallslega jafnri lækkun innlends afurðaverðs og kaupgjalds. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja samþykkti þá ályktun um, að reynt yrði að lækka á þessum grundvelli, og sendi hana Búnaðarfél. Íslands með áskorun til þess um að beita sér fyrir málinu. Búnaðarfél. svaraði og taldi sér ljúft og skylt að taka það til athugunar. Á búnaðarþingi voru gerðar um þetta ályktanir, sem mörgum þm. munu kunnar. Enginn hefur enn gengizt fyrir, að þetta yrði reynt í alvöru. Það er þingsins og ríkisstj. að gera það sem allra fyrst.

Með till. á þskj. 705 er gert ráð fyrir, að aðaltilraunin í þessum efnum verði gerð af stéttunum, sem jafnréttháum aðilum. Á það skortir of mikið í till., sem fram voru komnar. Í fyrstu var því slegið föstu, að launastéttin eða verkamenn séu fullkomlega frjálsir að ákvarða um sín mál. En bændur, sem geta að vísu sætt sig við sömu ákvæði og sömu höft og aðrar stéttir, geta aldrei unað því að vera beittir meira ófrelsi en aðrir, eins og nú er að stefnt. Þeir kref jast þess að vera alfrjálsir, meðan á samningunum stendur. Þó að þvingun sé aðeins beitt til bráðabirgða, er hvorugum unnt að sætta sig við hana, meðan aðrir samningsaðilar eru sjálfráðir. Á þessu eru till. okkar á þskj. 705 byggðar, og við ætlumst til, að eftir þeim verði reynt að finna þann grundvöll verðlags á innlendum afurðum annars vegar og kaupgjalds hins vegar, sem hægt sé að fóta sig á í framtíðinni og byggja á varanlegar umbætur. Ég vil líka benda á, hve mikið veltur á þeim útreikningi, sem hér hefur verið borinn fram, á því grundvallaratriði, hver grunnkaupshækkun hefur raunverulega orðið. Það hefur verið deilt um 16% og allt upp í 76%. Meðan enginn tryggur grundvöllur er fenginn, er hæpið af Alþ. að fara að lögfesta neitt í þessu efni. Slík ákvæði geta ekki orðið nema af handahófi gerð til þess eins að setja illt blóð í þann aðilann, sem telur sig rangindum beittan. Ég tel rétt, áður en Alþ. lögbýður nokkuð, að reynt sé með aðstoð hæfustu manna að finna þær tölur, sem ná meiri viðurkenningu en þær, sem deilt hefur verið um í þessum umr.

Því hefur verið haldið fram um brtt. okkar á þskj. 705, að þar í væri þeim ábótavant samanborið við aðrar till., að þar væri í öllum verulegum atriðum slegið á frest framkvæmdum til haustsins, er úrskurður fengist hjá þeirri n., sem á að leita að hlutfallinu milli verkkaups og verðlags afurða. Þetta er ekki rétt. Aðeins er í þeim fólgið meira sjálfræði en í öðrum till. um það, hvernig hagað verði aðgerðum. Það er líka gert ráð fyrir, að nú þegar verði leitað samkomulags milli þessara tveggja aðila, Búnaðarfél. og Alþýðusambandsins, um einhverjar þær lækkanir, sem samkomulag gæti orðið um, og þræddar till. fjhn. að nokkru leyti, svo að sami árangur ætti að nást, hvort farið væri eftir till. okkar eða fjhn.

Það er vitaskuld óafsakanlegt af Alþ. að vera hirðulaust um að kveða niður dýrtíðarbölið, en menn mega ekki fyllast þeirri óþreyju, þó að róðurinn sækist seint, að leggja árar í bát. Okkur hlýtur að skiljast, að örðugra er að koma dýrtíðinni niður en stöðva hana, og að margföld átök þarf til að koma henni niður réttlátlega á við að halda henni í skefjum. Slíkir sigrar verða ekki unnir með áhlaupum, heldur með þrotlausu áframhaldi. Við verðum að feta okkur áfram, þar til við náum takmarkinu, sem keppt er að. Í þessu máli eru ekki til nema tvær leiðir: lögfestingarleiðin og samningaleiðin. Lögfestingarleiðin hafði áður fylgi hér, en hefur það ekki lengur. Við verðum að taka hinum rökréttu afleiðingum af því og reyna samkomulagsleiðina, þannig að við byggjum alveg á samkomulagsvilja og samkomulagsmöguleikum, svo að verkafólk og bændur geti staðið sem jafnast að vígi.

Ég geri ekki ráð fyrir, að ég þurfi að fara út í einstök atriði brtt. Þær skýra sig sjálfar. Aðalatriðið er þetta: Samkomulagsumleitunum er hleypt fram fyrir alla lögbindingu. Þó að till. séu bornar fram sem brtt. við till. stj., lítum við svo á, að verði þær samþ., sé þar með vikið til hliðar öðrum sams konar tilraunum í öðrum till.

Í 5. lið er gerð till. um 3 millj. kr. framlag til að fyrirbyggja hækkun og skuli ríkisstj. hafa frjálsar hendur um að verja því fé. Sömuleiðis er inn í 5. lið tekin í aðalatriðum till. frá fjhn. um að leggja fram 3 millj. til að vinna gegn atvinnuleysi til að ganga á móti verkamönnum til samræmis við tryggingar á greiðslum á útflutningsafurðum bænda, ef þær seljast ekki. Það er breytt forminu á þessu, því að við teljum eðlilegt að þar sem samþ. hafa verið l. um framkvæmdasjóð ríkisins, sé ekki rétt að skipta þeim greiðslum í fleiri kafla, því að það sama er í höfuðatriðum tilgangurinn með báðum þessum fjárframlögum, það að leggja fyrir fé, sem hægt sé að grípa til, til að auka atvinnuna í landinu, þegar fer að dragast saman og þröng verður fyrir dyrum um verkefni fyrir vinnandi fólk. Samkv. því, sem talað hefur verið fyrir till. fjhn., vakir það sama fyrir henni, og því er eðlilegast, að þetta fé renni í sama sjóð, en ef það skyldi ekki þykja nægilega tryggt, að þessu fé verði varið til að bæta úr atvinnuleysi, tökum við sérstaklega fram um það í till., svo að ekki geti leikið á neinn vafi.

Ég vænti, að hæstv. stj. og fjhn. og hv. þm. sjái sér fært að fylgja till., því að að dómi okkar flm. eru þær það eina, sem hægt ætti að vera að sameina alla aðila um til að standa á móti frekari verðbólgu.