09.04.1943
Neðri deild: 94. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (950)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. — Aðeins út af þeim ummælum hv. síðasta ræðumanns (ÞG) vil ég segja nokkur orð. Hann var að tala um, að það mundi liggja vel eða illa á þm., beinlínis eftir því, hvort þeir gætu selt sig og fengið góð tilboð eða ekki um að selja sig. Hann sagði, að það lægi mjög illa á framsóknarmönnum, en svo sagði hann, að það lægi prýðilega á sér. Eftir því hefur hann fengið sæmileg tilboð og fengið gróða upp úr sinni „spekulation.“
En viðvíkjandi því, sem hann beindi að mér sérstaklega, vil ég taka fram, að ég vil heldur vera trúlaus heldur en að lifa á keyptri trú eða seldri.