10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (965)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Jakob Möller:

Á þskj. 715 eru nokkrar brtt. frá mér, og eru þær miðaðar við þær umræður, sem hér hafa farið fram. Ég hef heyrt, að sumum hv. þm. þyki gæta nokkurs ósamræmis í ákvæðum þessa frv. viðvíkjandi félagssamtökum launþega annars vegar og bænda hins vegar.

Til samræmis hef ég nú flutt brtt. við 3. og 5. gr., þar sem nánar er mælt fyrir um víðskipti ríkisvaldsins við þessa aðila, og vænti ég þess, að þær miði til sátta.

Hv. 2. þm. Skagf. flytur sams konar brtt. og ég við 1. málsgr. 5. gr., aðeins með öðru orðalagi. En efni hennar er hið sama, að ákveða verð á landbúnaðarafurðum að fengnu samþykki Búnaðarfélags Íslands.

Þá á ég brtt. við 4. gr. um skipun n. þeirrar, sem á að finna vísitölu landbúnaðarafurða, þar sem ég legg til, að hún verði skipuð 5 mönnum, eins og stóð í till. Alþfl.-manna, sem felld var hér í gær. Vænti ég, að hv. forseti sjái sér fært að bera till. mína upp, þótt þessi till. væri felld í gær. Ég legg til, eins og þar var gert, að opinberir starfsmenn verði ekki skipaðir í n., heldur njóti hún aðstoðar þeirra. En eftir sem áður þarf n. að verða sammála, til þess að til framkvæmda komi.

Þá er loks brtt. við 6. gr., þar sem gert er ráð fyrir 3 millj. kr. í atvinnutryggingasjóð. Till. mín er bundin við samkomulag það, sem ráðgert er í 3. gr. Samkv. þeirri gr. í frv. skal stj., en eftir minni till. er henni heimilt að fengnu samkomulagi við félagssambönd launþega að ákveða, að í næsta mánuði eftir að l. þessi öðlast gildi skuli greiðsla verðlagsuppbótar á kaupgjald og laun fara fram eftir þeirri vísitölu, sem byggð er á verðlaginu 1. dag þess mánaðar.

Annars vil ég geta þess, að ég hygg, að þetta muni erfitt í framkvæmdinni. Það er erfitt að reikna út vísitölu fyrir hvern mánuð, fyrr en liðinn er 1/2 til 2/3 af honum. Hætt er við, að þetta yrði þá ágizkunarvísitala, sem síðar yrði þá að leiðrétta eftir þeirri réttu, svo að ég get ekki gert ráð fyrir, að þetta komi til framkvæmda, enda þótt samkomulag náist. Eigi að síður er þetta komið inn í frv. og því rétt að samþ. það. Mín till. er aðeins til samræmingar, en í henni felst engin efnisbreyt.

Í brtt. minni við 6. gr. felst lítils háttar formsbreyt., að mþn. í atvinnumálum skuli ekki setja atvinnutryggingasjóði reglugerð, heldur stj. sjálf eða ráðh., og getur hann þá leitað álits þeirra, er honum sýnist, og lægi beinast fyrir að leita álits Tryggingarstofnunar ríkisins.

Ég hef athugað það í sambandi við þetta mál, að það orki e.t.v. nokkuð tvímælis, hvaða fjárgreiðsluheimild stj. hafi í sambandi við framkvæmd þessa frv. er að l. verður. Það gæti komið til greina víðtækari ráðstafanir til að halda dýrtíðinni í skefjum en gert er ráð fyrir í þessu frv. En ég hygg, að þá yrði lítið svo á, að stj. hefði þær greiðsluheimildir í öðrum l. sem hér er ekki til að dreifa, svo að ekki þurfi um þetta nánar að ræða.