10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (981)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fjhn. flytur að þessu sinni ekki nema eina brtt. við frv. á þskj. 709, og er sú brtt. í rauninni aðeins leiðrétting, sem er hægt að samþ. án atkvgr. Að öðru leyti mun n. ekki óska eftir að láta í ljósi sameiginlegt álit um brtt., sem liggja fyrir.

Það, sem gerzt hefur í þessu máli, er, að búið er að tryggja, að launum verði ekki breytt nema með samkomulagi við launþega, og eins hefur verið ákveðið, að hlutfallið milli launa og afurða skuli ekki breytast, meðan rannsókn stendur yfir, en þó skuli breytast útsöluverð á landbúnaðarafurðum með því að greiða uppbætur á þær til að skapa lækkun á vísitölunni, meðan þessar bráðabirgðaráðstafanir standa yfir. Þetta er kjarninn í till. n.

Till. þær, er hér liggja fyrir, snerta ekki þennan þátt málsins, og læt ég þær því afskiptalausar.