10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (983)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. — Það, sem gaf mér tilefni til að standa upp fyrir utan brtt., var það, sem hv. þm. N.-Ísf. beindi til mín. Hann var að minnast á það, að með þeirri till., sem var samþ. í gær við 7. gr., væri verið að stofna því í hættu, að menn gætu fengið ný fiskiskip. Ég vil vekja eftirtekt þessa hv. þm. á því, að með þessari gr. er meira lagt í þennan sjóð en áður var gert, og þess vegna verða þessi ákvæði til að gera hann öflugri en hann er nú.
Viðvíkjandi spursmálinu, sem hefur verið rætt í sambandi við þetta um þessa einu millj., sem mætti leggja í endurbyggingarsjóð þeirra þriggja félaga, sem eiga fleiri en 1 togara, þá býst ég við, að ef ákvæði l. eru þannig, þá verði þeim litil skotaskuld úr að deila sér í fleiri hlutafélög. Þau hafa leikið annað eins. Ég á eftir að sjá, að það yrðu sérstök vandræði fyrir þau að safna fé í nýbyggingarsjóð, þó að þetta ákvæði væri í l.
En svo er hitt atriðið, öryggið fyrir því, að þessi sjóður verði notaður til nýbygginga. Eins og nú er, þá má nota þennan sjóð til að jafna með taprekstur. Það er því engin trygging fyrir því, að fiskiflotinn verði endurbyggður fyrir þetta fé. Það er ekki til neins að vera að koma hér í þingið og belgja sig út með það, að verið sé að tryggja, að sjómenn fái ný fiskiskip eftir stríðið. Að svo miklu leyti sem þessi l. geta gert eitthvað til að tryggja það, þá er þessi 7. gr., sem nú er komin í l., miklu betri trygging fyrir því heldur en þau skattal., sem nú gilda. Ég hef áður bent á, að það verður að gera þá breyt., að alls ekki megi taka þennan sjóð í taprekstur, svo að tryggt sé, að þjóðin fái nýjan flota fyrir hann.
Viðvíkjandi hinu, sem hv. þm. N.-Ísf. minntist á, að það væri þjóðinni til svo mikilla heilla, að nokkur togarafélög kæmu rík og sterk út úr þessu stríði, þá vil ég varpa fram einni spurningu: Hvernig mundu þau nota sér þá aðstöðu? Mundu þau nota hana til þess að halda skipunum alltaf gangandi, svo að þau gæfu alltaf atvinnu? Nei, þau mundu gera það, meðan þau græddu. Það eru eins miklar líkur til, að þeir væru stöðvaðir helminginn af tímanum, því að þessir ríku menu mundu hugsa sem svo: „Við viljum ekki halda þeim úti, þegar við töpum á þeim, til þess að eyða ekki okkar fé.“ Meðan hér er ekki þjóðfélag, sem tryggir að þessi auður veiti varanlega atvinnu, þá kennir reynslan okkur, að slíkur auður verður notaður fyrst og fremst til að knýja sjómenn með sultarsvipunni til að lækka kaupið, þegar togarareksturinn gæfi tap. Það, sem við viljum stefna að í þessu sambandi, er, að þjóðin sé rík og sterk, en ekki, að nokkrir auðjöfrar séu svo voldugir, að þeir geti með auði sínum beygt þjóðina undir sína svipu. Ég hefði ekki farið að ræða þetta, ef þessi hv. þm. hefði ekki óskað eftir að fara út í umr. um stríðsgróðann og notkun hans. Hann getur fengið það, ef hann óskar sérstaklega eftir því.
Það hefur komið fram skrifl. brtt. við 7. gr., að í staðinn fyrir að verja því fé, sem þar um ræðir, til að gera endurbætur á alþýðutryggingunum, þá verði því varið í raforkusjóð. Í þennan sjóð hefur, eftir því sem hæstv. fjmrh. upplýsir, verið lagt um 10 millj. kr. Alþýðutryggingarnar bíða hins vegar endurbóta, sem þjóðin vonar eftir. Ef þessi brtt. verður samþ., þá geri ég ráð fyrir, að þm. Sósfl. greiði atkv. á móti þessari gr. og geri síðan ráðstafanir til að taka hana aftur upp í fyrri mynd sinni.
Viðvíkjandi þeim brtt. öðrum, sem hér liggja fyrir, þá er ég sérstaklega mótfallinn þeim till., sem fyrir liggja á þskj. 715 frá hv. 3. þm. Reykv. Ég sé ekki betur en þar sé fyrst og fremst miðað við það eitt að strika Alþýðusamband Íslands alveg út, á sama tíma og verið er að setja Búnaðarfélag Íslands inn. Ég er alveg á móti þessari stefnu.
Ég skal ekki orðlengja um brtt. á þskj. 708. Ég ætla ekki að endurtaka þau rök, sem ég hef þar fram fært.