12.04.1943
Efri deild: 97. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (997)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. — Ég skal mjög stytta mál mitt við þessar umr., en mun sýna afstöðu mína til þess við framhaldandi meðferð þess hér í d. Frv. þetta er kallað frv. til l. um dýrtíðarráðstafanir, og þegar það var flutt, sýndi það réttilega skilning á því, að þeir meginþættir dýrtíðarinnar, verðlag á innlendum afurðum og stríðsgróði einstakra manna, væru þau viðfangsefni, sem væri óumflýjanlegt að taka til athugunar, ef dýrtíðarráðstafanirnar ættu að koma að gagni. Till. ríkisstjórnarinnar voru þó að minni hyggju alveg óviðunandi. Skatturinn, sem hún ætlaði að leggja á stríðsgróðann, eignaraukaskatturinn, var sem ekki neitt, einar 3 millj. kr., sem er hverfandi litið miðað við þann feikna gróða, sem hefur fallið í hlut einstakra manna.
Þessi skattur benti þó á það, að ríkisstj. hafði gert sér það ljóst, að stríðsgróðinn væri ein orsök dýrtíðarinnar. Þá er það hitt atriðið, um verðlag á innlendum afurðum og hlutfallið milli þess og kaupgjaldsins. Þar var sá hængur á í frv. stjórnarinnar, að gert var ráð fyrir, að skert skyldu laun verkamanna án tillits til launakjara þeirra. En það voru engar líkur til þess, að samkomulag næðist um að lækka kaup verkamanna, ekki hærra en það nú er, en það er, miðað við Dagsbrúnartaxta, 16.80 kr. grunnkaup á dag, miðað við 8 stunda vinnudag. Það var því ómögulegt að ráðast þarna á til þess að lækka dýrtíðina, enda var þetta fellt niður í Nd. og annað sjónarmið tekið fyrir.
En því er ekki hægt að leyna, að eins og frv. nú er, þá er enga lausn á dýrtíðarmálunum að finna í því. Stríðsgróðinn er látinn því nær óskaddaður, þ.e.a.s., ef verðlækkunarskatturinn verður samþ., þá hækka skattar helzt á háum miðlungstekjum. Ég skal játa, að það er ekki gengið nærri lágtekjunum með þessum skatti, en hann leiðir til þess, að útsvarsálagningin verður meiri á lágar og miðlungstekjur.
Á þetta vildi ég benda nú þegar, og ég tek það fram, að sá skattur, sem ég hafði mest á móti, er enn eftir í frv.
Varðandi afurðaverðið er það að segja, að það atriði er alveg óvíst og öllu skotið á frest, þar til ef samkomulag næst í n. þeirri, sem á að fjalla um þessi atriði. En nú um hríð er gert ráð fyrir að kaupa verðlagið niður með fé úr ríkissjóði, og það verður væntanlega fengið með sköttum. Hvað við tekur, ef ekki næst samkomulag, er ekki vitað.
Þetta þótti mér rétt að benda á við þessa umr., en að öðru leyti mun ég gera fulla grein fyrir afstöðu minni síðar. Þó vil ég enn taka það fram, að það er víss vinningur að lækka vísitöluna úr 262 niður í 230, ef það er gert fljótt og ef nokkuð verður gert síðar, er þannig mun hægra um vik. Ég vildi því spyrja hæstv. ráðh., hvort nokkrar líkur séu til þess að vísitalan fáist niður í 230 stig í byrjun næsta mánaðar eða hvort hún muni aðeins mjakast það smám saman.