24.11.1943
Sameinað þing: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (101)
27. mál, fjárlög 1944
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Háttv. útvarpshlustendur. Þessar eldhúsdagsumr. verða með öðru móti en verið hefur, vegna þess að hæstv. ríkisstj., sú sem nú fer með völd, er skipuð með óvenjulegum hætti. Hún fer ekki með framkvæmdarvaldið í umboði meiri hl. Alþ. En eldhúsdagsumr. eru, þegar stj. er skipuð með venjulegum hætti, fyrst og fremst reikningsuppgjör minni hl. Alþ. við meiri hl. þann, er með völdin fer. En þar sem þingið hefur ekki getað skipað ríkisstj., tel ég bezt fara á því, að deilur séu í aðalatriðum látnar niður falla á ríkisstj. Auðvitað mislíkar okkur framsóknarþm. ýmislegt í framkvæmdum ríkisstj. Það er óneitanlega einkennileg framkvæmd á réttarfarinu í landinu að láta ekki rannsókn fara fram á kosningu í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, eftir að kjörbréfan. og Alþ. hafa eindregið skorað á dómsmrh. að láta framkvæma hana. Við erum ýmsir mjög óánægðir með reglur þær, er stj. virðist hafa sett um hlutfallið milli innflutnings kaupmanna og kaupfélaga. Ekki erum við minna óánægðir með skraninnflutninginn. Fleira mætti fram telja og um deila, eins og gefur að skilja, en verður látið niður falla. En þótt það sé gert, felst ekki í því nein syndakvittun ríkisstj. til handa.
Útgjaldahlið þeirra fjárl., sem nú verða afgr. fyrir árið 1944, verður 90–100 millj. kr., líklega næstum 100 millj. kr. Þetta eitt út af fyrir sig hlýtur að vekja hjá sérhverjum hugsandi manni alvarlega umhugsun um það, hvar fjárhag okkar er komið og hvert við erum að stefna, — eða réttara sagt, hvert okkur er að reka.
Jafnhliða afgreiðslu þessara fjárl. er því lýst yfir af hálfu ríkisstj., að verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir fyrir árið 1942 séu um 15 millj. kr., en handbært fé sé ekki til í ríkissjóði til þess að greiða þessar uppbætur. Ríkissjóður virðist því ekki vera ríkur eftir allt góðærið.
Samhliða þessu sjáum við öll Reykjavíkurblöðin skrifa um það, að atvinnuleysi sé að gera vart við sig hér í næstu bæjum, vegna samdráttar í framkvæmdum, og eitt blaðanna sá ég lýsa ástandinu þannig, að atvinnuleysi væri nú á næstu grösum, atvinnulífið sé að dragast saman, og í ríkissjóð hafi ekki tekizt að safna fjármunum til stórframkvæmda, er atvinnuleysið drepur á dyr.
Hvað sem þessu líður, má telja vafalaust eða vafalítið, að miklir erfiðleikar eru framundan fyrir ríkissjóð, fyrir alla framleiðsluna í landinu og þá um leið fyrir alla landsmenn, af því að atvinnuleysi er bersýnilega yfirvofandi, fyrst ekki gat eða getur náðst samkomulag öflugs meiri hl. Alþingis til þess að afstýra því.
Ráðstafanir, sem að gagni koma til þess að afstýra atvinnuleysi, eru, eins og búið er að fara með fjármál þjóðarinnar, mjög erfiðar. Þessar afleiðingar voru fyrirsjáanlegar og óumflýjanlegar afleiðingar af þeirri fjármálapólitík, sem tekin hefur verið upp í seinni tíð og tvöfaldaði dýrtíðina í landinu á fáum mánuðum á s. l. ári. Þegar sósíalistar, með skæruhernaði sínum vorið 1942, þröngvuðu ríkisstj., sem var eins og vax í höndum þeirra, til þess að hækka kaupið hjá tveimur atvinnustéttum hér í Reykjavík fram úr því, sem var í samræmi við aðra, var auðséð, að aðrar stéttir mundu koma á eftir með kröfur sínar, og það var orðið réttlætismál sannkallað að hækka þær til samræmis.
Af því leiddi, eins og ég orðaði það í kosningabaráttunni vorið 1942, að varnargarðurinn gegn vaxandi dýrtíð, varnargarðurinn gegn ógæfu þjóðarinnar hafi þá þegar vorið 1942 verið brotinn niður af ríkisstj. og alda vaxandi dýrtíðar flæddi yfir landið. Nú er sjálfur raunveruleikinn að sýna okkur afleiðingarnar af þessum verkum. Þær eru nákvæmlega eins og við framsóknarmenn sögðum fyrir: Hrörnun í allri framleiðslu og þá um leið versnandi fjárhagur ríkissjóðs, samdráttur framleiðslunnar, atvinnuleysi. Allt er þetta að koma á daginn, og það er sjálfskaparvíti vegna rangrar fjármálastjórnar, því að við verðum að viðurkenna, að þetta var fyrirsjáanlegt. Og nú liggur þetta allt ljóst fyrir sem staðreynd.
Þegar dýrtíðarvísitalan var hæst á árinu 1941, komst hún upp í 172 stig. Útgjöld ríkisins voru samkv. landsreikningum fyrir árið 1941 32,2 millj. kr. Það er auðsætt, að hefði festing verið gerð á verðlagi og kaupgjaldi haustið 1941, eins og við framsóknarmenn lögðum til, hefðu útgjöld í fjárlögunum síðan og næsta ár verið eitthvað á milli 32–40 millj. kr. með svipuðum framkvæmdum og verið hafa í fjárl. og eru nú.
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri eru tekjur ríkissjóðs árið 1942 86 millj. kr. Ef dýrtíðin hefði verið stöðvuð 1941, hefðu tollatekjurnar orðið eitthvað lítils háttar lægri en þær hafa orðið eftir að dýrtíðin óx, vegna þess að tollar eru reiknaðir af farmgjöldum og þau hafa hækkað vegna dýrtíðarinnar.
Skatttekjur hefðu orðið svipaðar, e. t. v. eitthvað hærri, vegna þess að afkoma framleiðslunnar hefði orðið betri, ef verðlag og kaupgjald var stöðvað. Tekjur ríkissjóðs mundu hafa orðið svipaðar eða lítið lægri en þær voru 1942, þegar þær urðu 86 millj. kr., en útgjöld um 40 millj. kr. Afkoma ríkissjóðs hefði því orðið þannig, að árlegur tekjuafgangur hefði verið og mundi vera á næstu árum tugir millj. kr., sem hefði verið hægt að nota til þess að borga upp allar ríkisskuldir og leggja fyrir stórfé í verðmætum peningum, til þess að verja í stórfelldar framkvæmdir og framfarir eftir styrjöldina, þegar framleiðslan hefur dregizt saman. Nú eru útgjöld ríkisins í fjárl. fyrir 1944 til embættismanna og eftirlaunamanna rúmar 34 millj. kr., eða um tveimur millj. kr. meira en öll útgjöld ríkissjóðs voru árið 1941.
Á árinu 1942 verður ríkissjóður að borga um 15 millj. kr. í uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir til þess að framleiðslan geti staðizt, og nú verður hann að borga niður vöruverð með milljónagreiðslum til að sporna við aukningu frekari dýrtíðar. Ef dýrtíðin hefði verið stöðvuð 1941, kom aldrei til þess, að ríkissjóður þyrfti að greiða þessar uppbætur, sem skipta orðið tugum milljóna og enginn sér fyrir endann á. Þetta er auðsætt, þegar þess er gætt, að 1941 var kjötið kr. 3,20 pr. kg. í heildsölu, en það, sem var selt til útlanda af framleiðslu ársins 1942, seldist fyrir 5,40 pr. kg. Það hefði því, miðað við söluverð innanlands, orðið verulegur hagnaður á landbúnaðarafurðum, sem seldar voru til útlanda, í stað þess halla, sem nú verður að greiða með tugum milljóna úr ríkissjóði af því að dýrtíðinni var sleppt lausri. Önnur framleiðsla hefði og skilað ágætum arði, í stað þess að nú er svo komið, að mikill hluti sjávarútvegsins, þessarar meginauðlindar, þessarar lífæðar íslenzku þjóðarinnar, hefur barizt og berst í bökkum, síðan útveginum var veitt svöðusárið með tvöföldun dýrtíðarinnar 1942.
Eftirfarandi liggur því alveg ljóst fyrir:
1. Ef dýrtíðin hefði verið stöðvuð árið 1941, hefði öll framleiðsla borið sig mætavel. Framleiðslan hefði því enn og á næstu árum skilað arði og veitt næga atvinnu. Samdrátturinn í framleiðslu og framkvæmdum einstaklinga er afleiðing af tvöföldun dýrtíðarinnar 1942, og afleiðing þess aftur er það atvinnuleysi, sem byrjað er að bera á og er framundan óumflýjanlegt, ef ekki er snúið við. Þeir, sem tvöfölduðu dýrtíðina, eru því höfundar atvinnuleysis þess, sem komið er og er framundan.
2. Ef dýrtíðin hefði verið stöðvuð 1941, hefði ríkissjóður getað greitt allar skuldir sínar og lagt fyrir stórfé, tugi milljóna, til framfara og stórframkvæmda, þegar til atvinnuleysis kom eftir styrjöld. Atvinnuleysið hefði komið miklu seinna og ríkissjóður haft fullar hendur fjár til að mæta því. Þeir, sem tvöfölduðu dýrtíðina, tæmdu og ríkissjóðinn.
Þessi þjóð, sem hefur sloppið við hörmungar styrjaldarinnar flestum þjóðum fremur, þjóð, sem hefur haft tækifæri til að framleiða fyrir nærliggjandi þjóðlönd og selja framleiðsluna fyrir hagkvæmt verð, horfir nú fram á byrjandi atvinnuleysi, atvinnuleysi, sem ekki á sér stað nú hjá neinni þjóð með svipaðri aðstöðu. Þessi sjálfskaparvíti hafa verið leidd yfir okkur með óstjórn.
Það lætur dálítið einkennilega í eyrum, þegar þeir, sem hafa leitt þessi sjálfskaparvíti atvinnuleysis yfir þjóðina, linna ekki látum í því að tjá áhuga sinn fyrir að afstýra atvinnuleysi. Það lætur og jafnilla í eyrum, þegar þeir, sem með tvöföldun dýrtíðarinnar hafa valdið því, að ríkissjóður er að tæmast, bera nú fram flestar till. um fjárframlög úr tæmdum ríkissjóðnum og deila síðan á aðra fyrir þá afturhaldssemi að fylgja ekki þessum till. Vissulega er það ekki nema sjálfsagt, að ríkissjóður leggi fram af veikum mætti fé til að endurbyggja skipaflotann. Það er lífsnauðsyn fyrir þjóðina. En ráðlegra hefði það verið að gera ekki sjávarútveginn fyrst með óstjórninni 1942 vanmáttugan til þess að geta endurbyggt sig sjálfur, og ríkissjóðinn alltof fátækan til að hlaupa undir bagga, eins og æskilegt væri.
Ekki er það síður í senn bæði skoplegt og ósvífið, þegar þessir sömu menn deila við hvert tækifæri á þá leið að greiða verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir og framlag til að halda niðri dýrtíðinni. Það er þó deginum ljósara, að ef dýrtíðin hefði ekki verið tvöfölduð 1942, þurfti ekki að greiða þessar uppbætur, að minnsta kosti ekki svo nokkru næmi. Bændur eða fulltrúar þeirra báðu ekki um kapphlaupið, — þeir báðu um stöðvun. Þeir, sem komu skriðunni af stað 1942, eiga því alla sök á því, að greiða þarf allar þessar fjárfúlgur.
En það er æðimargt fleira einkennilegt við framkomu sumra þeirra manna, sem sitja í þessum sölum. Ég veit ekki betur en megnið af þeim léti við síðustu kosningar, haustið 1942, kjósa sig á þing fyrst og fremst fyrir þau afrek að hafa hækkað landbúnaðarvöruverðið, sem var ekki nema sjálfsagt að hækka eftir að kaupið hækkaði, — en aðrir fyrir að hafa hækkað kaupið og fyrir að hafa brotið niður varnargarðinn gegn dýrtíðinni. En þessir herrar, sem voru kosnir og sendir hér inn í þingsalina fyrir það að hafa hækkað verðlagið og kaupið, voru ekki fyrr komnir hér inn fyrir veggina en öllum var orðið ljóst, að það var einmitt þessi hækkun, sem hafði komið öllum framleiðslukostnaði í algert ósamræmi við framleiðslukostnað annarra þjóða. Hækkun kaupgjalds og hækkun verðlags, sem þeir létu kjósa sig á þing fyrir að hafa á komið, var að stefna atvinnulífi þjóðarinnar í stöðvun.
Allan tímann síðan haustið 1942 hefur þessi vísa samkunda setið með sveitta skalla til að finna út, hvernig ætti að lækka dýrtíðina. Og þeir, sem hingað eru kjörnir fyrir það að hafa hækkað — meira að segja tvöfaldað — dýrtíðina á 6 mánuðum, tjá sig nú hafa allra manna mestan áhuga á því að lækka dýrtíðina til að bjarga þjóðinni.
Þið haldið ef til vill; hlustendur góðir, að ég ætli að fara að gera að gamni mínu, þegar ég segi við ykkur eftirfarandi: Þeir, sem létu ykkur kjósa sig á þing fyrir að hafa hækkað kaup og verðlag haustið 1942, þeir sömu menn munu við næstu kosningar krefjast þess af ykkur, að þið kjósið þá á þing fyrir það, hvað þeir hafi sýnt mikinn og fölskvalausan áhuga á því að lækka þá dýrtíð, sem þið haustið 1942 kusuð þá fyrir að þeir höfðu hækkað. Þið getið verið viss um, að þetta verður aðalnúmerið í kosningunum, ef ekkert alveg sérstakt hendir. Þið vitið það víst flest, sem mál mitt heyrið, að kjöt skemmdist hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, því að sökum stríðsins hafa verið lítt fáanlegar nema ótryggar tunnur til að salta í kjöt. En lesið nú Morgunblaðið. Það segir, að nær hefði verið að setja skaplegt verð á kjöt í landinu heldur en að gera það lítt seljanlegt með óhóflegu verðlagi. Þetta er sama blaðið, sem reyndi að telja flokksmanni sínum og frambjóðanda, Ingólfi Jónssyni, 2. þm. Rang., heiðurinn af því haustið 1942 að hafa sem formaður kjötverðlagsnefndar hækkað kjötið í verði, sem var aðeins sjálfsagt að gera.
Fyrir þetta áttuð þið, einkum bændur, að kjósa sjálfstæðismenn haustið 1942. En nú er komið annað hljóð í strokkinn bæði viðkomandi mjólk og kjötverði. Nú eruð það þið, bændur, sem settuð of hátt verð á kjötið, og nú er vafasamt, að Sjálfstfl. hér á Alþingi fáist til að tryggja ykkur það verð, sem sex manna n. skammtaði ykkur.
En þrátt fyrir allan þennan lækkunaráhuga hefur þinginu ekkert orðið ágengt. Það fann því upp það ráð að setja l. um dýrtíðarráðstafanir, þar sem svo er fyrir mælt í 4. gr.:
„Skipa skal 6 manna n., er finni grundvöll fyrir vísitölu framleiðslukostnaðar landbúnaðarvara og hlutfall milli verðlags landbúnaðarvara og kaupgjalds stéttarfélaga, er miðist við það, að heildartekjur þeirra, er vinna að landbúnaði, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Skal í því sambandi tekið tillit til þess verðs, sem fæst fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir.“
N. þessi skyldi samkvæmt ákvæðum þessarar sömu greinar skipuð þannig:
„N. skal skipuð hagstofustjóra, og sé hann form. n., forstöðumanni búreikningaskrifstofu ríkisins, tveim mönnum eftir tilnefningu Búnaðarfélags Íslands, einum manni eftir tilnefningu Alþýðusambands Íslands og einum manni tilnefndum af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæjarfélaga.“
Enn fremur segir í greininni:
„Nú verður n. sammála um vísitölu framleiðslukostnaðar landbúnaðarafurða og hlutfall milli verðlags á landbúnaðarafurðum og kaupgjalds stéttarfélaga, og skal þá verð á landbúnaðarvörum ákveðið í samræmi þar við, meðan núverandi ófriðarástand helzt. Þó er ríkisstj. heimilt að ákveða lægra verð á eintökum vörutegundum gegn framlagi úr ríkissjóði.“
Eins og sjá má, var mjög til skipunar þessarar n. vandað og tryggilega um alla hluti búið. Þingfulltrúar bænda voru fúsir til að treysta því, að ef fulltrúar frá Búnaðarfélagi Íslands og búreikningaskrifstofu ríkisins féllust á eitthvert tiltekið verðlag, yrði það viðunandi fyrir bændur. Verkamannaflokkarnir treystu því hins vegar, að ef fulltrúi frá Alþýðusambandinu og fulltrúi frá embættismönnum og starfsmönnum ríkis og bæja samþykktu verðlagið, yrði það ekki ósanngjarnt fyrir verkamenn og launamenn almennt. Hagstofustjórinn var svo síðast, en ekki sízt, gagnkvæmleg trygging fyrir báða aðila. Ef allir þessir menn yrðu sammála, var vissulega óhætt fyrir þingið að framselja þeim það vald, að það verð, sem þeir ákvæðu, skyldi gilda. Þetta var gert. Frá þessu verði mátti ríkisstj. ekki víkja nema „gegn framlagi úr ríkissjóði“, þannig að bændur fengju alltaf hið ákveðna verð. Og það er sett undir allan leka. Það er beinlínis tekið fram, að þegar verðlag er ákveðið, „skal tekið tillit til þess verðs, sem fæst fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir.“
Svo skeður það, sem ýmsir bjuggust ef til vill ekki við. N. verður sammála um framleiðslukostnað landbúnaðarafurða og þá um leið, hvaða verð bændur þurfi að fá fyrir aðalframleiðsluvörur sínar „til þess að tekjur þeirra verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta.“ En hvað skeður svo? Áður en blekið er orðið þurrt á undirskriftum nm. og um leið og búið er að ákveða verðlagið á landbúnaðarvörum, er farið að ræða um það, að ekki sé skylt að tryggja bændum þetta verð fyrir þær vörur þeirra, sem selja á til útlanda. Nú hlýtur það að vera ljóst hverjum manni, að ef landbúnaðarvörur seljast til útlanda við lægra verði en bændur þurfa að fá til þess að geta haft svipuð kjör og aðrar vinnandi stéttir, þarf að selja vörurnar innanlands þeim mun hærra verði, til þess að útkoman fyrir bændur verði sú, sem n. ákvað í samkomulagi sínu. Þar sem þetta var ekki gert, er ekki nema aðeins tvennt til. Annað er, að fjárveitingavaldið tryggi bændum sama verð fyrir útfluttu vörurnar og þeim er ákveðið af n. og sett var á þær vörur, er seljast innanlands. Með því móti fá bændur tekjur, sem að samhljóða áliti n. er í nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Hin leiðin er að neita bændum um þessa tryggingu. En þar sem vitað er, að vörur þeirra seljast erlendis fyrir lægra verð en innanlands, er þetta hið sama, samkvæmt áliti n., og að neita bændum um tekjur og lífskjör samsvarandi öðrum vinnandi stéttum.
Ég efast nú reyndar um, að þetta sé hægt. Siðferðislegur réttur bænda er tvímælalaus, og lagalegur réttur þeirra er áreiðanlega einnig mjög sterkur. Þingið afsalaði á sínum tíma því valdi í hendur margumtalaðrar 6 manna n. að ákveða verðlagið, ef n. yrði sammála. Þetta hefur n. gert samkv. þessu umboði Alþingis. Það er því þingsins verk að uppfylla þau form, sem til þess þarf, að ákvarðanir 6 manna n. verði framkv.
Þrátt fyrir þetta er ástandið þannig á Alþingi, að tvísýnt er, hvort meiri hl. fæst fyrir því, að þingið standi við það umboð, sem það gaf n. Líklegt er þó talið, að fyrir því fáist meiri hl. í Sþ., þar sem fjárl. eru afgr., að lögtaka í fjárl. það ákvæði, að greiða skuli útflutningsuppbætur úr ríkissjóði. En til þess að það ákvæði verði meira en pappírsgagn eitt, þarf að sjá ríkissjóði fyrir tekjuauka. L. um það þarf að samþykkja í báðum d. Alþingis. En þá kemur í ljós, að þm. Sjálfstfl. er þannig skipt í d., að þeir þm. Sjálfstfl., sem teljast fulltrúar bæja og kaupstaða, geta í Ed. myndað meiri hl. ásamt sósíalistum og jafnaðarmönnum og fellt tekjuöflunina.
Ég treysti mér ekki til að spá neinu um það, hvernig þessu lýkur. Vonandi er, að Alþingi samþykki tekjuöflunina og standi við það umboð, sem það gaf 6 manna n. Ef þau fáheyrðu tíðindi gerðust, að hið gagnstæða yrði niðurstaðan, á það áreiðanlega eftir að draga dilk á eftir sér.
Þótt hér hafi verið stiklað á stóru og takmarkaðir flokkar mála teknir til meðferðar, ætti það að geta gefið mönnum nokkra hugmynd um ástandið hér á Alþingi síðustu vikurnar og síðustu missiri. Það hefur ekki tekizt að samstilla vilja manna um neitt jákvætt, svo að úr skeri. Margt veldur þessu og hefur áður verið rakið. Flestir þekkja það. En það, sem og veldur, er það, að dýrtíðin er þegar komin svo langt með okkur út í ógöngur fjármálanna, að of margir menn óttast, að þær ráðstafanir, sem gera þarf til þess að rétta við, verði óvinsælar hjá landsmönnum og þeir tapi fylgi, sem að þeim standa. Þeir, sem hafa verið ábyrgðarlausastir, hafi náð mestu fylgi.
— Ég veit að vísu sennilega hvorki betur né verr en aðrir, hvernig þjóðin er að þessu leyti á vegi stödd. En mín skoðun er sú, að þetta sé á misskilningi byggt. Ég veit að vísu, að mikill hluti þjóðainnar hefur flotið áfram í góðæri og flýtur nokkurn veginn enn þá. Ég tel, að þjóðin hafi verið blekkt. En skoðun mín er sú, að svo greind og menntuð þjóð sé að því komin eða byrjuð að skilja það betur en síðustu missiri, hvert þetta stefnir, og að til þess að rétta við, þurfi stórfelld og erfið átök, — en hún verði þeim þakklátust, sem geri þau: Það er ófrávíkjanleg sannfæring mín, að fulltrúar miðstéttanna, fulltrúar launamanna, verkamanna, sjómanna, bænda og annarra vinnandi framleiðenda, eigi að vera meginkjarni þeirra samtaka, sem viðreisnarstarfið vinnur. Þessi samtök, þessar stéttir eru þær; sem geta framkvæmt þær breytingar og skapað það þjóðfélagslegt réttlæti, sem verður að vera grundvöllur viðreisnarinnar, ef hún á að fá það fylgi þjóðarinnar, að hún fari vel úr hendi. Enn þá hefur þetta ekki tekizt, og hafa ástæður þess oft verið raktar áður. Mér þykir það líklegt, að enn um skeið takist að koma í veg fyrir það, að þessi samtök hefjist. Mér þykir meira að segja ekki ósennilegt, að einhver bráðabirgðasamtök annarrar tegundar, eitthvert millibilsástand, skapist um tíma.
En hvað sem okkar fulltrúum hér á Alþingi líður, hvaða götu sem við kunnum að velja, getur tæpast hjá því farið, að þeir, sem sameiginlega hagsmuni eiga, þeir, sem bera uppi þetta þjóðfélag, þeir, sem þola hita og þunga dagsins, finni sameiginlega hagsmuni sína, hvort sem þeir búa í sveit eða við sjó, og myndi nægilega sterk samtök til að rétta við þetta litla þjóðfélag og stjórna því og gera það hæft til að lifa þar hverjum þeim, sem leggur fram kraftana fyrir þjóð sína eftir mætti sínum til líkamlegrar eða andlegrar vinnu.
Á undan tímabilum stórra breytinga og mikilla framfara ríkir oft í þjóðfélögunum ástand ekki ólíkt því, sem hér ræður ríkjum. En þetta eru víst of almennar hugleiðingar, og ég sný mér aftur að dægurmálunum.
Ég hef reynt að draga upp nokkra mynd af því, sem orðið er, mistökunum í dýrtíðarmálunum, sem nú eru að koma okkur í koll. Ýmsir munu segja sem svo, að þetta sé liðin tíð og það gagni lítið að sakast um orðinn hlut. Ég er alveg gagnstæðrar skoðunar. Ég lít svo á, að ef þjóðin getur ekki lært af þeim mistökum, sem orðið hafa síðustu missirin, sé lítil von um bata. Fyrsta skilyrði þess, að þjóðin rétti við, er, að hún skilji, hvernig hún hefur verið blekkt og hverjir það hafa gert. Þá mun hún hreinsa þá af höndum sér. — Það getur hver maður sagt sér sjálfur, að þjóð, sem býr við þau vinnubrögð, er þingmenn og forvígismenn hafa stofnað til og haldið uppi seinustu missiri, getur ekki staðizt til lengdar. Gætið þess, að við erum þegar komnir svo langt, að þing þjóðarinnar, þúsund ára gamalt, getur ekki stjórnað. Hvernig ætti annað að vera hjá þjóð, þar sem þeir, er hún kýs á Alþing, ganga 1942 fram fyrir skjöldu til að sprengja varnargarðinn gegn dýrtíðarflóðinu og réttlæta verk sitt með því, að verðlag á landbúnaðarafurðum sé svo ósanngjarnt, samanborið við kaupgjald. En 1943 skipa þessir sömu menn fulltrúa í nefnd, sem kemst að þeirri niðurstöðu, að landbúnaðarverðið eigi að hækka til þess að það komist í samræmi við kaupgjald. Og það sýnir sig, að hlutfallið milli kaupgjalds og verðlags á landbúnaðarafurðum, sem 6 manna n. ákvað, er mjög svipað því, sem hlutfallið var 1942, áður en kapphlaupið hófst. Niðurstaðan af skæruhernaðinum, sem hafinn var 1942, og þeirri tvöföldun dýrtíðarinnar, sem fyrrv. stjórn kom á, er því sú, sem áður er á bent, að sliga framleiðsluna, valda atvinnuleysi og tæma ríkissjóðinn, sem ella hefði átt tugi milljóna. En eftir að 6 manna n. hefur lokið störfum og er á einu máli um allar meginniðurstöður, fagna menn því, að nú sé þessum illvígu deilum loksins lokið. En þá hefst nýr þáttur. Ádeila á nm., ádeila á störf þeirra, illdeilur á bændastéttina fyrir að hún vill fá það verð, sem n. hefur ákveðið, og ofsóknir á bændur, sem ekki munu eiga sér neina hliðstæðu í íslenzku þjóðlífi.
Meðan svona vinnubrögðum er haldið uppi á þingi þjóðarinnar og mikill hluti stærsta stjórnmálaflokksins þar, sem hefur þá skyldu að leiða störfin, tekur þátt í þeim, er ekki von, að vel fari. Og ég held, að þetta ástand verði ekki lagfært fyrr en þjóðin skilur, hvaða fólk það er, sem hún þarf að losna við af þjóðþingi sínu, og framkvæmir þann skilning með kosningum.
En það er ekki hægt um vik. Kjördæmaskipuninni var breytt á síðasta ári. Fyrsta þingið, sem kosið var samkv. þessari breytingu, reyndist alveg óstarfhæft, gat ekki myndað neina stj. og olli því stjórnleysi í landinu, að ríkisstjóri varð að skipa landinu ríkisstj.
Þessi kjördæmaskipun, sem hafði þennan árangur, bjó sér jafnframt vígi gegn vilja þjóðarinnar. Hún innleiddi meira flokksræði en nokkur önnur kjördæmaskipun getur gert. Flokkarnir, fulltrúar þeirra og blöð túlka skoðanir og stefnur, sem flokkurinn segist berjast fyrir. Kjósendur kjósa samkv. því, hve vel þessi túlkun tekst. Síðan koma þm. — uppbótarþingmennirnir — út úr myrkrinu og setjast inn í þingsalina án þess að kjósendur þekki útlit þeirra eða innri mann. Þessir þm. eru ekki háðir kjósendum og standa ekki í neinu sambandi við þá, en því háðari flokkunum, blöðum þeirra og áróðurstækjum. Undir því eiga þeir sitt pólitíska líf. Þess vegna eru þessir menn einatt á sama máli og áróðursvélin á hverjum tíma, hvernig sem skoðanir hennar breytast. Afnám nýju kjördæmaskipunarinnar, sem þetta ástand fullkomnaði, mundi þýða það, að margir menn hyrfu af þingi og kæmu þangað aldrei framar. Þessir þm. og þeir þm., sem kjósa það ástand, er nú ríkir, flýta sér ekki að því að afnema slíka kjördæmaskipun.
Þess vegna mun þjóðinni sækjast þetta vígi seint og illa. Þjóðin verður því að fara dálitlar krókaleiðir. Eins og vitað er, getur ríkisstjóri skipað ríkisstj., — ef þingið gefst upp við það. En vegna þess að þingið hefur löggjafarvaldið, getur það gert ríkisstjóra og stj. hans ófært að stjórna. Þetta getur það gert með því að samþykkja löggjöf, sem gerir stj. ófært að stjórna, eða með því að neita að samþykkja löggjöf, sem stj. er nauðsyn að fá, meðal annars fjárl. Það fer víst ekki dult, að orð hefur á því leikið, að viss hópur manna, sá, er stofnaði til þess, að þingið gat ekki myndað stj., hafi verið að undirbúa að fullkomna verkið með því að gera stj. ófært að stjórna.
Það hefur komið fyrir, sem fáir bjuggust við, að þingið hefur reynzt óstarfhæft og ekki getað gegnt þeirri skyldu sinni að stjórna landinu. Það er skammt orðið í það, að þetta sama þing geri þeirri stj., er ríkisstjóri skipar, ófært að stjórna.
Hið fyrsta vígi, sem þjóðin þarf og verður að vinna þegar skilnaðarmálinu er lokið, er að fá sjálf vald til að kjósa forsetann beinum eða óbeinum kosningum. Þessum forseta verður að fá vald til þess, ekki aðeins að skipa ríkisstj., ef þingið getur það ekki, heldur verður hann í stjórnskipunarl. þjóðarinnar að fá tryggðan þann rétt, að hann geti ásamt þeirri stj., sem hann skipar, haft vald til þess að stjórna án þess að þingið geti tekið fram fyrir hendur hans, meðan ástand þess sjálfs er þannig, að það er óhæft til að skipa stjórn. Meðan þingið getur ekki gert frumskyldu sína, að skipa stj., á það að missa hluta af valdi sínu til forsetans. Um leið og þingið gerir skyldur sínar, á það að fá venjulegt vald sitt að nýju. Ég hygg, að þessi ákvæði mundu koma því til vegar, að þingið mundi ekki gera sig óstarfhæft til lengdar, ef það veit, að slíkt ástand sviptir það miklum hluta valds þess, er það hefur haft og á að geta haft. Það mundi fljótlega skapast í þinginu ábyrgur meiri hl., sem bæri ábyrgð á stjórnmálastefnunni og þeirri ríkisstj., sem með völd færi.
Ég held, að það hljóti að koma til yfirvegunar, hvort þetta eða eitthvað þessu líkt er ekki það, sem þjóðin ætti að snúa sér að af alefli og einhug, því að eins og nú er komið stjórnmálaöngþveitinu, mætti vel svo fara, að þetta yrði hin skjótasta lækning og ef til vill í bráðina sú eina, sem fær er og getur náð tilgangi sínum.