20.10.1943
Neðri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)
51. mál, ítala
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv. er, eins og tekið er fram í grg., flutt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir, að lönd séu ofbeitt, bæði einstakar jarðir, upprekstrarlönd og afréttarlönd.
Landbn. hefur haft þetta mál til meðferðar og orðið á einu máli um að mæla með, að frv. verði samþ. með nokkrum breyt., sem n. flytur á þskj. 159. Hefur n. rætt um þær við hv. flm., þm. V.-Húnv., og hygg ég, að óhætt sé að segja, að samkomulag hafi orðið milli hans og n. um, að þessar breyt. yrðu gerðar á frv.
Skal ég nú fara nokkrum orðum um þær brtt., sem n. flytur og á hverju hún byggir þær. Fyrstu tvær brtt. eru um, að í staðinn fyrir „búfjáreigendur“ komi: búendur og landeigendur. Brtt. hníga að því, að n. telur ekki heppilegt að miða við búfjáreigendur, því að meðal þeirra er fjöldi manna, sem hefur hér engra hagsmuna að gæta, og sé því réttara að miða þau fundahöld, sem eiga að vera innan sveitanna við landeigendur og búendur. 3. brtt. er nauðsynleg lagfæring, sem leiðir af hinum tveimur brtt.
4. brtt. er um, að sett verði inn í 6. gr. nánari: ákvæði, þannig að á eftir orðunum „Búfé skal lagt í einingar“ komi: þannig að 9 kindur, veturgamlar og eldri, jafngildi einum nautgrip eða hrossi á sama aldri. Hverjum aðila er í sjálfsvald sett, hvort hann fyllir ítölu sína með einni búfjártegund eða fleirum til samans. Ítala í heimalönd skal miðast við stærð og nothæfni beitilands. — N. varð sammála um að leggja til, að hlutfall milli sauðfjár og nautgripa eða hrossa væri eins og segir í þessari brtt., þannig að 9 kindur væru lagðar á móti einum stórgrip. Þetta var borið undir ráðunauta Búnaðarfélagsins, og ég hygg, að þeir hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að þetta væri mjög nærri lagi, borið saman við fóðurþörf þessara búfjártegunda.
Viðvíkjandi því atriði, hvernig ítalan skuli metin, þá hefði n. helzt kosið, að það hefði verið miðað við nothæft beitiland og matsverð þess, en það er ekki til neitt sérstakt mat á beitilandi í fasteignamati, og þess vegna er ekki hægt að kveða sterkara að orði en svo, að miða verði við stærð og nothæfni beitilandsins. Eins og kunnugt er, þá er mjög mismunandi hlutfall á jörðum milli ræktaðs lands og beitilands. Þegar um er að ræða, hvað beita megi miklum búpeningi í heimaland, verður að sjálfsögðu að miða við beitiland jarðarinnar. Aftur á móti er nokkuð öðru máli að gegna um ítölu jarða í afréttarlönd. Þá verður að miða við framleiðslumöguleika jarðarinnar allrar. Því leggur n. til í 5. brtt. sinni, að inn í 7. gr. komi ný setning um, að skipting jarða í sveitarfélagi eða upprekstrarfélagi skuli miðast við landverð jarðanna að frádregnum hlunnindum.
6. brtt. fer fram á að breyta að nokkru leyti orðalagi 10. gr. frv., sem er tekin upp úr sandgræðslul. Miðar till. að því, að skýrar komi fram, að þar sé átt við það, ef land jarðar verður vegna sandgræðsluframkvæmda svo takmarkað, að ekki sé hægt að reka þar lífvænlegan búskap, og skuli þá ríkið skylt að kaupa afganginn fyrir matsverð samkvæmt eingnarnámsl.
Síðasta brtt. er afleiðing af hinum fyrri brtt. um, að í staðinn fyrir „búpeningseigendur“ komi „ábúendur og landeigendur“.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu fyrir n. hönd að fara fleiri orðum um brtt., en hún leggur til, að frv. verði samþ. með þessum brtt.