24.11.1943
Sameinað þing: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

27. mál, fjárlög 1944

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Þessar umræður eru að gamalli þingvenju kallaðar eldhúsumræður. En þó er það ekki nema að nafni til að þessu sinni. Eldhússtörfin á Alþingi hafa verið í því fólgin, að þingmenn í stjórnarandstöðu hafa gert upp reikninga sína við ríkisstjórnina, talið fram syndir hennar, drýgðar og stundum ódrýgðar, eftir atvikum.

En að þessu sinni verður á þessu nokkuð annar blær. Ekki svo mjög af því, að stjórn sú, er nú situr, sé syndlaus og heilög, eins og ekki er að vænta, heldur öllu heldur af því, að þingræðisskipulagið er nú með nokkuð sérstökum hætti, svo að ekki sé meira sagt. Þessi ríkisstjórn, sem nú hefur setið um hríð, á sér hvorki fylgi né andstöðu á Alþingi svo að yfirlýst sé. Hún er að því leyti eins og halastjarna, sem ekki er meðlimur þess sólkerfis, sem hún birtist í, og fer ekki eftir neinum brautum, sem þar viðgangast. Og hún getur í raun og veru látið sér í léttu rúmi liggja, hvað þingmenn segja um hana eða við hana. Hún getur svarað: Ég sit hér að ósk ríkisstjóra og verð hér þar til Alþingi myndar stjórn. Hvað eruð þið að kvaka? Ég bíð eftir ykkur.

Það gæti vitanlega verið fullt tilefni til þess nú á þessum fyrsta eldhúsdegi eftir að núverandi stjórn var skipuð að minnast á sjálfa skipun hennar. Það er þessi skipun frekar en störf stjórnarinnar, er gæti verið efni í umræður og athuganir. Í fyrsta skipti í þingsögu okkar mistókst Alþingi, á þeim tíma, sem því var gefinn til þess, að koma sér saman um stjórn, er hefði þingræðislegt fylgi. Hefur því verið um það rætt og deilt, hvort þessi stjórn væri í raun og veru þingræðisstjórn. Ég er ekki sá fræðimaður á þessu sviði, að ég vilji skera úr um það. En það er óumdeilanlegt, að ýmis megineinkenni þingræðisfyrirkomulagsins hafa farið út um þúfur við það, að stjórnin er þannig skipuð, og má Alþingi ekki loka augunum fyrir því. Og ég vil segja það, án allrar áreitni við núverandi hæstv. ríkisstjórn, að starfshættir á Alþingi verða ekki í lagi fyrr en á þessu verður breyting. Stjórnin ber að sönnu ábyrgð fyrir Alþingi á þann hátt, að hún mundi væntanlega víkja, ef meiri hluti Alþingis kemur sér saman um að mynda aðra stjórn. En meðan hún situr, eða réttara sagt, meðan við það situr, sem nú er, er ekki að vænta mikils eða stefnubundins starfs á Alþingi.

Þingræði byggist á því, að stjórn sé starfandi með meiri hluta Alþingis við hlið sér, nógu öflugan til þess að geta komið á þeirri löggjöf, er hún óskar og þarf. Þessi meiri hluti, með stjórnina í broddi fylkingar, er þá hinn starfandi hluti þingsins. Minni hlutinn gagnrýnir, heldur fram sínum málstað og leitast við að afla honum fylgis, en lýtur í lægra haldi um stundarsakir. Þjóðin hefur skipað þennan meiri hluta, og hún ræður því stefnunni, — hún ræður, hve lengi hún vill láta þá stefnu vera við lýði og hvenær hún vill skipta um og breyta um stefnu. Þetta er hið sanna lýðræði, framkvæmt með þingræðisfyrirkomulagi. Þannig var það hér á landi og í raun og veru framkvæmt út í æsar, allt til þess, er þjóðstjórnin var mynduð 1939. Eftir það var að vísu enn þingræði, en fór þó að molast smám saman.

Ég held, að þetta sé mikil þjóðarógæfa og megi ekki lengi svo standa, hvað sem líður starfhæfni þeirra góðu manna, sem í stjórn sitja. Það hlýtur að vera jafnkveljandi fyrir ríkisstjórnina, að hana vantar herinn til að berjast með, og fyrir þingið, sem ekki getur komið sér saman um fyrirliða eða stríðsstefnumið. Ég veit ekki, hvort verra er, höfuðlaus her eða herlaust höfuð. En hvort tveggja er slæmt, og hvort tveggja virðist vera á Alþingi nú.

Hvað veldur þessum ósköpum? Menn álasa Alþingi, og álit þess dvínar óhjákvæmilega við þetta. En ég held, að þeir, sem Alþingi álasa, þurfi að skyggnast dýpra í þetta vandamál, því að Alþingi er ekki annað en mynd af þjóðinni.

Frumorsök þessa ófarnaðar er að mínu viti engin önnur en sú, að menn eru farnir að setja stéttahagsmuni ofar stjórnmálum, stundarhag ákveðinna þjóðarhluta ofar framtíðarheill þjóðarinnar í heild. Og þá fellur meginsökin á hinar fjölmennustu stéttir. Þær hafa myndað með sér hagsmunasambönd, sem eru orðin svo sterk, að þjóðarheildinni eru ofviða. — Í þessari glímu er þingræðið hrakið út í horn. Í þessum átökum treðst Alþingi og virðing þess niður.

Þingræðið byggist á því, að þjóðin skiptist í stjórnmálaflokka um aðferðirnar að efla alþjóðarhag, en ekki í stéttarflokka til þess að toga hagsmunina til sín frá öðrum.

Þegar svo er komið, að stéttarhagsmunirnir ráða, verður erfitt að ná meiri hluta í þjóðfélagi eins og okkar. Og það er meira að segja vafasamt, hvort það er æskilegt, að meiri hluti myndist með þessum hætti. Það mætti jafnvel taka enn dýpra í með árinni og segja, að það væri hið háskalegasta, sem hugsazt gæti, að ein stétt, eitt hagsmunasamband, næði þeim afartökum, að það gæti skipað þing og stjórn og látið allar aðrar stéttir kenna á valdi sínu. Það væri að minnsta kosti ekki lýðræði eins og við höfum hugsað okkur það hér á Íslandi fram að þessu.

Á eldhúsdegi, þegar leyfðar eru á Alþingi almennar umræður um landsins hag, verður ekki komizt hjá að gera þetta að umræðuefni, því að þar er undirrótarinnar að leita að flestu því, sem aflaga hefur farið. Ef eld á að slökkva, verður að slökkva í sjálfu eldstæðinu, en ekki skvetta vatni á einstakar logatungur, sem teygja sig upp úr þessu eldstæði.

Landsfólkið horfir á þetta og er orðið leitt á öllu saman. Það virðist meira að segja vera orðið svo leitt á því, að það vilji hér helzt engan greinarmun á gera. Hér eigi allir menn og allir flokkar jafna sök á og því sé ekki annað að gera en gefast upp.

En þetta er ekki rétt, eins og fljótleg athugun sýnir. Landsmenn verða að gefa þessu máli gaum og ekki gefa málið frá sér í vonleysi.

Tvo af flokkum þingsins er fljótt hægt að afgreiða, því að þeir játa beinlínis, að þeir séu stéttaflokkar. Þeir prédika sí og æ og hafa prédikað hina heilögu skyldu stéttvísinnar. Þetta eru Alþýðuflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn, þessir tveir ósamþykku bræður, sem orðnir eru til úr einni og sömu frumunni, en sjá nú ekkert ljótara en hvor annan. Þeir vega þarna salt á baki verkamanna og eru til skiptis uppi og niðri, eins og gerist og gengur, þegar vegið er salt, og læt ég þá svo eiga sig í bráð.

Framsóknarflokkurinn lifði lengi vel á því að þykjast vera „milliflokkur“, eins konar mundang á voginni. Þessa milliflokksstarfsemi rækti svo Framsfl. í fullan áratug með þeim hætti, að hann var í óslitinni samvinnu við Alþfl. Klofnaði hann á þeim tíma og riðlaðist á ýmsa lund og fór í gegnum sjálfan sig. En hvað sem um það er, þá var milliflokksnafnið alveg rangt, því að Framsfl. hefur alltaf viljað vera og vill enn vera stéttarflokkur, eins og sannást á því, að hann hefur ekki eignazt fylgi nema í einni stétt. Þó hefur honum aldrei tekizt að vera þeirri stétt svo trúr, að hann ynni traust hennar.

Ég get því ekki annað séð en að eina ráðið til þess að komast út úr ógöngunum sé það, að láta þessa flokka, sem ekki vilja annað sjá en stéttahagsmuni, fara út úr spilinu meira og minna og efla til forustu um landsins mál þann flokk, Sjálfstfl., sem á innan sinna vébanda allra stétta menn og allra stétta hagsmuni, og verður því að taka tillit til alþjóðar.

Andstæðingar okkar sjálfstæðismanna geta glott að okkar utanstéttapólitík. Þeir geta kallað okkur hverju því ónefni sem þeir vilja. Það eru vissulega erfiðleikar á því að sameina margvíslega hagsmuni. Það þarf miklu meiri stjórnmálaþroska til þess að standa saman um alþjóðarmál en þrönga stéttarhagsmuni. Það þarf miklu meiri víðsýni og framsýni til þess að horfa á það, sem til lengdar verður öllum fyrir beztu, en hins, að krækja í það, sem er hendi næst.

Andstæðingar okkar sjálfstæðismanna eru alltaf að spá því, að flokkur okkar muni klofna, alltaf að vona það, alltaf að reyna að kljúfa hann. Sjálfir hafa þeir klofnað, en Sjálfstfl. er óklofinn enn. Með nógu ötulum hagsmunagyllingum getur þeim tekizt að mola utan úr kjósendafylgi hans um stundarsakir, öllum til ógagns. En Sjálfstfl. skal aldrei verða stéttarflokkur. Það má ef til vill ganga af honum dauðum, en meðan nokkur hópur manna er til í landinu, sem tekur alþjóðarheill fram yfir klíkuskap, verður hann til. Því fleiri sem þeir eru, því öflugri verður hann. Því færri sem þeir verða, því meir eykst sá ófarnaður, sem nú um stund hefur yfir okkur dunið. Stéttaflokkunum hefur tekizt að gera Alþingi óstarfhæft um hríð. Og á þeim fótstalli óstarfhæfninnar situr núverandi hæstv. ríkisstjórn eins og nokkurs konar hættumerki á blindskeri. Að því leyti — og sjálfsagt fleiru er hún þörf og góð. Hún bendir landslýð öllum á það, að svona má það ekki til ganga. Landsmenn verða að heimta þá menn til samtaka — sjálfstæðismenn eða aðra, sem vilja sinna alþjóðarmálum og alþjóðarhag.

En á þá að láta hagsmunina fara veg allrar veraldar? Hvað er pólitík, hvað eru stjórnmál annað en hagsmunir?

Ég játa þetta. Þetta er alveg rétt. Stjórnmál eru hagsmunir, og eitt helzta erindi stjórnmálamanna er að vinna að auknum hagsmunum hverrar stéttar og hvers manns.

Okkur sjálfstæðismenn greinir aðeins á við hina flokkana um það, að við teljum ekki unnt að sjá til langframa fyrir hagsmunum einnar stéttar nema með því að efla hag annarra stétta um leið, enda ekkert réttlæti eða sanngirni í því að veita einum með því að hrifsa frá öðrum.

Við höfum einmitt nú fengið dýrkeypta, en vonandi líka dýrmæta reynslu í þessu, hvernig ófarnaður eins leiðir til ófarnaðar annars. Þessi reynsla er dýrtíðin og meðferð þingsins á þeim málum, sem af henni hefur leitt.

Dýrtíðin er innflutt vara, það getum við með sanni sagt. Aðstaða okkar Íslendinga er í því efni mjög fágæt. Með fullri sanngirni sagt var ekki hægt að komast hjá því, að dýrtíð yrði, þegar hingað kemur fjölmennt erlent lið með stórfé og stórframkvæmdir. Það má sjálfsagt draga upp einhverjar kennslubókalexíur um það, hvernig hefði mátt komast hjá því, að dýrtíð hlytist af þessu. En til framkvæmda hefðu þær lexíur aldrei komizt — nema ef til vill með einu móti, sem ég er ekki viss um, að við vildum hafa gert, þó að við hefðum með því getað keypt af okkur dýrtíðina, — en það var að setja hér herlög þegar í stað, er hernámið fór fram, og halda öllu með vopnavaldi í skefjum. Veit ég þó ekki, hvernig okkur hefði farið það úr hendi.

En þó að dýrtíðin sé slæm og ekki búið að bíta úr nálinni með hana, þá hygg ég samt, að fáir mundu vilja kaupa hana af sér fyrir slíkt verð.

Afstaða Sjálfstfl. hefur verið ein og hin sama í þessum dýrtíðarmálum frá upphafi. Stefna hans hefur verið sú, að dýrtíðin mundi ekki láta undan öðru en sameiginlegu, frjálsu átaki allra stétta þjóðfélagsins, allsherjar niðurfærslu krónufjöldans, sem gengur manna á milli, því að á þann hátt þarf í raun og veru enginn að fórna neinu nema ímynduðum hag. En það þarf á hinn bóginn víðsýni og dálítinn stórhug til þess. Það má ekki vera sífellt með sjónaukann yfir hverri krónu og hverjum eyri, sem annaðhvort raunverulega eða í ímynduninni fellur til annarra. Menn verða að þola að sjá eitthvað ganga á misvíxl. Menn verða að eiga þá frjálsmannlegu yfirsýn að láta ekki aukaatriðin fela fyrir sér aðalatriðið.

Þessari stefnu samkvæmt gat Sjálfstfl. ekki fallizt á lögfestingarfrumvarp framsóknarmanna haustið 1941. Enda hygg ég, að nú muni varla nokkur maður mæla slíkri aðferð bót, þó að Hermann Jónasson væri að reyna það í ræðu sinni áðan, — nema herlög og vinnuskylda hefði þá verið lögleidd um leið. Hvað hefðu bændur t. d. átt að gera, ef kaup var lögbundið og enginn vildi vinna hjá þeim fyrir það kaup? Hvernig hefði farið með afgreiðslu skipa og siglingar, svo að nefnd séu aðeins dæmi?

En þó að Sjálfstfl. stæði á móti svona hringavitleysu, vildi hann ekki skerast úr leik um tilraunir til þess að stemma stigu fyrir dýrtíðarflóðinu. Þó að flokkurinn héldi sinni sömu skoðun á málinu, gekk hann í samvinnu við Framsfl. um tilraun þá, er gerð var með gerðardómslögunum frægu. Við þekkjum afdrif þeirra. Það má vera, að það hafi verið skammsýni að setja þau lög. En enn þá meiri skammsýni lýsti sér þó í því, hvernig brugðizt var við þeim. Hvað sem annars verður sagt um þessa löggjöf — og ég skal játa, að ég var persónulega aldrei hrifinn af henni og tók því ekkert nærri mér að bera fram frv. um afnám hennar — , þá má alveg óhætt fullyrða, að sigur hinna flokkanna í því máli með skæruhernaði og öðrum lymskubrögðum var hvorki né verður verkamönnum til nokkurs gagns og kemur sennilega síðar enn harðar niður einmitt á þeim, því miður. Þetta afsannaði Brynjólfur Bjarnason engan veginn með útreikningum sínum áðan, enda játaði hann, að hópur vinnandi manna hlyti að tapa á hækkaðri dýrtíð.

Það eru svik og ekkert annað að lokka menn með fleiri krónum, en klípa því næst af gildi hverrar krónu að sama skapi.

Eftir þetta var svo farið inn á þá leið að greiða niður verð á ákveðnum vörum og taka til þess fé með nýjum sköttum, og inni á þeirri leið hefur núverandi ríkisstjórn verið. Sjálfstæðismenn hafa haft til þess líka afstöðu og til gerðardómslaganna. Þeir vita vel, að þetta er engin lækning, en þeir hafa á hinn bóginn ekki neitað samvinnu um það. Ef ekki er unnt að fá nægan styrk til þess, sem gera þarf, þá verður hver samvizkusamur maður að styðja það, sem hann telur næstskást.

En hvernig standa nú þessi mál? Ætli menn fari ekki bráðum að sjá, að hér er ekkert annað en kák og það afar kostnaðarsamt kák á ferðum?

Það er nú verið að afgreiða fjárlög. Greiðslujafnaðarupphæð þeirra mun ekki vera fjarri 100 milljónum króna. Tekjur eru víst áætlaðar um 95 millj. og gjöld ekki minna, þegar öll kurl koma til grafar. En þrátt fyrir þetta skilst manni, að enn vanti á gjaldaáætlunina ekki nema 20–30 milljónir króna, ef halda á áfram á þessari milliborgunarleið. Upp í þetta munu vera um 8 milljónir sem tekjuafgangur fjárlaga. En þá vantar þó 12–22 milljónir til þess, að áfram verði haldið.

Hvaða leiðir eru þá fyrir hendi?

Ein er sú, að taka þessar 12–22 milljónir með nýjum sköttum. Í gær var lagt fram í Ed. frv., þar sem framlengdur er svokallaður verðlækkunarskattur, sem lögleiddur var í fyrra og yfirlýst, að ekki ætti að framlengja. Þessi skattur leggst þyngst á þá atvinnurekendur, sem manni skilst, að helzt eigi að vernda með því að lækka verð afurðanna. Og þessi skattur mundi þó ekki gefa nema nokkurn hluta þess, sem með þarf. Jafnvel nú, þegar menn kalla ekki allt ömmu sína í fjármálum, mun það reynast ærið strembið að ná inn 12–22 milljónum króna auk þess, sem áður er tekið.

Önnur hugsanleg leið væri að skera stórkostlega niður önnur útgjöld á fjárlögum, verklegar framkvæmdir og slíkt. Ætli mönnum þætti það ekki strembið?

Þriðja leiðin væri að taka lán til þess að framkvæma þessa milliborgun. Ég hygg, að það mundi mælast misjafnlega fyrir, þó að vel gæti verið, að sú leið verði helzt fær.

Fjórða leiðin er svo að hætta milliborgunum og láta dýrtíðina koma í ljós alveg eins og hún er. Ef hætt væri milliborgunum, mundi það koma í ljós, að vísitalan hefur haldið áfram að hækka. Jafnvel eftir að sú hækkun varð, sem orsakaði fyrri vísitöluhækkunina og ýmsir héldu, að markaði hástigið, hefur dýrtíðin haldið áfram að hækka. Fyrrverandi stjórn hefði líka getað haldið vísitölunni niðri með því að borga milljónir í milligjafir.

Bændur og fulltrúar þeirra hafa hvað eftir annað látið í ljós þá skoðun, að milligjafirnar væru alls ekki í þágu bænda. Þessar milligjafir hafa verið kallaðar neytendastyrkir, og bændum mætti á sama standa þó að verðið væri látið óhreyft. Þeir ættu þá líka að láta okkur við sjávarsíðuna um það, hvort milligjöfinni verður haldið eða ekki.

En hin stórkostlega hækkun vísitölunnar mundi víða segja til sín. Hún kæmi niður á öllum þeim, er kaup verða að greiða, og þar á meðal ríkissjóði. Og það, sem menn óttast mest, er, að hún leggi í rústir smáútgerð og frystihúsarekstur.

Þessi leið mundi kosta umbrot og byltingar í þjóðfélaginu, sem ég veit ekki, hvort menn eru við búnir að mæta, en verða þó vafalaust að mæta einhvern tíma.

Og svo er það fimmta leiðin, þessi leið, sem við Sjálfstæðismenn höfum viljað fara frá því fyrsta og farin verður einhvern tíma: Að koma sér saman um niðurfærslu dýrtíðarinnar með því að slá af kröfunum. Hún verður farin. En spurningin er: Verður hún farin fyrr eða síðar? Verður hún farin í tæka tíð eða um seinan?

Nefnd hefur nú verið að starfa að því að leita samkomulags um þessa hluti milli þeirra tveggja aðila, sem hér eiga mest hlut að máli. Hún átti að vera búin að skila áliti, en starfstími hennar hefur verið framlengdur. Margir eru vantrúaðir á, að þessi nefnd nái samkomulagi, — en hvað skal segja?

Þessi leið, að færðar verði niður kröfurnar, verður að koma fyrr eða síðar, — og hvers vegna þá ekki nú sem fyrst? Leiðin er nú greidd allverulega með starfi sex manna nefndarinnar, sem kölluð hefur verið. Einnig um hennar starf örvæntu flestir, þar sem allir nefndarmenn áttu að koma sér saman til þess að niðurstaða fengist. En hvernig fór? Allir þessir sex menn komu sér saman.

Með þessu er, að minnsta kosti til bráðabirgða, fenginn hlutfallsgrundvöllur til að byggja á, ef menn vilja lækka dýrtíðina. Starf þessarar nefndar og niðurstöður hennar eru, hvað sem annars verður um það sagt, eitthvert gagnmerkasta mál, sem íslenzkir bændur hafa nokkurn tíma fengið í gegn á Alþingi. Í fyrsta skipti hafa bændur þar fengið fullviðurkenndan rétt sinn til kaupgjalds til jafns við hliðstæða menn í kaupstöðunum, og eins og síðasti ræðumaður, Brynjólfur Bjarnason, benti á, var þetta enginn sigur fyrir verkamenn.

Og hvaða menn voru í þessari nefnd? Ætli það hafi ekki verið eintómir framsóknarmenn, úr því að þeir þykjast eiga nokkurs konar einkarétt á vináttu við bændur? Ætli það hafi ekki verið framsóknarmenn? Þeir töldu öll réttindi skert á bændum, af því að aðrir flokkar vildu fá jafnrétti við þá í skipun Alþingis.

Allir þessir sex menn, sem komu sér saman um að ákveða verð á vörum bænda svo hátt, að bóndinn fengi ríflegt kaup tryggt í fyrsta sinn, hafa hlotið að vera framsóknarmenn, úr því að enginn gerði ágreining.

Nei, — í þessari sex manna nefnd var einn — segi og skrifa einn — framsóknarmaður, Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri. Í henni voru þrír sjálfstæðismenn, helmingur nefndarinnar var sjálfstæðismenn, þessir menn, sem eftir rógi framsóknarmanna vildu ræna bændur öllum réttindum með því að setja framsóknarmenn á sama bekk og aðra landsmenn. Og í nefndinni voru 2 kommúnistar; þessir voðamenn.

Í sex manna nefndinni var einn framsóknarmaður, og hann gerði þar það gagn, að hann mótmælti ekki þessum réttindum bænda. Halda nú ekki bændur, að þeim sé lífsnauðsyn að halda í Framsfl. eins og eina lífakkeri sitt?

Hingað til hefur Alþingi gefizt upp á lausn þessara dýrtíðarmála. Ef til vill gefst nefndin, sem nú er að starfa að samkomulagi, einnig upp. Alþingi hefur strandað á hagsmunatoginu. Ef nefndin strandar, strandar hún á því. sama. Hvað vill þjóðin láta þetta ganga lengi?

Dýrtíðin vex. Hún hefur vaxið í höndum allra, sem við völd hafa verið. Hún óx í tíð pólitískra stjórna. Tilraun hefur verið gerð að stöðva hana með utanþingsstjórn. Reynslan hefur sýnt, að það dugir ekki. Þinginu ferst ekki að lasta hana fyrir það, en það er þá líka úr því skorið, að það gerast engin tákn og stórmerki, þó að utanþingsmenn komi til.

Vil ég svo enda mál mitt með því að segja þetta:

Aukin dýrtíð gerir öllum mein og sennilega engum gagn, að minnsta kosti ekki neinum, sem á það skilið.

Togstreitan milli stéttanna í þjóðfélaginu eykur þessa dýrtíð í sífellu. Stundarfróunin, sem fengizt hefur með því að villa sér sýn, er að hverfa.

Hvað er þá í raun og veru annað að gera en að viðurkenna staðreyndir og semja frið í þjóðfélaginu, svo að íslenzka þjóðin geti haldið nokkurn veginn einhuga og á réttri leið í fjárhagsefnum inn á nýja tímabili, sem nú er vonandi að renna upp?