24.11.1943
Sameinað þing: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í B-deild Alþingistíðinda. (110)
27. mál, fjárlög 1944
Forseti (GSv):
Hæstv. fjmrh., Björn Ólafsson, hefur nú lokið máli sínu, og er þar með lokið fyrri hluta þessara útvarpsumræðna. Annað kvöld verður tíminn alls 45 mín. á hvern aðila, skipt í þrjár umferðir: 20 mín., 15 mín. og 10 mín. Röð flokkanna verður hin sama og í kvöld, og verður nánar um það greint, er þar að kemur.