15.11.1943
Efri deild: 48. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (1143)

99. mál, lax- og silungsveiði

Bernharð Stefánsson:

Mér kemur þessi afstaða n. dálítið á óvart og þykir hún hafa nokkuð fljótt skilað áliti í þessu máli, þegar þess er gætt, að borizt hafa eindregin mótmæli gegn þessu frv. Nú vildi frsm. skýra þetta með því, að eins og frv. nú væri, væri hér aðeins um heimild að ræða, sem hægt er að veita í einstaka tilfellum, en vitanlega er lagt til að samþykkja frv. í þeim tilgangi, að þessi heimild verði þó einhvern tíma notuð, og í þessu skjali. sem borizt hefur til þess að mótmæla frv., eru færð skýr rök fyrir því, að mér virðist, að það mundi vera mjög skaðlegt fyrir lax- og silungsveiðina, ef þetta væri leyft. Ég vildi nú gjarnan fá nánari skýringu á því en ég hef enn heyrt, hvort n. hefur tryggt það, sem frsm. var að segja, að þetta leyfi mundi ekki verða gefið, nema alveg sérstaklega stæði á, og í miklu beituleysi. Það er kunnugt, að þetta frv. er beinlínis borið hér fram út af aðstöðu við Eyjafjörð, að það eru nokkrir menn á Dalvík, sem hafa óskað eftir, að frv. væri borið fram, — en það er líka vitað, að þeir, sem veiðirétt eiga í Svarfaðardalsá, hafa allir mótmælt frv., og þykir mér það dálítið einkennileg afstaða hjá landbn. d. að mæla með frv., þegar svo liggur í málinu, sem hér er, og vil ég alvarlega vara við að samþykkja þetta athugunarlítið.