15.11.1943
Efri deild: 48. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)

99. mál, lax- og silungsveiði

Bernharð Stefánsson:

Það er augljóst, að frsm. n. telur frv. hættulegt, en telur, að það megi samþykkja það á þeim grundvelli, að heimildin verði ekki notuð nema einstaka sinnum í beituleysi. En mér finnst dálítið varhugavert að samþykkja lagafrv., sem talið er hættulegt, í trausti þess, að það verði ekki notað. Ég geri ekki mikið úr nytjum, sem af þessu geta orðið til þess að afla beitu, því að ég hugsa, að síld og loðna, ef hún er á firðinum á annað borð, muni meira veiðast annars staðar en innan þeirra takmarka, sem lax- og silungsveiðil. setja.

Í haust, stuttu eftir að þing kom saman, kom til mín brezkur maður, sem stundað hefur veiði Í Fnjóská í 20 ár og er ákaflega mikill veiðimaður. Hann sagði mér, að árnar við Eyjafjörð mundu vera beztu bleikjuár í heimi. Ég geri nú hvorki að taka undir þetta né neita því, vegna þess að ég hef ekki þekkingu til þess, en þessu hélt þessi reyndi maður fram og sagði, að það, sem spillti fyrir því, að árnar yrðu að þeim notum, sem þær gætu orðið, væri fyrirdrátturinn í sjónum og það væri miklu meira virði að gera allar árnar, sem falla í Eyjafjörð, að góðum veiðiám heldur en allur fyrirdráttur í Eyjafirði. Hann vildi fá mig til þess að flytja frv. um að gera ákvæði um veiði í sjó miklu strangari en þau eru. Ég vildi nú ekki eiga við það að flytja slíkt frv., en væri eitthvað til í því, sem þessi reyndi maður var að segja, gengi óneitanlega í öfuga átt að rýmka um þessi ákvæði.

Þegar mótmælin úr Svarfaðardal voru send hingað, var ekki búið að breyta frv. í það horf, sem það nú er, og þeir, sem mótmælin sendu. vissu ekki um frv. öðruvísi en það var upphaflega. En síðan frv. var breytt, hef ég hringt til eins af þessum mönnum, sem er í stjórn fiskræktarfélags Svarfdæla, og hann lítur svo á, að í raun og veru sé eins skaðlegt að samþykkja frv. í því formi, sem það nú er, eins og það var upphaflega, og segir, að það muni verða einlæg ásókn í að fá undanþágur, ekki fyrst og fremst, — eins og hv. þm. Str. (HermJ) tók fram, — til þess að ná í loðnu og síld, heldur til þess að ná í bleikju úr sjónum.