24.09.1943
Neðri deild: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)
63. mál, tjóni af veru herliðs hér á landi
Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :
Herra forseti. Mér finnst þetta mál þurfa mjög rækilegrar athugunar við. Og ég tel ekki alveg ástæðulaust að bæta nokkrum athugasemdum við ræður þeirra tveggja hv. þm., sem talað hafa hér um málið.
Ég vil ekki fara mikið út í fræðilegan rökstuðning fyrir þessu frv. þannig, að herliðið sé sérstaklega komið hingað fyrir okkar beiðni eða eftir samningum við okkur. Ég býst við, að það megi heimfæra það undir setninguna „coactus volui“. Um þessa samninga held ég, að segja megi það, að þessir hv. ræðumenn hafi lagt töluvert meira inn í hann en á að gera. Mig minnir, að það standi í honum, að Bandaríkjaforseti lofi að greiða skaða, sem orsakast af „military activities“ Bandaríkjahersins hér. En það er margt fleira en „military activities“, sem getur valdið tjóni og er afleiðing af veru herliðsins hér. Ég skal í því sambandi taka það dæmi, að óbreyttir hermenn ráðast á kvenfólk á götunni í frítíma sínum. Sömuleiðis aka þeir á fólk og brjóta garða. Ég býst við, að það megi deila um það, hvort þetta séu „military activities“ þó að hermenn fremji það, þegar þeir eru í frítíma sínum. Og skaði, sem óbreyttir hermenn vinna á kvenfólki, mun aldrei verða talinn „military activities“, að ég ekki tali um allar barneignirnar þeirra. Ég skal ekkert um það segja, hvort Bandaríkjastjórn mundi bæta það tjón, sem hermennirnir vinna hér, en ekki mundi teljast „military activities“. Svo eru mörg önnur tjón, sem oft og einatt er ómögulegt að upplýsa um, hvernig eru til komin. Það getur t. d. vel hugsazt, að íslenzkt skip verði fyrir árekstri af öðru skipi úti á reginhafi í myrkri, og ekki er víst, að hægt sé að vita, hverrar þjóðar það skip er, sem rekst á þetta íslenzka skip, þegar allt er myrkvað. Það getur verið, að það skip, sem siglt var í kaf hjá Gróttu og var íslenzkt, hafi verið siglt í kaf af amerískum tundurspilli (SK: Það var þannig, og tundurspillirinn bjargaði mönnunum). En svo getur hins vegar verið í öðrum tilfellum, að skipið, sem veldur tjóni á íslenzku skipi, sigli burt og ekki sé hægt að vita, hverrar þjóðar það er, og þá er erfitt um vik með kröfur um bætur. Svo er enn tegund tjóna, sem ég vil minnast á, sem af því mundi leiða, ef sá her, sem hér dvelur frá Bandaríkjunum, þyrfti að verjast fjandmönnum sínum hér í landinu og þyrfti þá að skjóta á byggingar, sprengja brýr o. s. frv. Mundi þetta sumt vera einstakra manna eign, en sumt eign hins opinbera. Á ríkissjóður að bæta slíkt tjón eftir þessum l.? Hann verður náttúrlega að bera sitt tjón út af þessu, að því er tekur til eigna hans út af fyrir sig. En á ríkissjóður að bæta skaðann, ef skotið er á hús, sem eru einstakra manna eign? Mundi ekki vera betra að bæta slíkt með samábyrgð þegnanna? (SK: Það er gert gagnvart loftárásum). Já, en ég veit ekki, hvort þau ákvæði ná til þess, ef Bandaríkin gera hér skemmdir vegna þess, að þau þurfi að verjast árásum fjandmanna. Í þessum samningum milli ríkjanna er það svo, að Bandaríkin lofa að bæta tjón, sem orsakast af „military activities“, en margs konar tjón þar fyrir utan getur orsakazt af veru Bandaríkjahers hér, eins og ég tók fram. En sá galli er og á gjöf Njarðar í þeim samningum, að ekkert orð er um það, í fyrsta lagi, eftir réttarreglum hvors landsins eigi að bæta þetta tjón, og í öðru lagi vantar öll ákvæði um bæði skilyrði fyrir bótaskyldu og um bótaupphæð. Það er ekkert um þetta í samningunum. En það hefur orðið að samkomulagi, að það hafa verið settar nefndir, aðallega ráðgefandi, sem með þetta hafa að gera. Hingað til mun það hafa verið svo, að ríkisstjórn Bandaríkjanna mun ekki hafa talið álit nefndanna bindandi fyrir sig, heldur aðeins ráðgefandi. Um brezk-íslenzku nefndina mun það hafa gilt, að ef skaðabótaupphæðin var yfir 500 kr., þá þurfti úrskurður n. að fara til London til samþykktar. En ég veit ekki til þess, að stjórnin í London hafi rift neinum úrskurði n. (GÞ: Stjórnin í Ottava gerði það). Ég veit, að amerísku stjórnarvöldin hafa ekki alltaf farið að till. íslenzk-amerísku nefndanna. En ég held, að það sé verið að reyna að komast að samkomulagi um það að skera úr þessum málum. Það er sagt, að það muni taka nokkurn tíma, en ég vona, að það samkomulag verði. Líklega verður það þá blönduð n., sem ætti að fá úrskurðarvald í þessum málum, sem bindi báða aðilja. Og helzt ætti það að framkvæmast þannig, að sem flest af slíkum málum væru úrskurðuð fyrir lok ófriðarins.
Ég tel sjálfsagt, að íslenzka ríkið hjálpi einstökum aðilum til þess að ná rétti sínum í þessum efnum. En það er allt annað mál en hitt, að íslenzka ríkið taki á sig að greiða allar skaðabætur, sem orsakast af völdum herliðsins og veru þess, hvort sem það er af hernaðarráðstöfunum eða utan hernaðarráðstafana. Það er alveg ófyrirsjáanlegt, hversu miklar skuldbindingar yrðu bundnar ríkissjóði með ákvæðum slíkum, sem þetta frv. greinir. Það er að vísu látið í veðri vaka, að þetta sé ekki annað en að ríkið borgi áður, og þá kæmu bætur til þeirra, sem fyrir tjóni hafa orðið, fyrr en annars mundi verða, og svo eigi ríkið aðgang að Bandaríkjastjórn um endurgreiðslu skaðabótanna. Ég kannast við það, að í ýmsum tilfellum mundi þetta verða svo, þ. e. þegar ótvírætt er eftir herverndarsamningnum, að bætur eigi að greiða. En svo kemur aftur á móti hitt, að það er alls ekki víst að skaðabótaskyldan í ýmsum tilfellum sé viðurkennd. Í mörgum tilfellum er víst, að skaðabótaskyldan mundi ekki verða viðurkennd og í mörgum tilfellum mundi hún verða viðurkennd að hálfu leyti og ekki frekar. Og eftir ákvæðum frv. mundi það stundum verða svo, að ríkissjóður mundi verða dæmdur til þess að bæta skaða, sem hann hefði alls engan aðgang að öðrum til að fá endurgreiðslu á bótum fyrir, þ. e. þar, sem ekki er upplýst um, hver er valdur að skaðanum. Ef t. d. um skip væri að ræða, sem hefði skemmzt eða farizt af völdum aðgerða herliðs Bandaríkjanna, sem hér dvelur, þá mundi viðkomandi aðili geta haldið sér að vátryggingarsamningi. En sá vátryggjandi, sem síðast borgaði, gæti heimtað greiðslu fyrir slíkan skaða af ríkissjóði eftir ákvæðum þessa frv., ef að l. verður. Það er því alls ekki svo, að íslenzka ríkið eigi alltaf endurheimtukröfu á hendur nokkrum aðila.
Ef ákvæði þessa frv. verða að l., þá yrði það sennilega mjög mikil gullnáma fyrir málaflutningsmenn, vegna þess að íslenzka ríkið gæti í raun og veru aldrei greitt slíkt tjón nema eftir hæstaréttardómi, því að aðili, sem bætur á að fá, gæti alltaf sagt: Það var alls ekki skorið úr því til hlítar fyrir íslenzkum dómstólum, hverjar bæturnar ættu að vera. Hvert slíkt mál yrði því að fara fyrir hæstarétt, til þess að úr yrði skorið í þessu efni. Það mundi aldrei stoða í þessum málum, að forsvarsmenn ríkisins semdu um þessar skaðabætur. Því að þó að skaðabótaskyldan væri tvímælalaus, þá má alltaf deila um það, hvort upphæðin sé rétt. Þess vegna yrði hæstiréttur alltaf að ákveða skaðabótaupphæðina.
Svo er eitt, sem mér virðist alveg vanta í þetta frv., og er það hlutur, sem má bæta úr. Ég býst við, að það sé alveg fráleitt, að slíkar kröfur gætu lifað í 10 ár, eftir að þær eru fram komnar. En það geta þær eftir ákvæðum tryggingal. Mér virðist, að þessar kröfur mættu ekki lifa nema mjög skamman tíma, eitt, tvö eða þrjú ár, eftir að hægt er að gera þær gildandi. Þessu skýt ég til n. þeirrar, sem væntanlega fær frv. til athugunar. Það er sjálfsagt, að þetta mál verði athugað sem rækilegast, vegna þess að það getur haft afskaplega mikla fjárhagslega þýðingu fyrir ríkissjóð.
Sennilega er þetta mál fyrst og fremst lögfræðilegt, á þessu stigi í öllu falli. Hvorki fjhn. né nokkur önnur n. getur gert sér nokkra grein fyrir því, hve miklar fjárhagslegar skuldbindingar það eru, sem ríkissjóður kann að verða að inna af hendi samkvæmt ákvæðum þessa frv. Ég hefði haldið, að réttara væri, að frv. þetta færi til allshn., þar sem ég býst við, að lögfræðin sé sérstaklega representeruð.