24.09.1943
Neðri deild: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)

63. mál, tjóni af veru herliðs hér á landi

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Ég er ekki alveg samdóma hv. flm. um það, hvar þetta mál eigi niður að koma í n. Einmitt af þeim ástæðum tók ég fram í upphafi, að ef málið færi til hv. fjhn., sýndist mér, að hún þyrfti að líta á fleiri hliðar þess en þá fjárhagslegu. Þetta tók ég fram af þeirri ástæðu, að mér fannst málið fullkomlega eiga að koma fyrir fjhn., eins og hæstv. dómsmrh. hefur bent á.

Að öðru leyti eru örfá atriði, sem ég vildi taka fram. Hæstv. dómsmrh. tók fram, að íslenzka ríkið mundi ekki ætíð eiga endurheimtukröfu fyrir það tjón, sem þyrfti að greiða samkvæmt frv., og tók til dæmis skip, sem siglt væri niður og ekki væri hægt að sanna um, hver tjóninu hefði valdið. En ég held, að það sé alveg föst regla, að það sé talið, að slík skip verði að bæta eftir l. um bætur fyrir sjótjón, og þegar það hefur verið þannig bætt, er engin endurheimtukrafa til um bæturnar eftir það. En þetta segi ég ekki um önnur verðmæti en skip sérstaklega. Og það má segja um skip í þessu sambandi og bætur fyrir þau, að þessi langa fyrning, sem hæstv. dómsmrh. talaði um, 10 ár, getur varla komið þar til greina, vegna þess að sá, sem átti vátryggða skipið, sem fórst, á alltaf sína vátryggingarkröfu á vátryggingarfélag sitt. Og það er svo hjá öllum bátatryggingarfélögum og Samábyrgðinni og ég hygg öllum, sem vátryggja, að alltaf er ákveðinn frestur, sem gefinn er, frá því er tjón verður og þar til er bótanna er krafizt, og krafan ekki tekin gild, nema hún sé komin innan þessa mjög svo takmarkaða tíma.

Ég hafði ekki hugsað mjög náið um þetta mál, áður en ég tók til máls, og heldur ekki um það, hvernig ganga skyldi frá kröfum. En mér þykir ákaflega ólíklegt, að alltaf þyrfti að ganga dómur í þessum málum. Ég vil helzt halda mig að því, sem mér er kunnugt um, og það er bótaskyldan fyrir skipin. Það stendur þannig á um þær eignir, að þær eru metnar, en stundum, þegar tjón verður á skipum, er það langt um liðið frá mati, að ekki er hlítandi við því mati, en þá er oftast látið nægja, að dómkvaddir menn meti eignina aftur. Og þá er venja, að vátryggjandi sé látinn greiða samkvæmt því mati. Það er tekið sem dómur oftast nær. En ég skal ekki segja, hversu fastlega ríkisstjórnin teldi nauðsynlegt að styðja kröfur sínar. Það má vel vera, að hún þyrfti að ganga lengra í því, ef hún á að sækja kröfur sínar á hendur erlendum aðila. En ég get aðeins um þetta, sem ég hef fram tekið viðkomandi fiskiskipum, ef þau misfarast eða verða fyrir tjóni.

Ég vil svo loks benda á, að það má ekki gera allt of mikið úr því, hvað ríkið á hér á hættu. Hér er til ófriðartrygging, sem kölluð er, á fasteignum, vélum og lausafé. Og það er í undirbúningi að láta þetta ná einnig til skipastólsins, og það mál mun nú komið til hæstv. ríkisstjórnar. Bráðum á að bæta því við þessa ófriðartryggingu. En hæstv. ráðh. tjáði, að þessi trygging næði ekki nema til tjóns af loftárásum. Ég taldi mig muna það rétt, að þessi trygging væri ekki takmörkuð við tjón af loftárásurn, heldur væru það almennar ófriðartryggingar. Og ég held, að það sé hvergi nefnt í l., að þessar tryggingar séu eingöngu bundnar við tjón af loftárásum, því að þar segir í 1. gr. l., 1. mgr.: „Setja skal á fót stofnun til að standa straum af tjóni af völdum hernaðar í landinu ...“ Og í 28. gr. sömu 1.: „Ófriðartjón telst hvers konar eyðilegging eða skemmdir á hinu tryggða, sem orsakast beint eða óbeint af hernaði, þar með talin hlutleysisbrot og borgaraðeirðir“ o. s. frv. Svo að ég held, að þessi l., sem gera borgurum landsins að skyldu að tryggja sig gegn tjóni af ófriðarvöldum, nái meira en til tjóns af loftárásum, af því líka að þarna er kominn mestur hluti af verðmætum manna undir þessi l., sem gert er beinlínis iðgjaldaskylt hjá eigendunum.