24.09.1943
Neðri deild: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (1159)

63. mál, tjóni af veru herliðs hér á landi

Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :

Aðeins nokkur orð út af þessu síðasta, sem hv. flm. sagði. Þetta er rétt, sem hann sagði, svo langt sem það nær. En það er vel hugsanlegt, að t. d. í svona tilfelli teldi íslenzkur dómstóll sök á tjóni sannaða á hendur setuliðinu eða hernum. En það getur vel verið, að hinn aðilinn segi: Tundurspillirinn átti nokkra sök á þessu, en ykkar skip átti líka sök á því, og með því að ykkar skip átti nokkra sök á því, þá fáið þið engar bætur. Þannig neituðu þeir að bæta tjónið, sem varð af bílaárekstrinum, sem um hefur verið getið í umr. um þetta mál. Þeir hafa slakað á þessu nokkuð, en í janúar 1941 sögðu þeir, að ef tjón af völdum setuliðsins væri að nokkru leyti Íslendinga sök, þá borguðu þeir ekkert. (GÞ: Þá er það ríkissjóður, sem á að standa fyrir skaðabótunum að því leyti, sem þær fást ekki greiddar af Bandaríkjastjórn).