15.11.1943
Efri deild: 48. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)
63. mál, tjóni af veru herliðs hér á landi
Frsm. (Pétur Magnússon) :
Eins og ég gat um við 2. umr. þessa máls, hafði n. sézt yfir það, er hún fjallaði um málið, að ástæða er til að setja sérstakt ákvæði um fyrningarfrestinn. Það nær auðvitað engri átt að hafa hann 10 ár, og hefur n. orðið sammála um að bera fram brtt. við frv., þannig að fyrningarfresturinn verði l ár, svo að ábyrgð ríkissjóðs er úr gildi fallin, ef krafa verði ekki komin til ráðuneytisins fyrir þann tíma. Fyrir hönd fjhn. legg ég því til, að brtt. verði samþ. og frv. afgr. svo breytt.