17.11.1943
Efri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
145. mál, heilsuhæli fyrir drykkjumenn
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Ég skal forðast að endurtaka það, sem áður hefur komið fram í þessum umr., en það eru örfá atriði, sem ég hef ástæðu til þess að minnast á, eins og málið horfir nú við. Það finnast aðeins fáir sterkir þættir, sem eru til bindingar í þessu máli. Hælið á að vera rekið af ríkinu, stórstúkan á að fara með framkvæmdarvaldið, og læknir á að vera ráðinn af henni, og það á að þurfa samþykki hans, til þess að maður verði tekinn til dvalar á hælið og til þess að maður fái að fara þaðan aftur. Hælið á að vera í Kumbravogi við Stokkseyri, en flytja má það þaðan, ef ríkissj. ákveður það. Þetta er beinagrindin. En að öðru leyti á að fylla upp í þetta með reglugerð frá ráðherra. — Ég vil taka það fram, að ég tel æskilegt, að það verði tekið til athugunar við frh. þessarar umr., hvort þessi læknir hælisins á að hafa þetta sem sérstakt embætti eða hvort héraðslæknirinn í Eyrarbakkahéraði á að gegna þessu starfi ásamt sínu embætti. Ef velja ætti sérstakan lækni til hælisins, þá er það sérstakur liður og hann ekki svo lítill, og þyrfti því að athuga það, hvort þarna sé nauðsyn á sérstökum lækni eða hvort hægt er að notast við viðkomandi héraðslækni, sem hefur þó allvíðáttumiklu héraði að gegna.
Þá er annað atriði, sem ég vil vekja sérstaka athygli á, en það er það, að á hina hlið Stokkseyrar og jafnlangt frá henni er annað hæli, vinnuhælið á Litla-Hrauni. Nú horfir svo við, að um þetta hæli var gerð sérstök þál. á Alþ. fyrir tveimur árum, og flutti ég þá þáltill. Hún fór í þá átt, að þetta hæli skyldi flutt frá Litla-Hrauni og á annan stað. Með því að samþ. þessa þál. játaði Alþ., að staðurinn væri ekki heppilegur og að rétt væri að flytja hælið, en þar við situr svo. Nú kynni einhver að spyrja, hvað þetta kæmi þessu máli við. En nú er sá möguleiki fyrir hendi, ef hælið í Kumbravogi reyndist of þröngt, að taka þá til athugunar, hvort Litla-Hraun væri ekki heppilegri staður en Kumbravogur. Þeir menn, sem eiga að njóta hælisvistar, þurfa að hafa verkefni, en á Litla-Hrauni eru miklu meiri verkefni fyrir hendi en í Kumbravogi. Þess væri óskandi, að þeir yrðu ekki svo margir, sem þyrftu hælisvistar við, að hælið í Kumbravogi yrði ekki nógu stórt, en því miður er hætt við, að útkoman verði önnur. Ég vildi hreyfa þessu nú, hvort sakamannahælið væri ekki einmitt heppilegt fyrir drykkjumannahæli, ef Alþ. er enn þá sömu skoðunar og það var fyrir tveimur árum um það, að sakamannahælið eigi að flytja burtu frá Litla-Hrauni, og þá álít ég, að rétt væri að taka til athugunar, hvort ekki væri rétt að flytja drykkjumannahælið þangað.
Það var fyrir sérstaka framtakssemi þeirra manna, sem höfðu áhuga á því, að komið yrði upp sérstöku hæli fyrir drykkjumenn, að drykkjumannahælinu var komið upp, og þá var það sett niður í Kumbravogi til bráðabirgða. En hitt er allt annað mál, hvort það er heppilegur framtíðarstaður fyrir það.