18.11.1943
Efri deild: 51. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

145. mál, heilsuhæli fyrir drykkjumenn

Þorsteinn Þorsteinsson:

Það var aðeins eitt atriði í ræðu hv. síðasta ræðumanns. sem ég vil minnast á, sem sé það, að ríkisstj, hafi úrslitaráð, ef ágreiningur kemur upp. Ég vil benda honum á, að síður er hætta á, að ágreiningur komi upp, þegar umboðsmenn ríkisstj. og stórstúkunnar vinna saman frá upphafi. Þá er frekar hægt að sneiða hjá ýmsum skerjum. Ég álít það heppilegast um alla samvinnu, að báðir aðilarnir vinni saman í málunum frá byrjun, bæði þeir, sem hafa áhugann, og hinir, sem bera kostnaðinn.