25.11.1943
Sameinað þing: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (129)
27. mál, fjárlög 1944
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti, góðir hlustendur. Eins og þið heyrðuð hæstv. forseta segja, er ekki mikill tími eftir til að hrekja þær firrur, sem hér hafa verið bornar fram. Ég ætla að leiða hjá mér mjólkurþrugl hv. þm. Snæf., sem þið hafið nú heyrt. Þar talar sekur maður, sem notar öll brögð til að reyna að þvo sig hreinan af dæmalausu athæfi gegn eigin umbjóðendum sínum. Hann hélt því fram, að mín brtt. gegni jafnvel lengra en hans till., en hann veit þó, að till. mín er flutt til þess eins að vita, hvort hugur fylgir máli, hvort hin till. er borin fram til að bæta um vöruna, þó að ástandið sé raunar víða verra en í mjólkurmálunum, eða hún er einber ofsóknartill., sem beint er gegn þessu eina fyrirtæki. Hv. þm. sagði, að ég hefði orðið uppvís að því að neita að gefa upplýsingar, en sjálfir vita þeir, að sú n., sem að þessu upplýsingastarfi vann, var fræg að hlutdrægni, eftir því hver átti í hlut. Annars átti sú n. aðeins að rannsaka opinberar stofnanir, en mjólkursamsalan er fyrirtæki bænda, og ég tel ekki, að ríkið eigi að hafa rétt til að rannsaka slík fyrirtæki. Ég vil ekki heldur fallast á, að mjólkursamsalan eigi að vera fótaþurrka fyrir hið opinbera.
Ég ætla ekki að eltast við allar þær staðhæfingar og mótsagnir, sem hér hafa komið fram, enda enginn tími til þess. En ég vil þó minnast á þau orð hv. þm. Hafnf., að frumorsök dýrtíðarinnar hafi verið sú, að numið hafi verið úr l., að afurðaverð skyldi fylgja kaupgjaldi. En hv. þm. gleymir því, að kaup verkamanna hefur hækkað meira en vísitalan. Þeir hafa fengið meiri vinnu en áður og samfellda, og kaup þeirra hefði því hækkað mun meira en tekjur bænda, ef þær hefðu verið miðaðar við verðvísitöluna eina. Því var rétt að miða við tekjuvísitöluna, en ekki verðvísitöluna, ef komast átti á jafnrétti stéttanna. Þetta hefur líka 6 manna n. viðurkennt fyllilega, eins og sést af niðurstöðum hennar.
Þá er merkilegt að heyra tvísöng sjálfstæðismanna, sem í öðru orðinu tala um háskann af dýrtíðinni, en í hinu um blessun hennar fyrir bændur. Mig furðar á því, hvað reynt er að telja fólki trú um, ef dýrtíðin á nú að vera blessun fyrir bændur og fleiri. Þótt nú sé helmingi hærra verð á afurðum og jafnframt helmingi hærra kaup, get ég ekki skilið, að það tákni nokkra tekjuaukningu. Mér er sama, hvort ég hef 50 aura eða krónu, ef ég fæ jafnmikið fyrir hvort tveggja. Ég hygg, að allir bændur muni vera sammála um, að fyrstu stríðsárin hafi verið bezt, að því er afkomu þeirra snertir, en dýrtíðin hafi síðan étið upp afurðahækkunina.
Hv. þm. Hafnf. og Snæf. segja, að enga mjólk hefði átt að selja setuliðinu. En ég vil spyrja ykkur, áheyrendur góðir: Hver er sá á meðal ykkar, sem væri því samþykkur að taka þessa vöru af sjúkum mönum, þó að erlendir séu? Á að spyrja um það, hverrar þjóðar þeir menn séu, sem sjúkir eru og hjálparþurfi? Sá hugsunarháttur er þá nýr hér á landi og andstæður því, sem komið hefur fram af þeirra hálfu í okkar garð, er þeir hafa veitt sjúkum mönnum hér á landi margvíslega hjálp og meira að segja aðstoð um það að koma þeim til Vesturheims til lækninga. — Ég má ekki hafa fleiri orð um þetta vegna þess, hve tíminn er takmarkaður.
Eitt bæjarblaðanna, Alþýðubl., sem einna kunnast er fyrir óvandaðan málflutning, þó að ekki sé mikið við að jafnast hjá öðrum blöðum hér í bæ í þeim efnum, eins og hv. þm. Ísaf. sýndi ljósast fram á í umr. þeim, sem fram fór í gærkvöldi, — þetta blað kvartaði um það, að útvarpið skuli vera tekið frá kvöldvökunni, sem fram átti að fara í gærkvöld, til þeirra umr., sem hér hafa átt sér stað. Einhver, sem í það ritar, telur víst óþarft, að reynt sé að gera þjöðinni skiljanlegt, hvernig hún hefur verið blekkt, og segir: „Ef þm. væru dálítið skemmtilegir, segðu sögur, færu með ljóð og létu leika nokkur lög á milli, þá væri öðru máli að gegna. Þá ætti að vera á þá hlustandi! Já, þannig hugsaði alþýða manna í Rómaborg í fornöld, þegar allt var að hrynja þar. „Leikir og brauð“ var eina krafan, sem það fólk gerði til lífsins. En lífið er nú einu sinni meira en leikir og skemmtilög, og er alþýða manna fer að hugsa svo, að þetta séu kröfurnar, sem gera eigi, aðrir eigi að hugsa fyrir hana og henni komi það ekkert við, hvernig það sé gert, hvort það eru blekkingar einar, sem hún fær í óvönduðum blöðum, áróður, sem spilar á lægstu strengi, eða einlæg viðleitni að leita þess, sem rétt er, og fá aðra til að gera það, — þá er sannarlega illa komið. Og ætli þjóðin sé ekki að einhverju leyti í þeim vanda stödd, sem hún er nú í, vegna þess að allt of margir greindir og góðir menn hafa gefizt upp fyrir áróðrinum, — gefizt upp við að hugsa um vandamálin og farið að gleypa við öllu, sem dagblöð flokka þeirra bera þeim með morgunkaffinu, blöð, sem hafa sjaldnast að sjónarmiði, hvað rétt er, heldur hitt, hvað er flokknum þægilegast í svip. Óneitanlega bendir margt til þessa. Og herferðin gegn bændum í blöðunum og á þingi hér í vetur hefur verið eingöngu á þessu reist. Ég þekki svo marga góða og greinda og sanngjarna Reykvíkinga, að ég veit, að það hefði verið með öllu óhugsandi, að nokkur hefði getað talið það sér til framdráttar að hefja slíka ofsóknarherferð gegn vinnusömustu og traustustu stétt þjóðfélagsins, þótt aðrar séu ólastaðar, ef menn hefðu fengið að vita það rétta, hefðu viljað leggja á sig að afla réttra upplýsinga og hafa fyrir því að draga rökréttar og drengilegar ályktanir af þeim. En þeir, sem fyrir þessu standa, vita, hvað þeir syngja. Það er hægt að segja eitt í dag og annað á morgun. Það er hægt að vefa svo blekkingavefinn, að hann sýnist sannleikur í hvert sinn, ef aldrei þarf að taka tillit til þess, sem áður var sagt, aldrei hirða um rökrétta hugsun eða samhengi við fyrri orð og gerðir, en í þessu eru sumir ótrúlega leiknir. En það verð ég að segja, að þótt ég hafi ýmislegt heyrt og séð í þessum efnum, hefur aldrei borizt mér til eyrna neitt svipað ræðu hv. 5. þm. Reykv. hér í gær. Maðurinn, sem flytur frv. til að rjúfa samkomulag sex manna n., segir, að aðrir séu að gera það. Maðurinn, sem hrósar sér í öðru orðinu af því, að tekizt hafi að fá lægra verð á innlendum afurðum með samkomulagi sex manna n., — byggt á því, að innanlandsverðið er ákveðið með tilliti til þess, að þetta verð eigi bændur að fá fyrir allar afurðir sínar, — en ætlar svo að svíkjast að bændum með því að neita að láta þá fá þetta verð fyrir það, sem út er flutt, þótt skýlaust sé því lofað, — þessi maður telur sig sérstakan vin bænda og segist bera umhyggju fyrir þeim. Maðurinn, sem stjórnar flokki þeim, er lætur sér annast um að spilla samvinnu bænda og verkamanna, svo að engin sterk stjórn geti myndazt í landinu, og setti bændum að skilyrði fyrir samvinnu, að þeir yrðu að ganga í hans flokk, — hann er að ásaka og áfellast aðra, sem hafa sýnt það í orði og verki fyrr og síðar, að þeir vilja samvinnu bænda og verkamanna, fyrir það, að þeir vilji vinna aðeins með afturhaldinu og auðvaldinu og sundra bændum og verkamönnum. Hann, maðurinn, sem gekk í samstarf við íhaldið til að vinna gegn bændum landsins og sækja á þeirra rétt og stendur nú í flokki með þeim, sem þar eru frakkastir, í öllum atkvgr. og umr. á þingi til að áfellast bændur og ofsækja þá, telja þá þiggja fátækrastyrki, ef þeir eiga að njóta sama réttar og aðrir, telja þá amlóða og atvinnurekstur þeirra í ófremd og vanrækslu, — hann þykist vera hinn sanni bændavinur. Flokkur hans, sem berst eins og ljón gegn rafveitum til dreifbýlisins, um leið og því er veitt til þéttbýlisins, og segir, að slíkt mundi aðeins verða til að seinka því, að byggðin legðist niður, eins og vera bæri, — flokkurinn, sem neitar að styðja frv. til að koma landbúnaðinum í nýtízku horf, eins og frv. um breytingu á jarðræktarl., en ber svo til að sýnast fram brtt. við fjárlagafrv. um fjögurra milljóna kr. styrk til landbúnaðarins, sennilega til að geta kallað það á eftir ölmusu og fátækrastyrk, ef það næði fram að ganga. Þetta er slíkt hyldýpi blekkingarinnar, að engum nema ofstækisfullum öfgamönnum gæti einu sinni hugkvæmzt að bera slíkt fram.
En það, hvernig blöð þessara manna skrifa, að fólkið vilji aðeins fá að heyra það, sem skemmtilegt er, leiki og lög, að þessir menn eigi að hugsa og skrifa fyrir það, — þetta skýrir, að slíkur málflutningur gat skapazt og að trúað er á, að hann hafi áhrif, en ekki verðskuldaða fyrirlitningu og fulla fordæmingu allra hugsandi og viti borinna manna. Og þessi málflutningur sýnir enn fremur, hvaða öfl það eru, sem eru að naga rætur þjóðarmeiðs okkar nú í sambandi við fjárplógsmenn og stríðsgróðamenn í bezta samstarfi um stj. höfuðborgar landsins og afgreiðslu margra hinna afdrifaríkustu mála á Alþ.
Ef þjóðin hættir að hugsa sjálf og lætur slíka menn hugsa fyrir sig og skrifa, þá er engin viðreisnarvon frekar en hjá hinum fornu Rómverjum. En ef alþýða manna til sjávar og sveita sér í gegnum allan þennan svikavef, tekur að hugsa sjálf og skynja hið rétta í hverjum hlut, þótt það sé stundum ekki skemmtilegt og kosti oft áreynslu og mikla fyrirhöfn, þá er ég viss um, að þá mun aftur morgna yfir íslenzkum byggðum og hin illa vættur, sem vakin hefur verið upp, verða kveðin niður. Að því þurfa allir sannir Íslendingar að vinna, hvar sem þeir eru. Það er hin eina leið til betri og bjartari framtíðar.
Býð ég svo góða nótt og vona, að þið takið á ykkur þessa áreynslu.