29.11.1943
Efri deild: 57. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (1316)

57. mál, jarðhiti

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og hv. frsm. gat um, þá er meiri hluti allshn. með þessu frv. En það, sem okkur greinir á um, er það, hvort þetta frv. eigi að ná til jarðborana, sem fram hafa farið fyrir gildistöku laganna. Meiri hl. er með þessu, en við erum á móti þessu. Við viðurkennum, að þau bæjarfélög, sem þegar hafa hafizt handa, eigi rétt á styrk, því að brautryðjendastarfið er löngum erfitt. En okkur virðist, að hér sé um nokkuð mikilvægt princip að ræða, sem Alþingi getur ekki gengið fram hjá. Því að ef hér væri tekinn upp sá háttur að láta slík framlög sem þetta ná aftur fyrir sig, þá mundi erfitt að ákveða, hve langt skyldi farið á þeirri leið.

Við getum tekið dæmi um framlag til hafnarmannvirkja. Ég held, að engum hafi dottið í hug, er þau lög voru samþ., að láta þau gilda aftur fyrir sig eða ná til þeirra hafnarbóta, sem þegar höfðu átt sér stað. Mjög líkt stendur á um byggingar skóla- og sjúkrahúsa, og svo mætti lengur telja. Eðlilega fengi ríkissjóður ekki risið undir því, ef þessi aðferð væri upp tekin. Það, sem vakir fyrir mér, þegar ég er á móti þessu atriði, er einungis, að ég vil ekki skapa þetta fordæmi. Um hitt, hverjir eiga borana, virðist mér ekki skipta miklu máli. Þó sýnist mér eðlilegra, að styrkurinn nái einungis til þeirra tækja, sem ríkið á.