29.11.1943
Efri deild: 57. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (1327)
57. mál, jarðhiti
Frsm. (Bjarni Benediktsson) :
Hv. þm. Str. er nú hlaupinn af þ. eftir að vera búinn að sletta úr klaufunum, svo sem honum er títt. Þetta er ekkert nýtt. Það, sem hann hefur að segja, það er hans harmagrátur yfir því að hafa þurft að hrökklast frá stjórn árið 1942. Hann kemur naumast fram í ræðu eða riti svo, að það sé ekki uppistaðan í máli hans, að þó að Íslands óhamingja hafi oft verið mikil, þá hafi hún aldrei verið meiri en þegar hann hrökklaðist frá völdum.
Hv. þm. var með ráðleggingar til mín um, að ég ætti ekki að vera að tala um óstjórn hjá öðrum, því að ég hefði ekki sýnt svo mikil hyggindi í mínu starfi. Honum mun aldrei verða hrósað fyrir hyggindi í stjórn. Honum verður við brugðið fyrir taumlaust sjálfsálit og frekju, — en af hyggindum hefur hann ekkert til að miðla öðrum.
En úr því að hv. þm. minntist á hitaveituna, þá er sjálfsagt að segja, hvers vegna dráttur varð á því, að hægt yrði að byrja á verkinu. Bærinn hafði ekki mikið fé, þó að hann væri ekki gjaldþrota, eins og við lá, að ríkið væri orðið undir stjórn hv. þm. Str. En bæði var það, að flokksmenn hans í stjórn Rvíkur þóttust lengi ekki gera annað þarfara starf en vinna á móti hitaveitunni, og eins hitt, — sem var enn verra, að eftir að hann var orðinn ráðandi í stjórn landsins, þá misbeitti hann valdi sínu svo herfilega, að hann tafði fyrir því, að Rvík gæti fengið nauðsynleg tæki til að gera boranir á Reykjum eða gert aðrar ráðstafanir, sem þurfti að gera, áður en hafizt yrði handa. Ef hann hefði þá hagað sér sem hyggnum og heiðarlegum manni sæmdi, svo að hægt hefði verið að ráðast í þetta verk, sem hann segir nú, að sé upplagt gróðafyrirtæki, — ef hann hefði greitt fyrir því með því að láta falla niður andstöðu sína þá, — þá hefði hitaveitan verið komin á, áður en ófriðurinn hófst. Það var þessi hv. þm., sem réð því, að neitað var um leyfi til þess að kaupa nauðsynleg borunartæki í Svíþjóð. Það var það, sem var því valdandi, að hitaveitan tafðist árum saman. Syndabyrði hans er vissulega stór og ekki á hana aukandi, og ekki þarf heldur að auka á þá lítilsvirðingu og fyrirlitningu, sem alþjóð hefur á hegðun hans, þar sem hann með dæmafárri skammsýni, illgirni og lítilmennsku stjórnaði fjármálum ríkisins sem forsrh. með þeim endemum, að ríkinu lá við gjaldþroti. Því var á síðasta tíma fyrir stríðsbyrjun 1939 ómögulegt að fá lán erlendis til þess að koma upp neinu fyrirtæki, hvað mikið gróðafyrirtæki sem það var. Það var viðurkennt, að hitaveitan væri gott fyrirtæki, og hefði ekki verið vandi að fá lán handa henni, ef landinu hefði verið stjórnað af skynsömum manni, en þar sem fjármálin voru eins og komið var undir hans stjórn, var talið ótækt að lána fé til fyrirtækja hér á landi, og varð Rvíkurbær að súpa seyðið af því.
Þetta voru nú öll þau hyggindi, sem hv. þm. Str. telur sig hafa svo mikið af, — enda skortur á hyggindum að fara að rifja þetta upp nú. Og ástæðan fyrir því, að hann fær svo litlar undirtektir undir harmasöng sinn, er sú, að það er munað.
Og þetta er ekkert eins dæmi. Ég held, að allur hans stjórnarferill hafi verið með þeim endemum, að ekki verði við jafnazt. Þessi hv. þm., sem nú ásakar okkur, var búinn að hleypa öllu í strand 1939, svo að atvinnuvegirnir lágu í rústum og fólkið í landinu hafði ekkert til að bíta og brenna. Þessi hv. þm. kom skríðandi á maganum til höfuðandstæðinga sinna og bað okkur að bjarga sér úr foraðinu. Það var vissulega ekki af virðingu fyrir honum, að við hlupum þá undir bagga. Það var þjóðarnauðsyn. Hann hefði séð sjálfum sér borgið, en hann gat ekki séð þjóðinni borgið, og því varð Sjálfstfl. að hlaupa undir bagga. Og það tókst vonum betur. Hitt var rétt, sem hann sagði, að það hefði valdið vissum truflunum á stjórn þjóðarinnar, er hann lét af stjórn 1942. Margra ára rangindi voru þá afnumin. En Framsfl., í stað þess að búa sig undir að vinna að málefnum þjóðarinnar með Sjálfstfl., hleypti öllu í glundroða. Það tókst vel, en það er ekki til að hæla sér af, heldur ætti hv. þm. að hafa vit á að þegja um þann kafla í sögu sinni.