07.12.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (139)
27. mál, fjárlög 1944
Finnur Jónsson:
Samkvæmt yfirlýsingu, sem ég gaf við 2. umr. fjárl. hef ég ásamt nokkrum flokksmanna minna lagt til að hækka tekju- og eignarskatt um ½ millj. króna og verðtoll um 1 millj., í 31 millj. kr.
Tel ég, eftir þeim upplýsingum, sem liggja fyrir um tekjuútlitið eftir því, sem næst verður komizt, að þetta sé ekki óvarleg tillaga, enda ekki um stóra upphæð að ræða. Ef hún yrði samþ., virðist greiðslujöfnuðurinn verða um 11½ millj. króna. Aftur á móti höfum við Alþýðuflokksmenn lagt til, að við 16. gr. B. 4. bætist nýr liður um byggingu fiskiskipa og um 9½ millj. króna framlag í því skyni, sbr. lög nr. 33 1943, um breytingu á lögum um Fiskveiðasjóð Íslands.
Eins og kunnugt er, eru borgaðir tugir milljóna í uppbætur á landbúnaðarafurðir án þess að tryggt sé, að þetta fé komi að framtíðarnotum fyrir landbúnaðinn. En þó að afkoma ríkisins byggist á sjávarútveginum, — þó að landbúnaðurinn sé nauðsynlegur, — þá á sjávarútvegurinn engan nýbyggingarsjóð. Skipin hafa gengið úr sér, og ekki hefur verið hægt að endurnýja þau né halda við vélum skipanna.
Það er sjáanlegt, að ef við höfum aðeins úr sér gengin skip eftir ófriðinn, hljótum við að verða undir í samkeppninni við aðrar þjóðir, ef ekki verður gert stórt átak í þessu efni nú þegar á þessu þingi. Það hefur farið fram athugun á því að fá byggð skip erlendis. Skip, sem hér eru byggð, eru miklu dýrari en þau, sem eru byggð erlendis, og er erfitt fyrir okkur að fá byggingarefni. Það er sjálfsagt að viðhalda innlendum skipasmíðastöðvum, en þær hafa ekki við að viðhalda skipastólnum. Það verður því að fá skip frá útlöndum.
Samkvæmt upplýsingum frá sænska sendiráðinu er hægt að fá byggð skip í Svíþjóð eins og stendur. Sænskar skipasmíðastöðvar geta orðið við óskum okkar Íslendinga um smíði 45 fiskiskipa úr tré fyrir okkur, og eru þær fúsar til að taka að sér smíði fleiri skipa síðar.
Eftir að þetta var upplýst hér á Alþ. og í blöðum, hefur komið í ljós, að nokkrir fleiri hafa gert um þetta fyrirspurnir til Svíþjóðar. Og svörin eru þau sömu, að það muni vera hægt að fá skip byggð í Svíþjóð, — sennilega ekki hægt að fá þeim siglt upp hingað strax, og þyrfti því sennilega að geyma þau í Svíþjóð nokkuð, þangað til siglingaleiðir opnast. Kostnaður við skipabyggingar í Svíþjóð virðist, eftir því sem fyrir liggur, munu verða 3600 til 4000 kr. íslenzkar á hverja smálest, en eftir er þá að sigla skipunum upp. Eftir þessu er 100% dýrara að smíða skipin hér á landi en í Svíþjóð. Mér þætti líklegt, að ef úr því yrði, sem ég fæ ekki séð, hvernig verður komizt hjá, að gera ráðstafanir til þess að fá skip byggð í Svíþjóð, þá gæti komið til mála einhvers konar verðjöfnun á skipunum, sem byggð væru í Svíþjóð, og þeim, sem byggð væru hér heima. Mér skilst, að það mundi verða hagkvæmasta aðferðin, ef byggð yrðu fyrir okkur skip í Svíþjóð, að einn aðili semdi um byggingu skipanna þar, — sem eðlilegast er, að væri ríkið, — og semdi svo um sölu á þeim aftur til þeirra, sem ætluðu að nota þau. Og eðlilegast virðist mér þá vera að láta smíða mörg skip í einu, að þau væru smíðuð í flokkum eftir stærð og eftir standard teikningum og nokkur skip væru smíðuð í hverjum flokki í senn. Efalaust mætti með þessu komast að hagkvæmari kjörum um kaup á skipunum heldur en ef hver einstakur maður, sem vildi kaupa skip, væri að semja fyrir sig.
Ég tel, að ég hafi leitt þau rök að nauðsyn skipabygginga og skipakaupa fyrir okkur, að þeim muni ekki verða á móti mælt, enda mun það vera almennt viðurkennd staðreynd. Og þá verða hv. þm. að gera upp við sig, hvort þeir ætla að halda áfram að greiða tugi milljóna kr. úr ríkissjóði í uppbætur á afurðir án tryggingar fyrir því, að þær komi að framtíðarnotum, og gera hitt einnig upp við sig, hvort þeir vilja nú nota það tækifæri, sem við höfum enn þá til þess að fá smíðuð skip í Svíþjóð, en er kannske að breytast og e. t. v. gengur okkur úr greipum á næstunni, ef við notum okkur það ekki. Allir vita, að þarf að endurnýja skipastólinn. Það er og margt, sem bendir til þess, að afkoma atvinnuveganna yfir höfuð fari frekar versnandi á næsta ári. Og ef svo er, að farið er að halla undan fæti í því efni, þá má búast við, að hún fari enn þá versnandi á því næsta ári, sem kemur þar á eftir. Og ef við fljótum svo sofandi að feigðarósi, að við gerum ekkert í þessu máli, þá tel ég mjög illa farið.
Eftir þeim till., sem hér liggja fyrir, mundi verða um 2 millj. kr. greiðslujöfnuður á fjárl. með þeim hækkunartill., sem við Alþfl.menn leggjum til, þó að þessi brtt. yrði samþ., sem ég hér hef mælt fyrir. Nú er að vísu fram komin till. frá hv. fjvn. um að heimila ríkissjóði að nota 5 millj. kr. til skipabygginga eftir reglum, sem Alþ. setur, úr framkvæmdasjóði ríkisins. Framkvæmdasjóður skilst mér, að hafi átt að vera varasjóður ríkissjóðs til þess að styðja atvinnuvegina, þegar færi að halla undan fæti fyrir þeim. Þessi sjóður er, því miður, ekki enn þá meiri en 8 millj. kr. Og ef við nú strax í peningaflóðinu eigum að fara að taka hann til þess að láta hann í skipabyggingar og gera ekkert meira í sambandi við þær framkvæmdir, þá virðist mér í því mjög lítil forsjá, svo ég segi ekki meira. Á síðasta ári var samþ. fjárveiting til fiskimálasjóðs um 2 millj. kr., og átti það fé að nota í lán til skipabygginga hér innanlands. Af því hafa verið veittir styrkir til þess að byggja um 30 skip. Þar af voru allmörg smáskip undir 12 rúmlestum. Ég hygg, að skip yfir 12 rúmlestir, sem byggð hafa verið fyrir þetta fé, hafi verið rúmlega 20. Ef nú ekki á að fara lengra en það að setja í skipabyggingar 5 millj. kr., þá verður illa séð fyrir þessum málum. Ef hins vegar Alþ. féllist á tillögur Alþfl. um að veita þessar 9½ millj. kr., sem við höfum lagt til, þá mundi vera hægt að fá skip af ýmsum stærðum, góð skip og ný, með lánum og styrkjum, a. m. k. 100 til 150 skip. Og ef svo þær 5 millj. kr., sem hv. fjvn. hefur lagt til, að teknar verði úr framkvæmdasjóði, yrðu notaðar til aðstoðar við þá, sem vildu endurnýja togaraflotann, þegar færi gefst til, má segja, að Alþ. færi nokkuð myndarlega af stað með þetta. En með því að áætla einar einustu 5 millj. kr. í þessu skyni, þá verður ekki lagður neinn sá grundvöllur undir framtíðarrekstur sjávarútvegsins, sem nauðsynlegur er.
Ég fínn ástæðu til að skora mjög alvarlega á hv. þm. að taka þetta mál til rækilegrar yfirvegunar. Ég hef ekki reiknað saman, hve mikið er búið að borga í uppbætur á tveimur s. l. árum, en ég hygg, að það muni vera einhvers staðar um eða yfir 30 millj. kr. Ef svo á að borga nú uppbætur á útfluttar afurðir á þessu ári, einhvers staðar á milli 8 og 16 millj. kr., og uppbætur á vörur seldar á innlendum markaði a. m. k. 8 millj. kr., þá yrði ríkið búið að leggja í þessa hluti um 50–60 millj. kr. á tveim til þrem árum, hafandi þó hvorki greitt upp ríkisskuldir, eins og hvert annað fyrirtæki mundi hafa talið nauðsynlegt, né heldur lagt nokkurn grundvöll að framtíðaratvinnurekstri landsmanna.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta. Þetta á að vera öllum hv. þm. svo ljóst, að þeir eigi að geta gert sér grein fyrir því, að svo búið má ekki standa í þessum efnum.