07.12.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
27. mál, fjárlög 1944
Frsm. samvn. samgm. (Gísli Sveinsson) :
Það er til þess að inna af hendi þegnskyldu, sem ég tek hér til máls, þó ekki séu margir þm. viðstaddir til að sannfæra. En svo er því varið með till. þessarar n., eins og till. annarrar n. hér í þinginu, að till. hennar þurfa ekki meðmæla með og teljast eins og till. hinnar n. nokkurn veginn tryggar.
Eins og öllum er kunnugt, hefur það fyrr og síðar verið verkefni samvinnun. samgm., sem er samgmn. beggja d. sameinaðra, að komast að niðurstöðu um rekstur flóabáta og ákveða þá leið, sem Alþingi eigi með till. sínum að fara í því efni. Ekki hefur verið kleift að fá frá þeim mörgu, sem hlut eiga að máli, fullnægjandi reikningsskil, því að þau eru ekki til fyrr en eftir á, og væru reikningarnir þýðingarlausir, ef eftirlitið með rekstrinum væri ekki, en það er í höndum þess manns, sem fer með það á milli þinga, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins.
Eftir þeim gögnum, sem Skipaútgerð ríkisins hefur fyrir þessum framkvæmdum, lítur svo út, að áætlanirnar, sem gerðar voru fyrir árið 1943, hafi staðizt tiltölulega vel og vil ég segja betur en nokkur önnur áætlun í útgjöldum ríkisins, og má það einstakt teljast, þar sem um svo óvissa hluti er að ræða. En það var þannig, að n. hafði áætlað nokkuð ríflega þá styrki, sem renna skyldu til bátanna, ef kleift yrði að fá báta til þess að annast þessa flutninga, og var tekið tillit til vísitölu og annars, sem upplýsingar gátu talizt í þessu efni. Veigamikið atriði kom á herðar skipaútgerðarinnar að leysa, þar sem voru samgöngumálin við Austfirði, Akranes og Breiðafjörð, og hefur n. fallizt á þá tilhögun, að ekki verði ákveðið um þetta nema að nokkru leyti af hálfu Alþingis, en að skipaútgerðin annist sjálf um þessar ferðir enn um hríð á vegum hins opinbera.
Ég skal geta þess, að í till., sem komu frá n., er gert ráð fyrir breyt. á fjárframlögum um örlitla hækkun frá því, sem var á síðasta ári, og mun sú hækkun nákvæmlega tiltekin nema nálægt 60 þús. kr. Af einhverjum ástæðum hefur í fjárl.frv. hæstv. ríkisstj. þessi liður verið lækkaður óeðlilega mikið. Hann var áætlaður um 400 þús. kr. og var færður niður úr 500 þús. kr.. sem var fjárveiting síðasta árs. Um þetta er út af fyrir sig ekkert að segja, en ég hef ekki minnstu hugmynd um, hvað þessu veldur, því að það er alveg á móti því, sem reynslan hefur sýnt, að það muni þurfa að veita minna nú til samgangna en áður, ef á að halda þeim uppi. Þetta kemur ekki að sök, því að Alþingi grípur í taumana, eins og vera ber, og hefur áætlað, að í staðinn fyrir kr. 400 þús. sé gert ráð fyrir, að flóabátastyrkurinn verði upp undir hálft sjötta hundrað þúsund, eða um 60 þús. kr. hærri en hann var síðastliðið ár.
Dálítið hefur það verið misjafnt, hvernig styrknum hefur verið úthlutað, og hefur þá verið tekið fullt tillit bæði til þarfanna og eins þeirra upplýsinga, sem fyrir liggja bæði með og móti. Sums staðar hefur reksturinn gengið vel, og þó að það hafi viljað til, að komið hafi kvartanir frá fólkinu, verður ekki um sakazt. Sums staðar hefur reksturinn ekki borið sig, og verður þá að hlaupa undir bagga, og er fyrst að segja í því sambandi, að n. taldi nauðsynlegt að ætla þær uppbætur, sem yrðu veittar, sem veitta styrki á næsta ári, og þar sem sömu aðilar eiga hér hlut að máli, kemur þetta í sama stað niður. Ég vil geta þess, að Breiðafjarðarbáturinn og Stykkishólmsbáturinn varð fyrir skakkafalli á árinu sem leið, sem leiddi af sér mikinn aukakostnað og halla á rekstrinum. Upp í þann halla kemur nú tillag frá ríkissjóði fyrir þetta ár og sömuleiðis tillag frá póstsjóði, sem er utan við þessa fjárveitingu, því að bátunum er gert að skyldu að flytja póst. Þegar tekið er tillit til þessa, sést, að styrkinn þarf að hækka. Brtt., sem samvn. samgm. hefur borið fram, er á þskj. 434 og er um það, að veittar verði á næsta ári kr. 549970 til flóabátaferðanna, í stað þess sem á síðasta ári voru veittar kr. 489320, og verður það sú upphæð, sem kemur til greina við þá atkvgr., sem verður um fjárl.
Ég tel þá, að ég hafi gert fullnægjandi grein fyrir þessu og vísa að öðru leyti til nál., og býst ég við, að þm. hafi kynnt sér nægilega það, sem hér er um að ræða.
Ég hef þá lokið þessari framsögu, en vil geta þess frá sjálfum mér, að brtt., sem ég flutti við 2. umr. og var tekin aftur þá, verður ekki tekin upp aftur, með því að fjvn. hefur gengið nokkuð til móts við þessa till. Hún var, eins og menn vita, miðuð við sérstakan stað, sem þarf að verja í mínu umdæmi fyrir sandfoki, og verður þetta látið nægja með það fyrir augum, að það, sem á vantar, verði látið á fjárl. næsta árs, og má þá, eins og nú er liðið á árið, sama standa um þetta.
Aðra brtt. á ég að vísu á þskj. 517, XIV. um, að brúaðar verði saman árnar Hörgsá og Stjórn á Síðu og styrkurinn samkvæmt þeirri upphæð, sem með þarf. Önnur áin er í fjárlfrv., og er rétt að taka hina með, svo að þær komi saman á næsta ári, enda hagar svo til, eins og ég hef getið um við 2. umr. þessa máls, að það er hagkvæmast, að þær séu brúaðar í einu lagi. Ég geri svo ekki ráð fyrir að þurfa að mæla frekar fyrir þessu máli, en býst við, að hv. þm. sjái, að hér er um sanngirnismál að ræða.