07.12.1943
Sameinað þing: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (142)

27. mál, fjárlög 1944

Eysteinn Jónsson:

Við 2. umr. fjárl. flutti ég fyrir hv. þm. N.-Þ. (GG), sem liggur rúmfastur, till. um að hækka framlag til Raufarhafnarvegar. Ég færði fyrir því mjög ýtarleg rök við 2. umr., að upphæðin þyrfti að vera þetta há. Að vísu hlýddu mjög fáir á þau rök, en þar sem fáir þm. eru enn viðstaddir, sé ég mér tæplega fært að endurtaka þau nú, en ég hef leyft mér að flytja þessa till. aftur og aðra til vara. Ég vil aðeins geta þess, að þessi vegur má teljast ófær bifreiðum, en þó verður að treysta á hann til stórra vöruflutninga, eftir að síldarverksmiðjan var sett á stofn á Raufarhöfn, þar sem hann er notaður til flutninga á þungavöru og fólki til verksmiðjunnar og líka til flutninga frá verksmiðjunni til héraðanna í kring. Allt þetta er svo nauðsynlegt, að ég vænti, að hv. þm. fallist á að ljá a. m. k. varatill. atkv.

Ég hef leyft mér að flytja till. á sama þskj., 517, XXII, sem fer fram á 15 þús. kr. til þess að endurbyggja Svalbarðskirkju í Þistilfirði. Ég er einn af þeim mönnum, sem voru á móti því að leggja fé til þess að endurbyggja kirkjur, ef þær hafa ekki orðið fyrir sérstökum óhöppum, en þar sem Alþingi ákvað við 2. umr. að ganga inn á þessa braut, fannst mér rétt, að ég flytti þessa till. fyrir hv. þm. N.-Þ. Þannig er ástatt um þetta kirkjuhús, að það er um það bil 100 ára og er alveg komið að falli, og mun ekki vera kostur á að halda þar messugerð, eins og nú er komið málum. Ég vil því vænta þess, að þessi till. verði samþ. í samræmi við þær till., sem samþ. voru við 2. umr.

Þá hef ég flutt hér á sama þskj. brtt. við 22. gr., X-lið þeirrar gr. Í þessum lið fjárl. er það ákveðið að heimila ríkisstj. að verja sem svarar allt að hálfum læknislaunum til styrktar fólki í þeim læknishéruðum, sem ekki geta fengið neinn lækni til þess að þjóna héruðunum. Nú vil ég benda mönnum á, að ef ekki tekst að fá lækni til þess að þjóna læknishéraði, leiðir af því slíkar búsifjar fyrir þá, sem hlut eiga að máli, að ekki er frekt farið í sakirnar, þó að leyft sé að verja til þessa heilum læknislaunum, þ. e. að verja því, sem sparast, handa þessu fólki. Þess vegna fer ég fram á, að orðið „hálfur“ sé fellt niður, en að varið sé til þessa heilum læknislaunum. Ég vona, að þm. finnist þetta sanngjarnt.

Að lokum vil ég skýra frá því, að ég flyt ásamt hv. þm. A.-Sk. (PÞ) á þskj. 517,XXIX. litla till. um lesstofu sjómanna á Höfn í Hornafirði. Ég vil aðeins upplýsa það, sem ég held, að þm. viti, að á þessum stað safnast saman sjómenn nokkra vetrarmánuðina og búa í verbúðum. Það er ekki nokkur vafi á því, að mikil nauðsyn er á, að bókakostur væri til staðar, sem sjómenn gætu átt kost á að notfæra sér. Þetta er lítið fjárhagsatriði, en mætti koma að nokkru liði til þess að þoka þessu máli áfram ásamt framlögum annars staðar að, frá þeim, sem hafa áhuga fyrir málinu. Ég vænti, að hv. Alþingi taki þessu vel, enda hefur slíkum málaleitunum áður verið tekið vel af Alþingi.