15.11.1943
Neðri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)

157. mál, happdrætti

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Háskólinn hefur nú einkaleyfi til að reka happdrætti á Íslandi til ársloka 1946. Þegar sú framlenging var gerð, var áætlað, að háskólinn og atvinnudeildin gætu orðið á þessum tíma skuldlaus, og það er nú þegar fyrirsjáanlegt, að svo muni verða, og það kannske ári fyrr en einkarétturinn til happdrættisins rennur út.

Hér er aftur lagt til, að happdrættisréttindi háskólans verði framlengd um 10 ár frá því að rétturinn nái til ársloka 1946, nefnilega til ársloka 1956, í þeim tilgangi, að háskólinn geti byggt leikfimishús og náttúrugripasafn og lagað lóð sína svo sem þarf. Um þetta er erfitt að gera áætlanir, en það má þó gizka á, að 10 ára happdrættistekjur muni hrökkva langt til framkvæmda þessara mannvirkja. En háskólanum er á allan hátt þægilegra að vita fyrir fram um það, hverju hann megi búast við í þessu efni, því að slíkar framkvæmdir sem þessar heimta mikinn undirbúning. Og þess vegna er þetta mál borið fram svona löngu áður en happdrættisréttindin renna út.

Vil ég svo óska, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og fjhn., og þar munum við leggja fram gögn, sem kann að verða óskað eftir í sambandi við þetta mál.