09.12.1943
Efri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)
157. mál, happdrætti
Haraldur Guðmundsson:
Ég get ekki varizt því að láta í ljós undrun mína yfir þeim ofsa, er virðist hafa gripið um sig hér. Hv: 1. þm. Reykv. talaði mikið um það, að það hefði verið ótilhlýðilegt og ótímabært af mér að minnast hér á tvö mál viðvíkjandi háskólanum, og kallaði, að ég væri að draga fram svívirðingar um þá stofnun með því að minnast á þessi mál. Ef það er hans dómur, að hér sé um svívirðileg mál að ræða, þá læt ég hann um að fella þann dóm og hafa þau orð, ef hann vill. En vægast sagt orka þessi mál tvímælis, að ég kalli þau ekki ámælis- og vítaverð bæði og lítt til þess fallin að afla háskólanum vinsælda.
Síðan stendur hv. 6. þm. Reykv. upp og telur upp heila romsu af hneykslismálum viðvíkjandi stjórnendum háskólans og endar á próf. Sigurði Nordal og bréfi því, er hann skrifaði undir til Alþ., og telur slíkt reginhneyksli. Ég get nú ekki skilið þetta svo og álít próf. Nordal hafa fullt skoðanafrelsi. Ég álít einnig, að ódrengilegt hafi verið af starfsbræðrum Sigurðar Einarssonar að flæma hann úr embætti á þann hátt, sem þeir hafa gert. Ef eitthvað var athugavert við embættisfærslu hans, sem þeir vissu um, þá áttu þeir að láta það ganga til kennslumálarh., sem hefði svo tekið málið til meðferðar.
Annars er óþarfi að gefa mér áminningu um að láta háskólann ekki gjalda hneykslanna, sem hér hafa verið talin upp. Ég er búinn að segja mitt orð um þetta frv. En ég álít margt óheppilegt fyrir háskólann hafa nú hrotið af vörum þeirra, sem þóttust vilja tala máli hans.
Það, sem er kjarni þessa máls, er það, hve fjárþörf háskólans er brýn og hvort aðrar þarfir eru brýnni eða ekki.